Frjáls verslun - 01.07.2001, Side 68
Þorvaldur Sverrisson sem stýrir stefnumótum hjá Góðu fólki McCann-Erickson: „Auglýsingar á almannafæri, strætóskýlum, skiltum oggirðing-
um eru viðkvœmara mál en þær sem birtast í afmörkuðum miðlum. Það sem passar ágætlega í Bleikt og blátt á ef til vill engan samastað í
strœtóskýlum. “
Sjaldan er vitað hvar eiturlyf eins og e-taflan er framleidd né heldur hvað er í þeim en við vitum hver er
helsta smyglleið þeirra til landsins og vildum fá ungt fólk til að hugleiða það.
um samkeppnisfyrirtæki. Og flestir sem að auglýsingum starfa
reyna að virða það sem kallast í daglegu tali almennt velsæmi.
Þó ber þess að gæta að hugtakið almennt velsæmi er mjög erfitt
viðfangs. Það er ákaflega stutt frá almennu velsæmi að lægsta
mögulega samnefnaranum, viðkvæmustu sálinni í blokkinni,
sem ætti helst aldrei að hafa neitunarvald."
Algeng smyglleið á eiturlyfjum auglýst. Hin umdeilda auglýsing frá
samtökunum ísland án eiturlyfja sem flestum þótti vera óþarflega
ógeðsleg - og raunar án beinharðra skilaboða.
Áróður Skilar Sér Þorvaldur segir auglýsingar á borð við „Úr
hvaða rassi“ sem samtökin Island án eiturlytja birti vera bráð-
snjallar, þó alltaf megi gagnrýna útfærsluna. „Þetta er áhuga-
verð nálgun og þegar verið er að hugleiða hver markhópur-
inn er, þá er birtingarstaðurinn raunhæfur og eins er það
klárt mál að þessi skilaboð, að eiturlyf séu hættuleg og að
maður eigi ekki að neyta þeirra, sennilega einhver þreyttustu
skilaboð í bransanurn," segir Þorvaldur. „Því er nauðsynlegt
að vera með krassandi auglýsingar til að ná athygli, varla þýð-
ir að segja rólega við neytandann: „Hættu nú að dópa.“ Hitt er
annað mál að varðandi þessar auglýsingar og aðrar viðlíka,
sbr. tóbaksauglýsingarnar frægu, sem reyndar voru innflutt-
ar, að það þarf að hamra stöðugt til að ná árangri. Tó-
baksneyslan hefur sýnt það svo ekki verður um villst að með
stöðugum áróðri hættir þetta að vera sniðugt og skilaboðin
komast áleiðis."
Birtingastaðurinn Skiptir máli Mörgum er í fersku minni lista-
maðurinn Odd Nerdrum sem þótti tilhlýðilegt að auglýsa list
sína með því að sýna mynd af sjálfum sér berum að neðan. „Það
skiptir líka máli hvar auglýsingar birtast," segir Þorvaldur. ,Aug-
lýsingar á almannafæri, strætóskýlum, skiltum og girðingum
eru viðkvæmara mál en þær sem birtast í afmörkuðum miðlum.
Það sem passar ágætlega í Bleikt og blátt á ef til vill engan sama-
68