Frjáls verslun - 01.07.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
Hefur vaxið og dafnað
tarfsemin hefur gengið ágæt-
| lega. Auðvitað hefur markaður-
inn ekki verið sá allra skemmtileg-
asti á þessu ári en við
höfum skrifað undir
nokkra samninga, t.d.
við Nokia og Ericsson,
starfsmönnum hefur
ijölgað og við erum
bjartsýn á framhaldið,"
segir Jón S. von
Tetzchner, forstjóri
norska hugbúnaðarfýrir-
tækisins Opera Software,
þegar Frjáls verslun
hringdi í hann til Noregs
nýlega. Fyrirtækið hefur
haldið áfram að vaxa og
dafna á þessu ári þrátt fýr-
ir kreppuna sem ríkt hefur
í rekstri hugbúnaðarfýrir-
tækja. „Það er erfitt að segja hvernig
útlitið verður næstu mánuði og ár. Við
Nýlega var jjaOab um Opera
SoftwareíBusmssWeekogtalab
að fyrirtækið væn a uppleið.
um (
J°n S. von Tetzchner
síðuviðtali við Frjálsa
byrjun ársins.
höldum áfram að gera eins mikið af
samningum og við getum en ég á ekki
von á því að salan taki kipp fyrr en 2002
og 2003. Ég hygg að
markaðurinn fari upp á
við á næsta ári en þetta
veit enginn og maður er
orðinn vanur þessum
sveiflum upp og niður,“
segir Jón. Fyrirtækið hef-
ur verið í samstarfi við
Symbian og gert samn-
inga um að Opera vafrinn
verði í nettengdum smá-
tækjum frá Nokia, Erics-
son og Panasonic. Opera
vafrinn er t.a.m. þegar í
eVilla tölvunni frá Sony,
var í for- e*ns °S nÝlega k°m fram í
verslun í BusinessWeek. HJj
INNKÖLLUN
VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR
HLUTABRÉFA í KEFLAVÍKURVERKTÖKUM HF.
Mánudaginn 15. október 2001 verða hlutabréf í Keflavíkurverktökum hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Keflavíkurverktaka hf.
þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag.
Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og
reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Keflavíkurverktökum hf. tekin til rafrænnar skráningar en
þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að
eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Keflavíkurverktaka hf. að staðreyna skráninguna
með fyrirspurn til hlutaskrár Keflavíkurverktaka hf., pósthólf 16, 235 Keflavíkurflugvelli eða
í síma 420-6400. Komi í Ijós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber
eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa,
s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf,
fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því
er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar
hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum
í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun í þessu
skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Stjórn Keflavíkurverktaka hf.
KEFLAVÍKURVERKTAKAR
13