Frjáls verslun - 01.07.2001, Side 36
SALA A SOLARLANDAFERDUIVI
„Svarta sumarið“
sem aldrei kom
Þegargengi krónunar hríðféll sl. vor mátti heyra á ferbaskrifstofufólki að þetta væru
einhverjar „svörtustu vikur“ sem upp hefðu komið í sölu á sólarlandaferðum. En
núna er komið á daginn að landinn sótti stíft á suðrænar strendur og„sumarið
svarta“, sem spáð var, kom sem beturfer ekki.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
Það leit ekki gæfulega út ferðasumarið hjá íslendingum
með gengisfellingar og gengissig og útlit fyrir stórfelld-
ar hækkanir á vöru og þjónustu. Betur fór þó en á horfð-
ist að sögn forráðamanna ferðaskrifstofanna og „svarta sum-
arið“, sem spáð hafði verið, kom ekki, heldur varð í mesta lagi
grátt. Sólarlandaferðir voru flestar upppantaðar eða seldust
að minnsta kosti, en að vísu var nokkuð stór hluti þeirra seld-
ur á lægra verði eða „last minute“ verði tíl að koma þeim út.
Þrátt fyrir það láta ferðaskrifstofurnar ijórar sem Frjáls versl-
un ræddi við vel af sér og segja afkomuna góða, allt frá því að
vera vel viðunandi og í samræmi við áætlanir og upp í það að
vera talsvert betri en áætlað var.
Fleiri farþegar en 1999 „Það komu tvær gengisfellingar upp
á samtals 11% og það hafði vissulega áhrif á markaðinn,“ seg-
ir Páll Þór Ármann, markaðsstjóri Ferðaskrifstofu Islands.
„Til þess að jafna áhrifin skárum við aðeins niður sætafram-
boð en þegar við lítum tíl baka getum við unað mjög sáttir við
okkar stöðu því við höfum verið með mjög góðar bókanir og
fullar vélar. Þetta er minna en í fyrra enda var það óvenjulega
Páll Þór Armann, markaðsstjóri Ferðaskrifstofu Islands: „Til þess að
jafna áhrifin skárum við aðeins niður sœtaframboð en þegar við lít-
um til bakagetum við unað mjög sáttir við okkarstöðu því við höfum
verið með mjög góðar bókanir og fullar vélar. “
gott ár í öllu, bæði í ferðum og annarri
neyslu. Við erum nú á árinu 2001
komnir með fleiri farþega en á sama
tíma árið 1999 og það teljum við harla
gott þó við höfum þurft að hafa aðeins
meira fyrir hlutunum nú en áður. Þetta
hefur verið erfiðara en það var í fyrra
og fleiri sæti seld á lokaútkalli í heild á
þessum markaði en ég held að við höf-
um náð því að halda utan um hlutina
og við erum þokkalega ánægðir með
það.“
Nýr áfangastaður sló í gegn „Við buð-
um nýjan áfangastað í fyrra, Krít og átt-
um þar með gott forskot," segir Páll.
„Þar sem við vorum búnir að kynna Krít,
þurftum við ekki að eyða í það kröftum
nú og gátum byrjað að bóka strax, en Krít sló strax í gegn sem
vinsæll ferðamannastaður. Einnig höfum verið mjög sterkir í
Portúgal sem hefur verið okkar langstærstí áfangastaður í gegn-
um árin. Það nýttíst okkur vel í sumar að fólk þekkir okkur og
það sem við stöndum fyrir og kemur aftur og aftur. Auðvitað hef-
ur það haft einhver áhrif á markaðinn að Sól kom inn en þó tel
ég að það hafi ekki breytt miklu þegar allt kemur tíl alls.“
Breytt mynstur „Ef við horfum á ljölskylduna í heild og sér
í lagi þar sem skólabörn eru, hefur ferðamynstrið breyst og
heldur áfram að breytast enn meir. Hefðbundin sólarlanda-
ferð hefur nú styttri tímaramma og má eiginlega segja að
ferðir sem áður náðu til loka ágúst, jafnvel fram í september,
færist nú fram í miðjan mánuðinn og tengist þá jafnvel versl-
unarmannahelginni. Þegar skólafríin hefjast ekki fyrr en líður
á júní hefur það líka áhrif á þann hlutann. Við höfum fundið
tíl þess að ferðir eru að styttast en í staðinn fer fólk oftar.
Markaðurinn er í raun að þjappast saman því þetta þrengir
tímabilið sem við höfum tíl sumarleyfisferða Ijölskyldunnar.
Við vitum ekki alveg hvernig þetta kemur til með að þróast
og eigum eftir að skoða það nánar m.a. með tilliti til haustfría
og vetrarfría. Það verður gert á næstunni og árið skoðað,“
segir Páll Þór að lokum.
36