Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2001, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.07.2001, Blaðsíða 25
FJÖLMIÐLAR HVER fl AÐ BORCfl FYRIR VEFlNfl Fjármögnun netumsvifa Það er erfitt að spá, einkum um fram- tíðina, er stundum sagt En það má líka snúa þessu við: Það er auðvelt að spá, einkum um framtíðina, því enginn veit hvernig hún verður. Eitt af því sem kemur spánskt fyrir sjónir er að sjá hvað fréttir dagblaðanna eru í ríkum mæli frásagnir af því sem muni gerast í dag. Þannig er algengt að sjá til dæmis forsíðufrétt- ir í bresku blöðunum um að í dag muni forsætisráðherra tilkynna hitt og þetta og þá muni honum mælast svo og svo. I heimi, þar sem krafan um nýjustu fréttir er áleitin, þá eru netsíður dagblað- anna nauðsynlegur hluti af ásýnd þeirra, því annars eru þau alltaf bara með gamlar fréttir eða frásagnir af því sem muni gerast. Það er ekki lengur hægt að hugsa sér nútímadagblað án vefsíðu. Og vefsíðurnar geta verið mikilvægar til að draga athyglina að prentútgáfu blaðanna. Það má lika hugsa sér framtíð, þar sem prentútgáfan leggur fyrst og fremst áherslu á ítarlegri úttektir annars vegar, þó nútímalesendur þoli engar langlokur, og frétta- yfirlit hins vegar. Netið verði þá notað til harðrar fréttamiðlunar annars vegar og víðfeðmrar upplýsingamiðlunar hins vegar. Þessi afmörkun er þegar farin að sjást þegar stórmál eru uppi, því þá er ekki óalgengt að miklu meira efni um viðkomandi mál sé að finna á vefsíðum en í prentútgáfúm. Þróun netsíðna blaðanna og útgerð þeirra á eftir að koma í ljós, en það má telja nokkuð pottþétt að gjaldtaka eigi eftir að aukast En þegar er ljóst að blöðin velja sér mismunandi leiðir, svo þó segja megi að gjaldtaka muni verða regla fremur en undantekn- ing er svigrúmið býsna vítt Verða fleiri blöð með margmiðlun likt og Guardian? Munu blöð, eins og flármálablöðin, sem gera út á af- markaðan markhóp bjóða upp á enn sérhæfðari og ijölbreyttari þjónustu en nú þekkist kannski að hluta sérsniðna eftir óskum viðskiptavina og þá auðvitað gegn greiðslu fyrir hana? Mun bresku blöðunum takast að halda aðgenginu ókeypis en rækta þess í stað dygga áhugamannahópa, sem greiða fyrir sérefni? En ætlar ríkisstöð eins og BBC að taka skrefið inn á greiðslu- markaðinn? Það vakti nokkurn skjálfta þegar einn af yfirmönnum BBC lýsti því yfir nýlega að hugsanlega ætti BBC eftir að taka greiðslu fyrir efni á BBC Online. Ef farið yrði að veita heilu sjón- varpsþáttunum inn á Netið, eins og nú er gert með fréttaefni, þá kæmi vel til greina að það yrði gert í áskrift. Þetta væri þá hlið- stætt kapalmarkaðnum, sem BBC er þegar komið inn á. Mörg- um hraus hugur við að nú ætlaði stöðin ekki aðeins að halda áfram að rukka alla um áskriftargjöld, heldur líka að láta borga fyrir netaðgengi. Talsmaður samtaka netútgefenda, sem hafa harðlega gagniýnt netumsvif BBC, því þau skekktu eðlilega sam- keppni, sagði einfaldlega að BBC gæti ekki verið alvara. Ollkar leiðir sjást þegar í íslensku íjölmiðlunum, þar sem visir.is er með allt ókeypis, meðan mbl.is tekur greiðslu fyrir aðgang að greina- safni og fullt aðgengi. En í grófum dráttum má segja að enn sem komið er megi tala um bandarísku leiðina, sem tekur greiðslu fyrir greinaaðgengi, líkt og mbl.is gerir. Hins vegar er tilraun bresku blaðanna til að koma sér undan þvi að taka greiðslu fyrir almennt aðgengi að netsíðum sínum, en láta þess í stað áhuga- hópa borga brúsann ásamt auglýsendum. Hvort þetta dugir til er algjörlega undir því komið að blöðunum takist að búa til nógu öfl- uga hópa glaðra greiðenda. Og kannski líka undir því að fólk haldi áfram að nenna að lesa blöðin, hvort sem er í gamla papp- írsforminu eða á Netinu. BD 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.