19. júní - 19.06.1988, Side 64
YFIR 700 KONUR FRÁ SLANDI
stefna á norræna kvennaþingið í Osló
Konurnar sem ætla til Osló í sumar hafa hist í morgunkaffi einn laugardagsmorgun í mánuði. Hér eru þær að æfa
baráttusöng eftir Ingibjörgu Þorbergs sem hún hefur samið sérstaklega fyrir íslensku förukonurnar.
/
Islenskar konur munu fjölmenna
til Osló fyrstu vikuna í ágúst á
norræna kvennaþingið. Hvorki
meira né minna en 720 konur
hafa skráð sig til þátttöku héðan,
margfalt fleiri en bjartsýnustu áætlan-
ir gerðu ráð fyrir í byrjun. I íslenska
undirbúningshópnum, sem starfað
hefur reglulega allan síðastliðinn vet-
ur, var í upphafi talað um að setja
markið hátt og reyna að stefna að því
að íslensku þátttakendurnir yrðu 200,
en það er eins og oft áður, þegar ís-
lenskar konur taka sig saman þvert á
allar línur, þá verður útkoman stór-
brotin. Áhuginn og krafturinn brýst
fram af ofurefli eins og dæmin sanna.
En til hvers norrænt kvennaþing?
Eru ekki norrænar konur best settar
og lengst komnar í jafnréttismálum
allra kvenna í heimi? Þessu verður að
vísu að svara játandi en norræna
kvennaþingið er einmitt kvatt saman
til að við getum skoðað „raunveru-
leikann að baki goðsögnunum um
jafnrétti kynjanna", eins og Greta
Knudsen, formaður norrænu undir-
búningsnefndarinnar, kemst að orði í
kynningarávarpi vegna þingsins. Þar
segir líka um markmiðið: „Við sýnum
daglegt líf kvenna og það sem er
meira um vert, orðum framtíðarsýn
okkar og draum um samfélag með
64
manneskjulegu svipmóti þar sem
einnig konur fá notið sín.“
THdrög og undirbúningur
Ikjölfar alþjóðlegu kvennaráð-
stefnunnar í Nairóbi árið 1985
fæddist sú hugmynd að stefna
norrænum konum saman til að
ræða mál sín á heimavettvangi, enda
áherslur norrænna kvenna afar ólíkar
þeim sem helst settu svip sinn á Nair-
óbi-ráðstefnuna. Norræna ráðherra-
nefndin ákvað í samvinnu við Norð-
urlandaráð að slíkt þing þjónaði
markmiði sínu best ef það væri í
höndum norrænna kvennasamtaka
og voru valdir tveir fulltrúar frá
hverju landi til að mynda undirbún-
ingsnefnd, en þrír frá gestgjafaland-
inu Noregi. Fyrir hönd íslands sitja í
Grein: Jónína M. Guðnadóttir
nefndinni Arndís Steinþórsdóttir frá
Kvenréttindafélagi íslands og Guð-
rún Ágústsdóttir frá Framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna. Starf
nefndarinnar hófst í ársbyrjun 1987 og
hefur hún hist í höfuðborgum allra
Norðurlanda, en undanfarið hálft ár í
Osló. Nefndin ber alla ábyrgð á fram-
kvæmd þingsins. Embættismenn
Norðurlandaráðs og Norrænu ráð-
herranefndarinnar vinna þó með
nefndinni, enda hafa þessir aðilar lagt
fram fimm og hálfa miljón danskar
krónur til styrktar kvennaþinginu.
í Osló er starfandi framkvæmda-
stjóri, Helle Jarlmose fyrrum formað-
ur danska Kvenréttindafélagsins, og
þar er starfrækt skrifstofa með tveim-
ur öðrum starfsmönnum til að stýra
undirbúningsstarfinu.
Hér á íslandi hefur skipulagning
undirbúningsstarfsins verið í höndum
þeirra Arndísar og Guðrúnar, auk
Ingibjargar Magnúsdóttur frá Kven-
félagasambandi íslands, Jónínu Mar-
grétar Guðnadóttur frá KRFÍ og Elsu
Þorkelsdóttur framkvæmdastjóra
Jafnréttisráðs, en ráðið hefur lagt
málinu dyggilega lið á alla lund og þar
hefur starfsmaður undirbúningshóps-
ins, Guðrún Ágústsdóttir, haft aðset-
ur. Auk undirbúningshópsins hefur
fjöldi annarra kvenna séð um ein-
staka þætti skipulagsstarfsins.