Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 22
„Samherji er með álíka sýn og við hvað fiskeldi varðar sem segir okkur að þeir séu líka framsýnir. Við erum lika að þrófa ýmislegt sem Sam- herji er ekki að þrófa, t.d. hlýraeldi. Hlýri er mjög góður matfiskur og því vonandi að þetta takist. Svo erum við með þorsk í kvíum því að við teljum að eldi á fiski verði mikið á næstu árum og viljum jylgja þeirri þróun,“ segir Björgólfur. Björgólfur Jóhannsson: Á fullu í nýjum verkeínum Bjartsýni ríkir hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, afkoman þokkaleg í fyrra og loðnuvertíðin í vetur hefur verið frábær og horfurnar fyrir árið í heild sinni góðar. Nú verður tækifærið notað tíl að greiða niður skuldir fyrirtækisins eftír uppbyggingu síðustu ára. Rekstur Síldarvinnslunnar hefur gengið prýðilega að undan- förnu þó að lestur ársreikninga félagsins fyrir síðasta ár sé svo- lítið „undarlegur" og það þrátt fyrir ágætis árferði í fyrra, að mati Björgólfs Jóhannssonar forstjóra, - ársreikningur félags- ins fyrir síðasta ár einkennist af verulegum ijármagnskostnaði. „Miklar hræringar urðu í gengisskráningu krónunnar - hún féll mikið á árinu - sem er auðvitað gott fyrir okkur til lengri tíma litið, því að allar okkar tekjur koma í erlendum gjaldeyri. Skuldastaða fyrirtækisins er há og að mestu leyti í erlendum gjaldmiðlum þannig að ijármagnsgjöldin voru há. En árið var gott ef horft er til þess hverju reksturinn skilaði fyrir afskriftir og fjármagnskostnað. Rekstrartekjur fyrirtækisins voru 4.591 milljónir króna, hagnaður fyrir afskriftir 1.585 milljónir, sem er yfir 35% af tekjum. Það er mjög gott. En afskriftirnar voru óneitanlega háar,“ segir Björgólfur. Kaldir í fjárfestinyum Síldarvinnslan var stofnuð í desember 1957 og átti að reisa og reka síldarverksmiðju, síldarverkun og skyldan atvinnurekstur í Neskaupstað. í dag rekur Síldar- vinnslan viðamikla atvinnustarfsemi í bænum, fiskimjölsverk- smiðju, fiskiðjuver fyrir bolfisk og uppsjávarfisk og útgerð fjögurra skipa auk þess sem fyrirtækið á meirihluta í Barðsnesi ehf., sem gerir út eitt skip og rekur loðnuverksmiðju í Sand- gerði. Þai- að auki á Síldarvinnslan hluti í öðrum fyrirtækjum. Síldarvinnslan hefur flárfest mikið undanfarin ár. Frá 1995 hefur fyrirtækið byggt upp vinnslu og veiðar á uppsjávarfiski, skip og fiskimjölsverksmiðja hafa verið endurbyggð og nýtt frystihús hefur verið byggt í Neskaupstað. í frystihúsinu er ekki bara frysting á uppsjávarfiski heldur líka bolfiskfrysting, sem hleypt var af stokkunum árið 2000. Þá er búið að byggja stóra frysti- geymslu og kæligeymslu þannig að „við höfum verið mjög kaldir í íjárfestingum undanfarin ár. Það er að skila sér núna.“ Skuldir og skuldbindingar Síldarvinnslunnar námu 6,2 millj- örðum króna í árslok 2001. VeltuJjármunir voru 2,3 milljarðar þannig að nettóskuldir námu um 4 milljörðum króna. „Skuld- irnar eru miklar en árferðið er gott og því ágætis tækifæri til að greiða niður. Það er í sjálfu sér allt í lagi að skulda mikið meðan rekstrartekjurnar eru vel yfir skuldum. Markmið næstu mánaða er að greiða niður skuldir og því eru engar íjárfestingar á döfinni í grunnstarfsemi fyrirtækisins. En ég tek fram að við erum á fullu í nýjum verkefnum. Við höfum t.d. tekið stór skref í laxeldi. 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.