Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 19
Gengi hlutabréfa í Hraðfrystihúsi,
Eskifjarðar síðustu tólf mánuði
Elfar Aðalsteinsson, forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar.
„Við erum áhugamenn um uþpbyggingu á Austurlandi í
hvaða formi sem hún kann að koma. Samfélagsleg
ábyrgð okkar hefur einnig verið mikil og það vceri ágcett
efstórt fyrirtœki kœmi hér til að deila henni með okkurf
segir Elfar.
Stærstuhluthaí?E
.. 35,78%
Grandi ..................... 7,23%
Skeljungurhf...................... 6,52%
Tryggingamiðstöðm ................ 3,95%
Elfar ............................. 335%
Porsteinn Kristjánsson ..... 3,80%
Burðarás ................... 3,15%
Kristinn Aðalsteinsson...... g ^6%
Lífeyrissjóður Austurlands........ 2,20%
Eskjaehf...................... 1,54%
Lífeyrissjóður verkfræðinga .... 1 22%
Lífeyrissjóðurinn Framsýn ......' n’16%
WÍBhf.......................... o',B4%
Hraðfrystihús Eskifiarðar ht.. Q 580/o
Lífeyrissjóður Norðurlands...... ^
Próunarfélag islands .........
myndast í fyrirtækinu og hún er líka verðmæti. Þá
hefur verið ótti við ofveiði úr stofninum en ýmsar
þjóðir, þar á meðal Islendingar, hafa reynt að sýna
gott fordæmi og dregið úr veiðum. Norðmenn æda
þó að auka heildarveiði sína. „Við leggjum þunga
áherslu á að stundaðar verði ábyrgar fiskveiðar úr
þessum stofni sem öðrum. Það síðasta sem við viljum
er að ganga svo hart að kolmunnanum að hann hljóti
skaða af. Það stríðir gegn okkar heildarhags-
munum,“ segir Elfar.
- Er ekki æskilegt að reyna að ná jafiivægi í rekstr-
inum?
Jú, það er æskilegt. Rétt fyrir áramótin í fyrra
keyptum við útgerðarfélagið Vísi í Sandgerði, sem
hafði yfir 550 þorskígildistonnum að ráða. Kaupin
voru gerð með það fyrir augum að styrkja hráefnis-
öflun fyrir bolfiskvinnsluna og nýta togara félagsins
betur. Bátinn seldum við svo skömmu síðar án veiði-
heimilda. Við búum, eins og mörg sjávarútvegsfyrir-
tæki, við umfram veiði- og vinnslugetu en stefna
okkar er að reyna að styrkja hliðardeildir fyrirtækis-
ins jafnt og þétt til þess að jafna sveiflur og nýta betur
okkar framleiðslutæki. Við erum yfirvigtaðir í upp-
sjávarfiski en Vísiskaupin voru fyrsta skrefið í því að
styrkja okkur á öðrum sviðum,“ segir hann.
Frekar góðir en stórir Hjá Hraðfrystihúsinu er
áherslan ekki á stærð heldur gæði. „Við leggjum
enga sérstaka áherslu á að vaxa hröðum skrefum í
það að verða stórfyrirtæki. Ég hef stundum sagt að
við viljum frekar einbeita okkur að því að verða góðir