Frjáls verslun - 01.07.2001, Qupperneq 27
Frá Heimssýningunni í Hannover í Þýskalandi. Exton-Kastljós sá um að sýningartæknin væri í lagi í íslandsskálanum.
Sýningar
„Við sáum m.a. um allan Ijósa- og
sýningarbúnaó í skála fslands á Heimssýn-
ingunni í Hannover og einnig í Portúgal.
Par tókum við þátt í skipulaginu frá upp-
hafi, ákváðum sýningartæknina, útveguð-
um allar tölvur og búnað og sáum um hann
þá mánuði sem sýningarnar stóðu. Hér
heima höfum við séð um stórar útihátíðir
eins og Eldborg og Uxann, að ógleymdri
Kristnitökuhátíðinni, og einnig stóra tón-
leika á borð við Rammstein og Coldplay,"
segir Kristján.„Við höfum einnig séð um
Ijósa-, hljóð- og myndbúnað á fjölda sýn-
inga, t.d. sjávarútvegssýningunni, heimil-
issýningum, bílasýningum og margt fleira.
Varðandi búnað í nýjar byggingar má t.d.
nefna sölu og uppsetningu á stórum hluta
Ijósastýringa í nýju verslunarmiðstöðina í
Smáralind og fjölmörg önnur verkefni á því
sviði, sem við vinnum oftast í náinni sam-
vinnu við verkfræði- og arkitektastofur."
Útleigan
Exton - Kastljós leigir út tölvumyndvarpa
af öllum stærðum og gerðum, allan bún-
að varðandi ráðstefnur, símafundi, túlka-
kerfi og margt fleira. Til dæmis má nefna
að oft er leigður út búnaður sem notaður
er t.d. í brúðkaupsveislum og venjulegum
afmælisveislum og er þannig hægt að
segja að fyrirtækið geti leyst öll verkefni á
þessu sviði, stór og smá.Œl
Uppfærslan á Baldri. Par reyndi mikið á starfsmenn ng búnað frá Exton-Kastljnsum.
Frá Kristnitökuhátíðinni á Þingvöllum í fyrrasumar. Mikil hátíð þar sem Exton-Kastljns sá um
Ijósa- og hljóðbúnað.
liUHmiMIIMUIIiM
27