Frjáls verslun - 01.07.2001, Síða 28
NÆRMYND flF ÁRNfl TOWflSSYNI
Kankvís
keppnismaður
að kom að vissu leyti á óvart að
hann skyldi vera ráðinn banka-
stjóri Búnaðarbankans snemma í
vor því að þá var hann stjórnarformað-
ur og endurskoðandi Deloitte &
Touche og hafði hreint ekki hugsað
sér að hverfa þaðan. Búnaðarbankinn
hafði um nokkurt skeið gengið í gegn-
um þrengingar, umræður höfðu átt sér
stað um meint brot á reglum um verð-
bréfaviðskipti í bankanum og átök áttu
sér stað um sameiningu við Lands-
bankann sem þá var yfirvofandi og stjórnendur Búnaðarbank-
ans. I kjölfarið var skipt um toppana og Arni Tómasson fenginn
í bankastjórastólinn. Ekki að furða, telja margir. Hann þykir
hæfileikaríkur og reynslumikill eftir áralanga reynslu sem end-
urskoðandi í bankakerfinu, bæði hjá Landsbankanum og Bún-
aðarbankanum. Þeir sem til hans þekkja telja mjög eðlilegt að
Árni Tómasson skyldi fenginn til að lægja öldurnar í bankanum
og koma honum aftur á réttan kúrs.
Uppruni Árni Tómasson er fæddur
25. október 1955, sonurTómasarÁrna-
sonar, hrl., fv. ráðherra og seðlabanka-
stjóra, f. 21. júlí 1923, og Þóru Kristínar
Eiríksdóttur húsfreyju, f. 13. mars
1926. Árni er fæddur í Reykjavík en al-
inn upp í Kópavogi og búsettur þar.
Hann var í sveit að Ormsstöðum í
Norðfirði á yngri árum. Árni er
næstelstur Ijögurra bræðra. Þeir eru
Eiríkur, f. 1950, hrl. og prófessor við Háskóla Islands, Tómas
Þór, f. 1959, viðskiptafræðingur og markaðsstjóri Ferðamála-
ráðs, og Gunnar Guðni, f. 1963, dr., verkfræðingur hjá VST.
Fjölskylda Eiginkona Árna er Margrét Birna Skúladóttir
hjúkrunarfræðingur, dóttír Skúla Guðmundssonar, verkfræð-
ings og forstöðumanns Innkaupastofnunar ríkisins, f. 25. mars
Hann er hœfúeikarikur ogþekkir
bankaheiminn vel eftir áralanga
reynslu sem endurskoðandi. Maður
friðarins mætti kannski segja því að
öldurnar lœgði heldur betur eftir að
hann tók við í Búnaðarbankanum.
Effir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson
Nafn Árni Tómasson.
Fæðingardagur 25. október 1955.
Foreldrar Tómas Árnason, hrl., fv. ráðherra og seðlabankastjóri, og Þóra Kristín
Eiríksdóttir húsfreyja.
Fjölskylda Eiginkona Árna er Margrét Birna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur. Þau
eiga þrjú börn; Berglindi Þóru, f. 25. júlí 1978, læknisfræðinema, Björn Steinar, f. 15.
mars 1981, nema í tölvunarfræði, og Guðnýju Önnu, f. 28. mars 1988, grunnskólanema.
Menntun Stúdentspróf frá MH 1975 og cand. oecon. próf frá endurskoðunarsviði HÍ
1979. Löggiltur endurskoðandi 1984.
Ferill Bankastjóri Búnaðarbanka íslands frá mars 2001. Starfaði áður við kennslu og
endurskoðun. Var síðast endurskoðandi og stjórnarformaður Deloitte & Touche. Hefur
sinnt trúnaðarstörfum fyrir Félag endurskoðenda.
Áhugamál Æfði og keppti í handbolta og fótbolta í æsku og spilar enn fótbolta einu
sinni í viku. Var einn fremsti handboltadómari landsins. í dag á golfið hug hans allan.
Stundar laxveiði og lyftir stundum lóðum í líkamsrækt.
28