Frjáls verslun - 01.07.2001, Síða 33
STJÓRNUN RflÐNING FORSTJÓRfl
ða rangan stjórnanda!
Látið hann taka próf
Samkvæmt rannsóknum eru vissar tegundir prófa, þ.e. áreiðanleg og réttmæt hæfnis- og persónu-
leikapróf, mun Ifklegri til að spá fyrir um árangur heldur en meðmæli og hefðbundin viðtöl.
bundnum viðtölum er átt við viðtöl sem ekki eru stöðluð en
um leið og viðtal hefur verið staðlað eykst forspárgildi þess
mikið. Jafnframt er hægt að lesa úr myndinni að skriftarrýni
eða rithandarsýnishorn sem Frakkar studdust lengi við hefur
ekkert forspárgildi. Að sama skapi má leiða líkur að því að
„grænt ljós“ frá kunningja hafi lítið sem ekkert forspárgildi
um árangur í starfi.
Hæfnispróf sem hafa forspárgildi 0,5 geta verið af ýmsum
toga, t.d. þegar verið er að kanna tungumálakunnáttu, talna-
gleggni eða tölvukunnáttu. Það að segjast vera góður í ensku
og hafa búið erlendis i t.d. fjögur ár þýðir ekki endilega að
viðkomandi einstaklingur hafi góða færni í málinu. Myndin
sýnir að hæfnismiðstöð (Assessment Center) hefur mesta
forspárgildið af þeim aðferðum sem í boði eru. I stuttu máli
má segja að um verkleg próf sé að ræða. Einstaklingar sem
koma til greina í starfið eru látnir leysa „raunveruleg“ verk-
efni t.d. greina verkefni/vandamál og skila frá sér tillögum,
koma að lausn mannlegra vandamála og ýmiss konar hóp-
vinnu. Framgangur þeirra er síðan metinn af fulltrúum við-
komandi fyrirtækis og þeim sérfræðingum sem bjóða upp á
þjónustuna. Þessi aðferð er einna helst notuð í stjórnenda-
ráðningum, enda er hún tímafrek og kostnaðarsöm. Til að
auka líkur á að „réttur" einstaklingur verði ráðinn í starf er
oftast stuðst við fleiri en eitt „tæki“ í ráðningarferlinu, t.d.
staðlað viðtal og persónuleikapróf. Rétt er þó að benda á að
engin aðferð er til sem hefur 100% forspárgildi. Því miður eru
engar sambærilegar rannsóknir til fyrir Island um forspár-
gildi sambærilegra kannana en engin ástæða er til að ætla að
útkoman yrði önnur.
Hvernig stjórnanda er leitað að? Til að geta fundið það sem
leitað er að er nauðsynlegt að vita að hverju er leitað! Það að
einstaklingur geti sinnt einu starfi vel þýðir ekki að hann sé
sá rétti í eitthvert annað starf. Gott dæmi er ráðning Ivester
sem var fjármálastjóri hjá Coke og hægri hönd forstjórans,
Goizueta. Þegar Goizueta lést var Ivester látinn taka við.
Hann var snillingur með tölur og allt þeim tengdum en var
einfaldlega ekki maður fólksins. Hann leyfði ekki öðrum að
taka þátt í stórum ákvörðunum, gleymdi sér í smáatriðum og
sá ekki heildarmyndina. Þannig má ætla að ef stjórn Coke
hefði kynnt sér betur hvernig starfsmönnum þætti hann sem
leiðtogi og notað faglegri aðferðir við valið hefði ráðningin
ekki átt sér stað.2
Hve líklegar eru eftirfarandi aðferðir
til að spá fyrir um frammistöðu í starfi
1,0
0,9
0,8
0,7
0,6
0,5
0,4
0,3
■FULLKOMIN SPÁ
(PERFECT PREDICTION)
Hæfnismiöstöð (Assessment Center)
Tests)
rVinnusýnishorn (Work Samples Tests)
^Hæfnispróf (Ability Tests)
/Hæfnismiðstöð (frammistaða)
'-(Assessment Center performance)
.. Persónuleikapróf (Personality Tests, combination)
Lífeðlislegar mælingar (Bio Data)
” Staðlað viðtal (Structured Interview)
0,2
0,1
0,0
-0,1
Hefðbundið viðtal (Typical Interview)
Meðmæli (References)
rStjörnuspeki (Astrology)
Skrifrýni (Graphology
Lslempispá (CHANCE PREDICTION)
Hér má sjá hversu líklegar þessar aðferðir eru til að spá fyrir um
frammistöðu forstjóra í starfi? Það kemur á óvart hve vægi hefðbund-
inna viðtala og meðmæla er lítið.
Hvernig er „rétti“ stjórnandinn fundinn? Flóknara samfélag
kallar á vandaðri og faglegri aðferðir við ráðningu stjórnenda.
Ráðningaraðilinn (sá sem ræður) ætti því að vera meðvitaður
um eftirfarandi sex atriði:
1. Stjórn fyrirtækis þarf að komast að sameiginlegri niður-
stöðu um hvað það er sem greinir góðan leiðtoga frá öðrum.
Hvernig stjórnanda er leitað að? Mikilvægt er í byrjun að
gerð sé ítarleg starfsgreining sem hefur að geyma helstu
verkefni og eiginleika sem starfið krefst. Flestar starfs-
greiningar fela í sér góða lýsingu á því hversu mikilvægt
leiðtogahlutverkið er. Stjórnin ætti að komast að sam-
eiginlegri skilgreiningu á eiginleikum og bakgrunni þess
leiðtoga sem ætlað er að henti fyrirtækinu best.
2. Stjórnandinn þarf að yfirstíga „pólitískar“ hindranir.
Það er ekki öllum gefið að leiða hóp af fólki með mismun-
andi markmið og ná góðum árangri. Stjórnarmeðlimir
vilja ráða stjórnanda sem getur fengið alla til að setjast á
sama vagninn og vinna að sameiginlegum markmiðum.
„Grænt ljós“ frá kunningja hefur ekkert að segja
Jafnframt er hægt að lesa úr myndinni að skriftarrýni eða rithandarsýnishorn sem Frakkar studdust
lengi við hefur ekkert forspárgildi. Að sama skapi má leiða líkur að því að „grænt ljós“ frá
kunningja hafi lítið sem ekkert forspárgildi um árangur í starfi.
33