Fréttablaðið - 01.04.2011, Side 61
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2011 45
„Ég fékk mjög mikið út úr þessari ferð
og tek mikinn lærdóm með mér aftur
heim,“ segir Frosti Jón „Gringo“ Run-
ólfsson kvikmyndagerðamaður en hann
er nýkominn til landsins eftir átta daga
dvöl í alþjóðlegum vinnubúðum kvik-
myndagerðarmanna í Búdapest, sem
nefnast Moving Districts.
Frosta var boðið út ásamt fjórum
Íslendingum, þeim Ágústu Jóhann-
esdóttur, Antoni Mána Svanssyni og
Gunnari Auðuni Jóhannssyni, en Frosti
er nemandi í Kvikmyndaskólanum og
hefur heimildarmyndirnar Mínus og
Meinvill í myrkrinu á ferilskrá sinni.
Moving Districts er á vegum lista-
manna i Búdapest sem vilja láta reyna
á alþjóðlega samvinnu í kvikmynda-
gerð en þetta er í annað skipti sem
vinnubúðirnar voru haldnar. Öllum
þátttakendunum var skipt í hópa og
gert að setja saman eina stuttmynd.
„Okkar stuttmynd var um sannsöguleg-
an harmleik sem átti sér stað í bænum
og því áhugavert að vinna rannsóknar-
vinnuna á bak við myndina sjálfa. Ég
kynntist fullt af góðu fólki og mynd-
aði sambönd sem eiga eflaust eftir
að nýtast í framtíðinni. Stuttmyndin
sem kom út úr þessu verkefni var ekki
endilega tilgangur ferðarinnar heldur
lærði ég svo margt annað nytsamlegt í
sambandi við kvikmyndagerð.“
Skilyrði til að komast inn á Moving
Districts var að koma með stuttmynd
um íslenskan listamann, en Frosti
hefur undanfarið verið að vinna að
heimildarmynd um íslensku listakon-
una Gabríelu Friðriksdóttur og fannst
því tilvalið að sýna myndina. „Ég fékk
mjög góðar viðtökur við henni og
stefni nú á að sýna hana ásamt nýjustu
afurð minni, myndinni Hudas Hudas, á
Skjaldborg í sumar.“ - áp
Fór í alþjóðlegar vinnubúðir til Búdapest
NAUT SÍN Í BÚDAPEST Frosta „Gringo“
Runólfssyni var boðið í samvinnuverkefni
kvikmyndagerðarmanna í Búdapest ásamt
fjórum öðrum Íslendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nú styttist óðum í hið konunglega
brúðkaup Vilhjálms Bretaprins
og Kate Middleton. Tímaritið
People hefur þó heimildir fyrir
því að hinn tilvonandi brúðgumi
neiti að bera hring á fingri.
„Það verður aðeins smíðaður
einn hringur að ósk brúðhjónanna
tilvonandi. Fröken Middleton
fær sérsmíðaðan hring úr velsku
gulli en prinsinn verður hring-
laus,“ sagði talsmaður konungs-
hallarinnar. Tímaritið greinir þó
ekki frá því hver ástæða hring-
leysisins er.
Hringlaus
Bretaprins
HRINGLAUS Vilhjálmur Bretaprins vill
ekki ganga með giftingarhring.
NORDICPHOTOS/GETTY
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 1. apríl 2011
➜ Tónleikar
18.00 Sigríður Lárusdóttir heldur tón-
leika í Hásölum í kvöld kl. 18. Tónleik-
arnir eru liður í framhaldsprófi Sigríðar í
einsöng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
21.00 Tónlistarmaðurinn Mugison
spilar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum kl.
21 í kvöld. Húsið opnar kl. 19. Takmark-
aður sætafjöldi. Ekkert aldurstakmark
en miðaverð er 1500 kr.
22.00 Hljómsveitin Lame Dudes
fagnar fimm ára afmæli sínu með tón-
leikum á Bar 46 í kvöld kl. 22. Aðgangur
ókeypis. Allir velkomnir.
23.00 Í kvöld hefst ný tónleikaröð
á Faktorý í boði Monitor og Tuborg. Í
kvöld koma fram hljómsveitirnar Agent
Fresco, Reason to Believe og The
Vintage Caravan. Húsið opnar kl. 22 og
hefjast tónleikarnir kl. 23. Frítt inn.
23.00 Hljómsveitin Stóns heldur
tónleika á Sódómu í kvöld kl. 23. Leikin
verða lög sem spanna 40 ára feril
hinnar merku hljómsveitar, The Rolling
Stones. Miðaverð er 1500 kr.
➜ Hátíðir
20.30 Vinjettuhátíð á Suðureyri fer
fram í Talisman kl. 20.30 í kvöld. Um
tónlist annast Auður Birna Guðnadóttir
söngkona við gítarundirleik. Ármann
Reynisson les ásamt fleirum.
➜ Myndlist
14.00 Óli Róbert Hediddeche opnar
málverkasýninguna Fjörutíu og fjögur-
þúsund fjögurhundruð fjörutíu og
fjórar og sleppum aurunum í gallerí
Auga fyrir Auga í dag kl. 14. Sýningin
verður opin allar helgar í apríl á milli kl.
14 og kl. 18.
16.00 Sýning myndlistarkonunnar
Auðar Vésteinsdóttur, VIÐMIÐ, opnar
í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 16. Á
sýningunni eru ný collage-verk. Allir
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
OPNUNART
ÍMI
MÁN-FÖS 1
0-18
LAU 11-17
S. 572 3400
Firði, Hafnarfirði • Sími 572 3400
Í dag föstudag og á morgun fylgja
sólgleraugu og stuttermabolur frítt
með öllum keyptum gallabuxum.
VERSLUNIN OPNAR
1. APRÍL
KL. 10.00