Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2001, Page 42

Frjáls verslun - 01.07.2001, Page 42
Starfsfólk No Name ásamt aðstoðarmönnum. Efri röð frá vinstri: Atli Már Hafsteinsson Ijósmyndari, Laufey Sigurðardóttir, Embla Sigurgeirs- dóttir, Bryndís Ólafsdóttir og Jóhanna Jóhannesdóttir. I miðröð: Sigríður Guðsteinsdóttir, Birta Björnsdóttir, Kristín Agústsdóttir, Kristín Stefáns- dóttir ogArnar Tómasson hárgreiðslumeistari. Fremst er Esther Jóhannsdóttir. Mynd: Ur einkasafni. Kristín fer reglulega til Noregs til að kynna línuna, halda námskeið og kenna á vörurnar og segir hún að kaupgeta sé gífurleg í Noregi. Til marks um það nefnir hún að meðan ís- lenskar konur eyði að meðaltali 4.000 krónum í snyrtivörur í hvert sinn eyði norskar konur fyrir 20-25 þúsund krónur án þess að blikna. Fer inn á persónulegu nótunum Kristín er einnig farin að vinna í því að koma No Name snyrtivörunum á framfæri á Þýskalandsmarkaði í samvinnu við Olaf Stephensen mark- aðsráðgjafa. Þetta er stór markaður, telur um 80 milljónir manna, og segir Kristín vinnuna ganga hægt því að markað- urinn sé svo lokaður, Þjóðverjar íhaldssamir og ekki eins opn- ir fyrir nýjungum og Norðmennirnir þó að þeir fylgist vel með. Hún segir að Þjóðverjar taki enga áhættu í viðskiptum og vilji kynna sér málin mjög vel áður en þeir taki ákvörðun. Nýtt fólk þurfi því heldur betur að sanna sig áður en vörurn- ar komist inn á markaðinn. „Maður kemst ekki beint inn heldur verður maður að fara í gegnum samsteypu því að það er nokkurs konar kaupfélags- bragur á þessu í Þýskalandi. Ef maður kemst inn í samsteypu þá er manni borgið, varan er komin í 200-300 verslanir og maður getur einbeitt sér að því að halda sér inni á markaðin- um. En maður getur líka farið bakdyraleið inn á markaðinn, stofnað sína eigin verslun eða sett upp afgreiðslueiningu inni í stórverslun. Þannig getur maður sýnt að varan eigi erindi inn á markaðinn og gangi vel og í framhaldi af því kemst mað- ur kannski inn í samsteypu," segir Kristín. Fyrirspurnir frá Noregi og Svíþjóð „Varan fékk góðar viðtökur hér heima og þegar hún var búin að festa sig á markaðinum vaknaði sú hugmynd hjá mér að komast utan með hana. Ég hafði fengið fyrirspurnir bæði frá Noregi og Svíþjóð og fór að vinna í því að koma henni til útflutnings,“ segir Kristín. Heildarlausnir i tölvu- & tæknibunaói ] HT&T ehf. Sætún 8, 125 Reykjavík Sími 569 1400, Fax 569 1554, www.htt.is 42

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.