Frjáls verslun - 01.07.2001, Qupperneq 43
VIÐTflL KRISTÍN í NO NfllVIE
Samferða Debenhams til Svíþjóöar?
No Name snyrtivörurnar eru til sölu í snyrtistúdíóinu Magic í miðborg Óslóar og í október verður
opnuð fyrsta No Name afgreiðslueiningin hjá Debenhams í Smáralind. Á næsta ári verður tilnefnt
andlit ársins í Noregi og Förðunarskóli No Name tekur þar til starfa. Kristín er búin að láta hanna
heildstætt útlit fyrir No Name vörurnar og starfar ótrauð að því að koma No Name á framfæri í
Þýskalandi. Hún vonast jafnvel til að geta orðið samferða Debenhams til Svíþjóðar.
- Hvaða leið ætlar þú að fara inn á Þýskalandsmarkað?
„Ég ætla að byrja á því að fara rólega inn á snyrtistofurnar á
persónulegu nótunum, á stöðum sem til þessa hafa ekki ver-
ið þjónustaðir af stóru merkjunum. í framhaldi af því getur
varan sannað sig og fengið umijöllun, við getum farið að sýna
veltutölur, gert kannanir og sýnt fram á vinsældir vörunnar
og þá geta dyrnar farið að opnast," svarar hún.
Ný lína fyrir dökka hlíð Bæði í Noregi og Þýskalandi ætlar
Kristín að nota sömu markaðstæki og á íslandi. Markaðssetn-
ingin í Noregi er að sjálfsögðu lengra komin en í Þýskalandi,
stefnt er að því að andlit ársins verði valið úr hópi þekktra
norskra kvenna á næsta ári og í janúar er ætlunin að stofna
Förðunarskóla No Name. „Þannig náum við fótfestu. Það er
ekki nóg að varan fái meðbyr í upphafi, við þurfum að halda
okkur á markaðinum og ná fótfestu með réttri markaðssetn-
ingu. Þetta höfum við gert á Islandi með okkar þjóðþekktu,
yndislegu konum og það ætlum við að gera erlendis." Til við-
bótar ætlar Kristín að hanna sérstaka línu íýrir konur með
dökka húð en slíka línu segir hún hafi skort mjög hjá stóru
og þekktu snyrtivörumerkjunum. „I haust verðum við með
sér línu fyrir dökka húð en það hefur alveg vantað, sérstak-
lega í Norður-Evrópu. Þessi sérstaða að geta mótað markaðs-
stefnuna á hverjum stað er styrkleiki No Name,“ segir Krist-
ín.
Að auki er svo gríðarleg vöruþróun í gangi hjá No Name
heildsölunni. Verið er að hanna hér heima nýjar einingar í
verslanir og verður þannig öll vörulínan heildstæð í útliti,
bæði í verslunum og umbúðirnar sjálfar. No Name snyrtivör-
urnar eru þegar seldar á 45 útsölustöðum út um allt land, fyr-
ir utan Fríhöfnina, en í október verður opnuð sérstök eining,
snyrtideild No Name, í Debenhams í Smáralind og verður
þar öll snyrtivörulínan á boðstólum. I Smáralind ætlar Krist-
ín að taka þetta nýja og sérhannaða útlit í notkun, bæði á
versluninni sjálfri, stöndum og pakkningum, og verður
spennandi að sjá hvernig tekst til.
„Draumurinn er að verða samferða Debenhams í Svíþjóð
ef vel gengur í Smáralind,“ segir hún að lokum. 3!]
hj&QýGafiMÍi
Engjateigi 5 • 105 Reykjavík • Sími 581 2141
43