Frjáls verslun - 01.07.2001, Síða 71
Skáldið Ernest Hemingway var ástríðufullur veiðimaður og unnandi
góðra vína. Meðal upþáhaldsrétta skáldsins var steiktur silungur með
beikonsneiðum og krydduðu hvítvíni.
Lax og vín Þegar velja á vín með laxi skiptir öllu máli hvaða
sósa er höfð með laxinum. Almennt má þó segja að Chablis vín-
in henti prýðisvel með laxi. Þau eru hæfilega þurr með votti af
krydduðum ávaxtakeim sem á vel við með feitum fiski eins og
laxinn er. Ljómandi Chablis vín er Domaine Laroche Chablis
Saint Vieilles Vignes 1999 á 1.510 kr. Þetta er fínt og bragðljúft
vín með eftirbragði af smjöri. Annars bragðaði ég aldeilis frá-
bært Chardonnay vín frá Suður-Astralíu fyrir nokkru, vín sem
passar einstaklega vel með laxi. Þetta vín er Lindemanns
Padthaway Chardonnay 1998 á 1.590 kr. Þetta er flókið vín,
bragðmikið og öflugt og af því er gott eikarbragð. Sé höfð
smjörsósa með laxinum eins og hollandaise eða brætt smjör
þarf að hafa frekar þurrt og sýruríkt vín með honum. Ljómandi
vín í þessu sambandi er Cháteau du Cléray Muscadet de Sevre
et Maine sur Lie 1999 á 1.100 kr. Þetta er vel þurrt vín sem þó
er létt og frískandi.
Silungur Það er á ýmsan hátt flóknara að velja vín með silungi
þvi hann er mjög misjafh, t.d. hvort um urriða eða bleikju er að
ræða og þá vatnableikju eða sjóbleikju. Gott og pottþétt hvítvín
með steiktum silungi er Joseph Drouhin Saint-Veran 1998 á
1.250 kr. Þetta er hæfilega þurrt vín með þægilegum ávaxta- og
kryddkeim. Agætt hvítvín með t.d. sjóbleikju er ljómandi vín frá
Nýja Sjálandi sem heitir Montana Marlborough Sauvignon
Blanc 2000 á 1.300 kr. Þetta er sýruríkt vín, afar ferskt og létt
með bragði sem minnir á græn epli og vínþrúgur. Þetta vín er
einnig ágætt með soðnum silungi með kartöflum og bræddu
smjöri á la mamma. Vinsælt er að grilla silung og er hann þá oft
kryddaður á ýmsa lund og með honum er þá iðulega höfð köld
sósa þar sem uppistaðan er majones og/eða sýrður ijómi. Var-
ast skal að hafa silunginn of lengi á grillinu því þá verður hann
of þurr. Riesling vín frá Alsace í Frakklandi er ljómandi gott
VÍNUiyiFJáLLUN SIGMflRS B.
með glóðarsteiktum silungi, t.d. Hugel Riesling 1998 á 1.280 kr.,
þetta er ferskt vín, létt og sýruríkt.
Reyktur lax og grafinn Yfirleitt er boðið upp á bjór með reykt-
um laxi. En það er ekkert að því að hafa gott hvítvín með rétt-
um þar sem reyktur lax er í aðalhlutverki. Ef við höldum aftur
til Alsace þá má mæla með hinu magnaða víni Pfaffenheim
Tokay Pinot Gris Reserve 1998 á 1.630 kr. Þetta vín passar frá-
bærlega með reyktum laxi og af þessu víni er milt ávaxtabragð
og ferskt. Með graflaxi má einnig hafa vín frá Alsace, hér er um
að ræða mjög bragðmikið vín, þurrt og kryddað, Dopff og
frion Gewurztraminer 1999 á 1.440 kr. Graflaxinn er kryddað-
ur með dilli og hvítum pipar, sykri og salti og með honum er
höfð krydduð sinnepssósa. Þess vegna dugar ekkert minna en
öflugt vín eins og Gewurztraminer. Þá er gráupplagt að drekka
rauðvín með graflaxi og reyktum laxi. Öflug ítölsk vín eru vel
til þess fallin, einkum þó og sér í lagi vínin frá Piemonte. I Rik-
inu er til ágætis vín sem mæla má með, Castello del Poggio
Barbera d’Asti 1997 á 1.190 kr.
Rauðvín - lax og Silungur Það er svo sannarlega ekkert að því
að drekka rauðvín með laxi og silungi fyrir þá sem það vilja.
Heppilegustu rauðvínin með laxi og silungi eru vín sem ekki eru
mjög sýru- og tanninrík, vín sem eru frekar mild. Kjörin rauðvín
með laxi og silungi eru vínin frá Beaujolais og þar má mæla með
Georges Duboeuf Morgon 1999 á 1.160 kr. Þetta er létt, ferskt
og ávaxtaríkt vin. Þá eru áhugaverð Malbec vín frá Argentínu,
mjög góð með laxi og silungi. Weinert Malbec 1995 á 1.370 kr.
er flott vín, bragðmikið, kryddað og ögrandi.B!]
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum með laxi og silungi:
Hvítvín
Domaine Laroche Chablis Saint Vieilles Vignes 1999, kr. 1.510,-
Lindemans Padthaway Chardonnay 1998, kr. 1.590,-
Cháteau du Cléray Muscadet de Sevre et Maine sur Lie 1999, kr. 1.100,-
Joseph Drouhin Saint-Veran 1998, kr. 1.250,-
Montana Marlborough Sauvignon Blanc 2000, kr. 1.300,-
Hugel Riesling 1998, kr. 1.280,-
Pfaffenheim Tokay Pinot Gris Reserve 1998, kr. 1.630,-
Dopff og Irion Gewurztraminer 1999, kr. 1.440,-
Rauðvín
Castello del Poggio Barbera d'Asti 1997, kr. 1.190,-
Georges Duboeuf Morgon 1999, kr. 1.160,-
Weinert Malbec 1995, kr. 1.370,-
71