19. júní


19. júní - 19.06.1988, Side 77

19. júní - 19.06.1988, Side 77
FEMINST AFORLAGIÐ - ANDLIT í BLÁUM VÖTNUM Utgáfufélagið BÓKRÚN var stofnað í Reykjavík í júní- mánuði 1984. Þetta er fyrsta og eina femínista- eða kvennabókaútgáfa á Islandi. I októ- ber 1985 varð BÓKRÚN hlutafélag, sem eiga þessar konur: Björg Einars- dóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Arnfríður Jónasdóttir, Bjarnfríður Guðmundsdóttir og María Haralds- dóttir. Á þessum stutta tíma hefur þessi útgáfa unnið nauðsynja starf — mjög virðingarvert og bækurnar sem hún hefur gefið út eru til sóma og prýði. Lítið hefur samt verið um hrós og húrrahróp í kringum starfsemina, en þessar konur tilheyra heldur ekki því hugarástandi sem einhverntíma stóð undir nafninu „vinstri- intelligentía". Hvarflar nú meir en svo að manni, að ef svo væri, hefði nú heldur betur verið sveiflað, skrifað og skrafað um að hér á landi væri starfandi kvenna- útgáfufélag. En nóg um það og vart hægt annað en kíma útí annað við þessu lágkúru- stússi, sem er þó harla dapurlegt í raun hér í allri „menningunni" — svo augljós er þessi tvískinnungur. Þau ritverk sem BÓKRÚN hefur gefið út eru: Úrœvi ogstarfi íslenzkra kvertna 1-111. Þetta eru 68 vandlega unnir æviþættir íslenzkra kvenna sem Björg Einars- dóttir hefur samið. BÓKRÚN hefur einnig gefið út minnisbækur, sem eru jafnframt dagatöl með sögulegu ívafi varðandi konur. Svo hefur komið út ljóðabók- in Bókin utan vegar eftir Steinunni Eyjólfsdóttur, sérlega fallega ortur ljóðabálkur um sonarmissi Steinunn- ar — einlæg, væmnislaus og tær ljóð. Og fyrir jólin seinustu kom svo út ljóðabók eftir Ragnhildi Pálu Ófeigs- dóttur, Andlit íbláutn vötnum. Bókin geymir 73 ljóð. Pessi ljóðabók er að mínu viti merkur viðburður í ljóða- bókaútgáfu hér á landi. Hönnuðurinn Elísabet Cochran hefur unnið fagurt listaverk með útlit þessarar bókar — en hún hefur líka hannað aðrar bækur útgáfunnar. En allar bækur BÓKRÚNAR eru konum og þar af leiðandi líka körlum til sóma og eiga þær sem að henni standa lof skilið og þakkir. Þær vinna mikið og óeigingjarnt starf — sníða sér þó stakk eftir vexti og gera hvor- ugt að hrópa hátt né læðast um með undirróður í fjölmiðlum um sín störf. Næsta bók sem útgáfan hyggst gefa út er sjálfsævisaga Goldu Meir í þýð- ingu Bryndísar Víglundsdóttur. / g hef verið beðin að skrifa um bók Ragnhildar Pálu: Andlití bláum vötnum. Ekki treysti ég mér til að skrifa um bókina hefðbundna gagnrýni. Hef til þess hvorki æfingu né áhuga. En ég hreifst ákaflega af bókinni og ljóðunum hennar. Og þau urðu mér að því ljóði sem ég birti nú hér um leið og ég þakka BÓKRÚNAR-konum þeirra merka starf. Grein: Nína Björk Árnadóttir Andlit í bláum vötnum Til Ragnhiidar Pálu Ófeigsdóttur Siifurskær er hljómurinn hann ómar yfír vatninu hann ómar í vatninu hann ymur inn í hjartað þitt og í þér vaknar sígauni og í þér vaknar ást og í þér spilar gítarinn þótt hann hafí brotnað vaknar yndi og verður þér eilífðarsöngur því skáldið hefur ort þér af fegurðarviskubrunni þar vefur Gyðjan þér endaiausa gieði þar er móðirin mikla þar er ástin og dauðinn í djúpfögrum leik óræðum að þú megir vona heitum að þú getir bjargast svo djúpfögrum að þú munt njóta að eilífu njóta 77

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.