Frjáls verslun - 01.07.2001, Blaðsíða 59
IVlflRKAÐSMflL SflMEINING IVIÁLNINGflRVERKSIVIIÐJfl
Helgi Magnússon, framkvæmdastjóri HörpuSjafnar, hefur verið fram-
kvæmdastjóri Hörpu sl. níuár og par áðurvar hann stjórnarformaður
fyrirtœkisins. „ Við munum að sjálfsögðu halda þekktustu og vinsælustu
vörumerkjunum þó svo að vöruframboð verði endurskoðað. “
FV-myndir: Geir Olajsson.
styrk og þekkingu Hörpu og Sjafnar sem grunn inn í framtíð-
ina. Stærri fyrirtæki eiga að hafa meiri slagkraft.
Sammála um framtíðarsýnina „Við sáum tækifæri hjá Sjöfn
að aðgreina málningar- og hreinlætisvörustarfsemina með
því að taka þátt í að sameina bæði í málningar- og hreinlætis-
vöruiðnaðinum á íslandi þar sem það eru of margir framleið-
endur og mikil samlegðaráhrif í því að sameina styrk inn-
lendra framleiðenda," segir Baldur. „Við höfðum sameinað
hreinlætisvörudeild Sjafnar við Mjöll og Sám sem áður tók
yfir Hrein í hreinlætisvörunni og rökrétt framhald af því er
sameiningin við Hörpu. Við Helgi vorum sammála um fram-
tíðarsýn HörpuSjafnar og vorum fljótir að ná samkomulagi
um aðalatriðin við sameininguna og létum ekki smáatriðin
trufla okkur. Það sem dró okkur fyrst og fremst áfram var að
við sáum að við gætum búið til öflugt þjónustufyrirtæki í
málningariðnaði, skapað betri samkeppnisstöðu og hagrætt
hjá okkur sem um leið skilar betri afkomu.“
Samtals reka fyrirtækin sjö eigin verslanir þar sem fram-
leiðslan er seld, en jafnframt eru vörurnar seldar til annarra
verslana og endursöluaðila um allt land. Hvað útflutning varð-
ar er allt óljóst enn, en ljóst er að það er spennandi dæmi. „I
gamla daga var talsverður útflutningur á vegum beggja fyrir-
tækjanna en þá var jarðvegurinn nokkuð öðruvísi," segir
Helgi. „Þetta var á þeim tímum þegar viðskiptasamningar
voru í gildi á milli íslands og Rússlands og framleiddi Harpa
m.a. um 16.000 tonn til útflutnings á 20 ára tímabili. Sjöfn
framleiddi og seldi verulegt magn af málningu til Rússlands
líka.“ Sjöfn selur málningu til Færeyja og hefur stundað út-
flutning þangað í 25 ár.
Engum sagt upp Hefðin fyrir íslenskri málningu er sterk og
þar sem aðstæður hér á landi eru ekki alveg eins og annars
staðar, þar sem veðrið er öðruvísi, er líklegt að íslensk máln-
ing eigi auðveldar uppdráttar en erlend. Að minnsta kosti úti
við. Enda eru tegundir eins og Polytex, Hörpusilki, Utitex,
Hörpuskin og Texolín vel þekktar og með mjög sterka stöðu
á markaðnum.
(Hermundardóttir)
endurskipulagt. Áfram verður öflug þjónusta við viðskiptavini
bæði í Reykjavík og á Akureyri og vöruþróun og framleiðsla
verður á báðum stöðum."
Fyrirtækin Harpa og Sjöfn standa bæði vel fjárhagslega og
hafa verið rekin með hagnaði. Það er því ekki neyðin sem
kallar á sameiningu heldur eingöngu hagkvæmnissjónarmið
og sameiginleg framtíðarsýn um að byggja upp öflugt og hag-
kvæmt þjónustufýrirtæki í málningarþjónustu á fslandi með
„Hjá HörpuSjöfn verða á milli 50 og 55 starfsmenn," segir
Baldur. „Yið munum leggja áherslu á að hagræða og einfalda
rekstur sameinaðs fýrirtækis á öllum sviðum s.s innkaupum,
vöruþróun, framleiðslu, sölu og dreifingu og yfirstjórn. Tím-
inn mun leiða í ljós hvort við þurfum að fækka eða hvort við
munum auka umsvif sameinaðs fýrirtækis og þurfum að
fjölga starfsmönnum. Það er ekkert markmið að fækka
starfsfólki." ffij
Eigendur Hörpu hf. eru fjölskylda Helga Magnússonar, framkvæmdastjóra HörpuSjafnar, (77%),
og Þóra Guðrún Óskarsdóttir og fjölskylda (23%). Eigendur Sjafnar eru Baldur Guðnason,
stjórnarformaður HörpuSjafnar, (60%), og KEA, (40%).
59