19. júní - 19.06.1988, Side 60
Vel klæddur og fallegur. Þannig er karlmannsímynd nútímans.
Herrarnir sem hér áður áttu ekki
nema ein eða tvenn jakkaföt er höfðu
verið keypt fyrir: útskrift, giftingu,
eða jarðarför, áttu örugglega ekki
margar tegundir af rakspíra uppi í
baðskáp — og örugglega engar aðrar
snyrtivörur en raksápuna sína og
kannski svitalyktareyði. Nú eiga allir
vel klæddir og snyrtir menn 4-5 gerðir
af rakspíra, vel að merkja a.m.k. eina
þeirra með mýkingarkremi í, og þar
er örugglega ekki um „Old Spice“ eða
„Brut" að ræða. Þetta eru rakspírar
þekktra franskra eða ítalskra ilm-
vatnsframleiðanda, s.s. Dior, Ara-
mis, Armani o.s.frv. Með sömu lykt
og rakspírinn eiga herrarnir gjarnan
sjampó, næringu, rakakrem, sápu og
svitalyktareyði — fyrir utan raksápu
og önnur rakáhöld.
Kvenfólkið á heimilinu má nú
höldum við bókhald hér yfir hvaða föt
hver kaupir og á hvaða tíma. Annars
finnst mér Hjörleifur Guttormsson
áberandi best klæddi maðurinn á Al-
þingi."
Þar með lýkur að segja frá fata-
innkaupum í þessari sérstöku verslun
en staðfesting fékkst á því að karl-
mönnum er ekki um það gefið að sjást
í sams konar fötum og einhver annar
(ekkert frekar en konunum), því að í
versluninni var staddur kunnur út-
varpsmaður og var hann að máta
jakka. Hann spurði afgreiðslumann-
inn hvort það væri ekki öruggt að
aðeins örfáir slíkir jakkar hefðu kom-
ið. Afgreiðslumaðurinn sannfærði
hann um að svo hefði verið og þá
loksins keypti maðurinn jakkann —
og gekk ánægður með sig út úr búð-
inni.
Áhugi á fötum er sem sagt einn
þátturinn í þeirri breytingu sem orðið
hefur á útliti íslenskra karlmanna og
það er ekki að undra að okkur hafi
virst karlmennirnir fallegri, því þegar
þeir voru allir í gráu eða svörtu fötun-
um sínum með rauða bindið þá runnu
þeir allir saman í eitt og týndu sínum
séreinkennum. Nú endurspeglast
augnliturinn í skærblágrænum bind-
unum og bláu jökkunum, þannig að
endurvarp verður á gljáandi nýþvegið
og hárlakksúðað hárið.
Rauðu bindin voru sem sagt þau
sem giltu fyrir svo sem áratug, en haf-
ið þið tekið eftir því að sjónvarps- og
fréttamenn veita línuna í bindismál-
um? (Og í rauninni jakkamálum
líka). í fyrra sumar og fram eftir öll-
um vetri hafa þeir skartað bindum í
grænum litum — og viti menn vinsæl-
asti liturinn á bindum í herrafata-
verslunum er þessi í grænu „sjétter-
ingunum". Með vorinu fór aftur á
móti að bera á mjög sterkum dökk-
bleikum bindum — sumir sjónvarps-
menn voru þó svo sniðugir að vera
með röndótt bindi í grænbláa og
bleika litnum, og hvað gera menn þá?
Það verður gaman að fylgjast með því
í sumar hver þróunin verður.
„AHt frá hatti on’í skó“ auglýsir ein
herrafataverslunin í Reykjavík. Nú
þykir herrunummjög fíntað geta sagt
að skórnir séu handsaumaðir og helst
eiga þeir að vera úr krókódílsskinni.
þakka fyrir að koma tannburstanum
sínum og hreinsikreminu fyrir í bað-
skápnum líka — en ætli þær sér meira
pláss þá mega þær fara að biðja um
stærri skáp. Þó er leyfilegt að hafa
hárlakksbrúsann í skápnum því son-
urinn á heimilinu þarf að nota hann
líka til að úða úr honum á hárið á sér
svo að það rísi á réttum stöðum — nú
og kannski stelst pabbi í hann líka til
að fínagreiðslan haldist í skorðum.
60