19. júní


19. júní - 19.06.1988, Side 75

19. júní - 19.06.1988, Side 75
bundið því skilyrði að umsækjendur um starf hafi „nokkurn veginn sömu menntun og hæfileika til starfsins. Það er á þessu skilyrði sem oft brýtur, þannig að það hefur verið fremur lítið hald íþessum samningi, því miður, og auðvelt að sniðganga ákvæði hans. Þó finnst okkur betra að hafa þetta plagg heldur en ekki. Ástæðan fyrir því að ég er hingað komin á ráðstefnu BHM er að segja frá aðgerðum hins opinbera til að bæta stöðu kvenna í stjórnun því að við eigum auðvitað langt í land með að ná þessum 40% sem jafnréttis- samningurinn gerir ráð fyrir. 1 starfi mínu hef ég það hlutverk m.a. að reyna að fjölga konum í stjórnunar- stöðum hjá ríkinu. Áætlanir unt þetta hófust árið 1983 og fyrsta reynslan gaf ekki mjög góða raun. Af 10 afar hæf- um konum sem höfðu sérstaklega verið valdar út til tveggja ára sérþjálf- unar í stjórnun fengu aðeins 2 stöðu- hækkun nokkurn veginn strax. Nú er ég búin að gera breytingar á fyrstu áætluninni og hún er nú til reynslu í nýrri útgáfu hjá 6 ríkisstofnunum og er þetta tveggja ára verkefni eins og hið eldra. Það má segja að hér sé um tví- þætt verkefni að ræða. Annars vegar byggist það á þróunar- starfsemi innan stofnananna sjálfra þar sem sérstakur starfshópur tekur að sér að skilgreina þær hindr- anir sem mæta konum í starfi, innan vinnustaðarins og utan, og þá sérstak- lega hvað varðar framamöguleika þeirra. Um leið reynir hópurinn að koma með tillögur um hvernig sé hægt að fjarlægja þessar hindranir af hálfu stofnunarinnar. Þessi starfshóp- ur vinnur í mjög nánum tengslum við yfirmann eða stjórn viðkomandi stofnunar og það hefur komið í ljós að einmitt þetta atriði skiptir höfuðmáli. Bæði ber þá stjórnin ábyrgð á að starfsskilyrði hópsins séu viðunandi og endanlega ábyrgð á að árangur ná- ist með starfinu. Samhliða þessu innra þróunarstarfi hjá stofnuninni fer svo fram skipulagt nám og þjálfun tveggja kvenna hjá viðkomandi stofnun undir hand- leiðslu leiðbeinanda á stofnuninni og í umsjón ráðuneytisskrifstofunnar sem ég starfa hjá. Við skipuleggjum námskeið sem ætluð eru öllunt kon- unum sameiginlega, en að öðru leyti fær hver kona einstaklingsbundna þjálfun á stofnun sinni sem á að gera hana hæfa til að gegna stjórnunar- starfi þegar þar að kemur. Tilgangur- inn með þessu er gagngert sá að flýta fyrir frama þeirra." — Og hver hefur svo reynslan verið af þessu starfi? „Enn sem komið er er ekki um beinan mælanlegan árangur að ræða. Hann felst einkum í auknum skilningi karla innan þessara stofnana á því að um mismunun sé að ræða. Þeir hafa reynst hafa áhuga á þessum málefn- um og vilja vita eitthvað um þau. En því er ekki að neita að maður verður líka var við ákveðið valdatafl. Yngri körlum finnst oft eins og þeim sé að einhverju leyti ógnað og mér hefur fundist eldri karlmenn, rnilli 50 og 60 ára, skilji þetta mun betur. Þeir eiga oft dætur eða tengdadætur sem eiga erfitt með að komast áfram og þá blasir óréttlætið við þeim. Þaðsem mér finnst þó verajákvæð- ast að svo stöddu er að konur og karl- ar fá þarna tækifæri til að vinna saman og fá betri skilning á raunveruleika hver annarra." y,'. m >'4 WrM mm ;#Mr- 0ifii •.-•y mm iÉit ff$S ápk. ■ // mm gk m y m m iilf AÐ VERA EÐA EKKI VERA ER SPURNINGIN UM AÐ w «ás :' . ' » y Jm LESA VERU HSÍ mm BLAÐ FYRIR KONUR SKRIFAÐ AF KONUIVI ÁSKRIFTARSÍMI 22188 75

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.