Sólskin - 01.07.1931, Page 36

Sólskin - 01.07.1931, Page 36
er um ætið þarna í ó- byggðunum. Það sem mest lijálpar þeim, til þess að ná sér í björg, er hin skarpa sjón þeirra og lykt. Indíánar egndu fyrir þá þannig, að þeir blönduðu deyfandi jurt- um saman við kjöt. Þegar gammarnir liöfðu etið kjötið, verkaði jurtaeitrið á þá, svo að taka mátti þá með höndunum. Það er undravert, hve fljótir gammar eru að safnast að æti. Þegar egnt er fyrir þá, eða hræ fellst til, sést oft enginn gammur. Jafnvel ekki þó horft sé í allar áttir í góðan sjónauka. Er þó skyggni ágætt, sólríkt og liáfjallaloftið tært. Einum fimmtán mínútum eftir að liræ fellst til, drífur að gamma úr öllum áttum. Er óskiljanlegt, hvernig þeir fara að fá vitneskju um liræið í slíkrif jarlægð. Önnur aðferð Indíána er, að breiða illa flegna uxa- húð á jörðina og snúa holdrosunni upp. Þá skríður Ind- íáni inn undir húðina, og hefir með sér sterkan spotta. Gammarnir safnast nú að, setjast á liúðina og fara að kroppa kjötið. Þá grípur Indíáninn utan um húðina og fætur fuglsins. Fuglinn baðar vængjum og reynir að losna, en í nánd hefir annar Indíáni falið sig; kemur hann til hjálpar, og tekst þeim háðum að brjóta liúðina utan um kandórinn. 34

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.