Frjáls verslun - 01.07.2001, Blaðsíða 29
Kennarinn er sterkur í Arna ogséstþað t.d. á því að honum er tamt að standa uþþi við töflu og útskýra mál sitt í máli ogmyndum. Hérerhann
með samstarfsmönnum sínum í bankanum. Frá vinstri: Elín Sigfúsdóttir, aðstoðarframkvœmdastjóri fyrirtœkjasviðs, Sigurjón Arnason, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs, og Yngvi Örn Kristinsson, framkvœmdastjóri verðbréfasviðs. Fyrir framan eru: Jón Emil Magnússon, staðgengill
framkvæmdastjóra á einstaklingssviði, og Kristinn Zimsen, framkvœmdastjóri útibúasviðs. Myndir: Geir Olafsson
1924, og Aðalbjörgu Björnsdóttur, cand. mag. í dönsku, f. 14.
feb. 1926. Arni og Margrét Birna voru samtíða í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Þau eiga þijú börn; Berglind Þóra, f. 25. júlí
1978, er á ijórða ári í læknisfræði við Háskóla Islands, Björn
Steinar, f. 15. mars 1981, hóf nám í tölvunarfræði við Háskólann
í Reykjavík í haust og Guðný Anna, f. 28. mars 1988, er nemandi
við Kársnesskóla í Kópavogi.
Menntun Árni stundaði grunnskólanám í Kópavogi og lauk
stúdentsprófi frá MH 1975. Hann lagði alltaf mikla rækt við
námið og tók góð próf. Samkvæmt heimildum Fijálsrar versl-
unar var hann ekki viss hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur
eftir stúdentspróf og byijaði í jarðfræði en skipti fljótlega yfir í
viðskiptafræðina og lauk cand. oecon. prófi frá endurskoðunar-
sviði árið 1979. Hann varð löggiltur endurskoðandi 1984.
Ferill Arni kenndi við framhaldsdeildir Grunnskóla Kópa-
vogs um tveggja ára skeið á námsárunum í lok áttunda áratug-
arins og var stundakennari við Tækniskóla íslands veturinn
1980-1981. Hann starfaði hjá Endurskoðunarstofu Björns
Steffensen og Ara Ó. Thorlacius 1979-1985. Veturinn 1982-1983
var hann við starfsnám hjá alþjóðlegri endurskoðunarstofu í
Ósló. Hann varð endurskoðandi og meðeigandi að Löggiltum
endurskoðendum hf. í Reykjavík 1985 og síðar stjórnarformað-
ur. Varð meðeigandi og stjórnarformaður hjá Deloitte &
Touche 1999. í mars 2001 varð hann bankastjóri við Búnaðar-
banka Islands hf. Árni var stundakennari við viðskiptadeild Há-
skóla íslands 1985-2001 og hefur haldið margvísleg námskeið
hjá Endurmenntunarstofnun HÍ.
Persóna Árni Tómasson er „öflugur og vel gefinn maður,“
eins og sagt er, drengur góður, opinn og vinsæll maður með
góðan húmor. Lýsingarorðin vantar ekki. Árni varð strax þéttur
á velli sem ungur drengur og þá þegar komu nokkrir grund-
vallareiginleikar hans í ljós þvi að hann var og er ennþá bæði
skemmtilegur og stríðinn. Hann var alla tíð einlægur áhuga-
maður um íþróttir og lagði stund á bæði handbolta og fótbolta
sem krakki. Þessum áhuga hefur hann haldið við með þvi að
sparka bolta með Bræðrafélaginu einu sinni í viku. Árna er lýst
sem kappsmiklum manni og ákveðnum, samviskusömum og
nákvæmum. Hann er yfirvegaður og velviljaður maður sem á
ekki til dómhörku í sínum beinum. Margir myndu segja hann
stjórnsaman og sumir myndu jafnvel kalla hann frekju. Hann
vill ráða. Honum er lýst sem jarðbundnum manni. „Hann er sér-
lega traustur náungi, eins traustur og menn geta orðið,“ segir
einn viðmælenda Fijálsrar verslunar, „hreinn og beinn og 110%
persóna. Hann er ráðagóður og mikill vinur vina sinna, snarpur
ef því er að skipta, en tæpast langrækinn, hefur sterkar skoðan-
ir og liggur ekki á þeim. Stríðinn er hann óneitanlega og það
kemur til dæmis fram í skoðanaskiptum. Þá gerir hann stund-
um í því að æsa menn upp,“ segir maður sem stendur Árna
nærri. í einkalífi sínu hefur Árni tekið upp á þeim ósið til
skamms tíma að vera óstundvf s og telja ættingjar hans það sýna
kannski best hve alvarlega hann tekur vinnuna og hve rækilega
hún hefur tekið völdin. Árni er gjörsamlega laus við allt snobb.
Stjórnandi í endurskoðendastétt fer gott orð af Árna og er
virðing borin íýrir honum. Hann þykir talnaglöggur endurskoð-
andi sem hefur áunnið sér traust viðskiptavina sinna og náð þvi
að verða ráðgjafi þeirra. Árni er góður kennari og er kennarinn
í honum sterkur. Honum er t.d. tamt að standa uppi við töflu og
útskýra mál sitt í máli og myndum fýrir hinum stjórnendum
Búnaðarbankans. Árni þykir góður hlustandi og vill gjarnan
heyra skoðanir annarra. Hann er óhræddur við að taka ákvarð-
anir, framkvæma þær og framfylgja þeim en breytir engu ein-
ungis breytinganna vegna. Hann vinnur markvisst, raunsær
29