19. júní


19. júní - 19.06.1988, Page 68

19. júní - 19.06.1988, Page 68
stjórnmál. Kjaramál komu næst á eft- ir og þá listir, utanríkismál, orkumál og umhverfismál. Alls staðar voru karlar í miklum meirihluta sem við- mælendur nema á einu sviði og það var á sviði jafnréttismála. Þeir málaflokkar sem konur voru helst spurðar um voru listir, stjórn- mál, kjaramál, skólamál, jafnréttis- mál, atvinnumál, þjóðfélagsmál, menningarmál og skemmtanir. Hvar eru konurnar þá? Vert er að staldra við og íhuga hvar konur er helst að finna úti á hinum launaða atvinnu- markaði. Þá kemur fljótt upp í hugann fiskiðnaðurinn en konur hafa lengi haldið frystihúsum landsins gangandi. I skólunum eru konurlíka í miklurn meirihluta við kennslu og sjúkrastofnanir ýmis konar eru starfs- vettvangur mikils fjölda kvenna. Af öðrum starfssviðum má nefna land- búnaðarstörf, að ógleymdum heimil- isstörfunum sem að vísu eru utan við þann ramma sem við köllum hinn launaða atvinnumarkað. Niðurstöð- ur rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir veldi kvenna á þessum sviðum er ekki leitað eftir viðtölum við þær um þessi mál. Konan sem vinnur við hlið manns síns á sveitabýlinu er sennilega að útbúa fréttamanninum kaffi á meðan húsbóndinn er inntur eftir um- framframleiðslunni á kartöflum eða ótíðinni. Engin af þeim konum sem talað var við var titluð sem húsmóðir og má því draga þá ályktun að það starfsheiti sé ekki til í hugarheimi fréttamanna. Sjórinn er ein helsta uppspretta auðs í þessu þjóðfélagi .Málumerlúta að þessum atvinnuvegi var skipt í tvennt í þessari könnun, þ.e.a.s. sjáv- arútveg og fiskvinnslu. Þetta var gert til þess að sjá hvort konur fengju að tjá sig um fiskvinnsluna þar sem þær ráða ríkjum. En viti menn, þar eru karlmenn í miklum meirihluta, þó ástandið sé skárra þar en á sviði sjáv- arútvegs þar sem aðeins eitt viðtal var við konu af þeim liðlega 200 sem könnuð voru. Endurskoöun fréttamats Mark Fowler, einn af valda- mestu mönnum Reagan- stjórnarinnar á sviði fjöi- miðla lét hafa eftir sér að hann liti svo á að sjónvarp væri í raun 68 ekkert annað en venjulegt hehnilis- tæki. Það væri brauðrist með mynd á. Sennilega munu fáir íslendingar taka undir þessi orð hans, en samt sem áður hefur sjónvarpi verið afar lítill gaumur gefinn hvað varðar þau áhrif sem það hefur. En það er kominn tími til að konur skeri upp herör og krefjist aukinnar hlutdeildar á skjánum, því sjónvarp er miðill sem skilur kjarnann frá hisminu, ekki satt? Aukinni hlutdeild kvenna í sjón- varpsfréttum verður aðeins náð með því að fréttamenn og konur vinni sameiginlega að þessu takmarki. Fréttamenn þurfa að endurskoða daglegt fréttamat og aðlaga skilgrein- inguna á því hvað er frétt og hvað er ekki frétt í því þjóðfélagi sem við lif- um í. Þetta hefur verið vanrækt og fréttamatið miðast enn við þjóðfélag sem einu sinni var, — þar sem karlar voru nær einráðir á mörgum sviðum þjóðfélagsins. Konur þurfa að læra að axla þá ábyrgð sem því fylgir að vera beðnar um að koma til viðtals í sjón- varpi eða útvarpi. „Nei, því miður, biddu heldur hann Jón“ er svar sem konur ættu ekki að láta eftir sér leng- ur að nota þegar óskað er eftir viðtali við þær. Afsakanir eins og þessi hér að framan heyrast því miður allt of oft, jafnvel af vörum hæfustu kvenna í ábyrgðarstöðum. Það gerast engin kraftaverk í fjöl- miðlum og án ábyrgrar afstöðu kvenna gagnvart því hlutverki að vera talsmenn þeirra greina atvinnulífsins sem þær starfa í breytast hlutföllin milli karla og kvenna í sjónvarpsfrétt- um hægt. Viðtöl verða nefnilega ekki tekin án viðmælanda. Konur þurfa að átta sig á því að þær eru eins hæfar til þess og karlar að standa fyrir framan sjónvarpsvél og svara fréttamönnum. Oft heyrist sungið í samkvæmum: „ . . . allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó.“ Stundum mætti ætla af viðbrögðum kvenna að þær haldi að það sé lífshættulegt að fara í sjón- varpsviðtal, en að fenginni yfir 10 ára reynslu við fréttaöflun á sjónvarps- stöð leyfir höfundur þessa greinar- korns sér að fullyrða að textinn gam- alkunni gildir um sjónvarpsviðtöl og að konur sem axla þá ábyrgð að fara í sjónvarpsviðtöl geta óhræddar sungið í kór: „ . . . allar komu þær aftur og engin þeirra dó.“ HELSTU NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNAR Á STÖÐU KYNJANNA í SJÓNVARPSFRÉTTUM RÍKISÚTVARPS, 1966-1986 1) Úrtakið spannaði alls 2011 fréttaviðtöl. Alls voru tek- in fréttaviðtöl við 1842 karla yfir tímabilið eða 91.6% en við 169 konur, 8.4% 2) Konur koma oftast fram í fréttaviðtölum árið 1986 og eru þá í 13.2% allra viðtala. Allt til ársins 1971 var ekkert fréttavið- tal við konur í mánuðunum maí og nóvember. 3) Af þessum 2011 fréttavið- tölum tóku karlar í frétta- mannsstarfi 1466 viðtöl, eða 73%, en konur í fréttamanns- starfi 545 viðtöl, eða 27%. 4) Konur í fréttamannastétt taka oftar viðtal við konur heldur en karlfréttamenn. Við- töl kvenfréttamanna eru mun sjaldnar send út snemma í fréttatímanum en viðtöl sem karlar taka. 5) I sumum málaflokkum er ekkert fréttaviðtal við konur. Þetta á t.d. við um orkumál, náttúruhamfarir, tækni og iðn- að. Af alls 20> viðtölum um sjávarútveg, (fiskvinnsla er hér undanskilin) er eitt viðtal við konu. 6) Aðeins í einum mála- flokki, jafnréttismálum, eru viðmælendur fréttamanna oft- ar konur en karlar. 7) Á árunum 1972-1979 er ekkert fréttaviðtal við konu sett meðal fimm fyrstu frétta í hverjum fréttatíma, og öll árin eru kvenviðtöl sett aftar í fréttatíma en viðtöl við karla. 8) Þegar litið er á starfsstöð- ur viðmælenda fréttamanna, kemur í ljós að á öllu tímabilinu eru 968 viðtöl við karlmenn sem bera titil sem felur í sér einhvers konar stjórnun en aðeins 52 konur með sambæri- lega stjórnunartitla. 248 viðtöl eru við karla sem titlaðir voru sérfræðingar en 10 konur. Tal- að var við 60 karla úr hópi lista- manna og 17 konur, 47 karla úr verslunar- eða verkalýðsstétt en 14 konur. Bændur af karl- kyni sem rætt var við f sjón- varpsfréttum voru 42 en konur úr sömu stétt sem komu til við- tals voru 2 á umræddu tímabili.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.