Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.03.2002, Blaðsíða 42
teljum okkur hafa svolítið sérstaka stöðu, við erum eina fyrirtækið sem er mótvægi við risana á matvörumarkaðinum, og við finnum að fólk vill hafa okkur hér áfram,“ segir Sveinn. Sigurbergur Sveinsson, forstjóri Fjarðarkaupa, t grœnmetisdeild verslunarinnar. Hann stofnadi Fjarðarkaup fyrir 30 árum ásamt Bjarna Blomsterberg kaupmanni, og Jjölskyldum beggja. þessum geira í dag. A síðustu fimm til sex árum hefur matvöru- verslunin færst inn í risakeðjur sem eru í eigu banka og lífeyris- sjóða og við höfum varla undan að fylgjast með breytingunum. Þrátt fyrir blóðug átök höfum við fundið góðan meðbyr, rekstur- inn hefur gengið mjög vel. Fyrirtækið hefur staðið af sér allar sviptingar. Við finnum mikinn stuðning frá okkar viðskipta- vinum og það hefur gefið okkur ástæðu til að halda áfram. Við Ekki reist hallir Fjarðarkaup hafa í gegnum tíðina verið rekin með einföld markmið að leiðarljósi, að selja vörur sem fólkið vill kaupa. Fyrirtækið hefur ekki staðið í miklum flárfestingum og ekki hefur verið um íburð að ræða í útliti og innréttingum, eins og menn hafa stundum farið flatt á. „Við höfum ekki reist hallir utan um hveiti og sykur sem ekki á að vera svo flókið að selja,“ segir Sveinn. „Kaupmenn hafa flaskað á því að byggja yfir sig. Við höfum verið með þessa einingu og ekki verið að flækjast neitt út um hvippinn og hvappinn. Fyrir- tækið hefur frá fyrsta degi skilað hagn- aði. Skuldirnar eru ekki stórar þannig að við erum ekki að greiða fjármagnskostnað eða lenda í gengistapi. Við stöndum sjálfstæðir og erum ekki með neinn skuldabagga. Hjá stærstu samkeppnisaðilum okkar eru miklar skuldir og griðarlegar arð- semiskröfur gerðar og auðvitað hlýtur það að koma niður á vöruverðinu. Þetta gefúr okkur aukið svigrúm og við getum leikið okkur eins og okkur sýnist,“ segir hann. Höfum sérstöðu. „Fyrirtækið hefur staðið af sér allar sviptingar. Við finnum mikinn stuðning frá okkar viðskiptavinum og það hefur gefið okkur ástæðu til að halda áfram. Við teljum okkur hafa svolítið sérstaka stöðu, við erum eina fyrirtækið sem er mótvægi við risana á matvörumarkaðinum, og við finnum að fólk vill hafa okkur hér áfram.“ Saga Fjarðarkaupa Stórmarkaðurinn Fjarðarkaup í Hafnarfirði var stofnaður sem lágvöruverðsverslun fyrir tæpum 30 árum af Sigur- bergi Sveinssyni endurskoðanda og Bjarna Blomster- berg kaupmanni og ijölskyldum þeirra. Bjarni hafði lengi átt þann draum að opna lágvöruverðsverslun af þessu tagi þar sem einfaldleikinn væri í fyrirrúmi. Hann kom að máli við Sigurberg og opnuðu þeir félagarnir fyrstu verslunina í 300 fermetra húsnæði að Trönuhrauni 1 í Hafnarfirði í júlíbyrjun árið 1973. Verslunin hlaut góðan hljómgrunn strax frá fyrsta degi, sérstaklega hjá Hafnfirðingum. Strax í upphafi var mörkuð sú stefna að Fjarðarkaup skyldu vera lágvöruverðs- verslun með gott úrval og vandaðar vörur. Þessi stefna er enn í fullu gildi. Samkvæmt verðkönnunum hafa Fjarðarkaup verið ódýrasti stórmarkaðurinn í fjölda ára og segir Sveinn stefnuna þá að halda sig áfram á þeirri syllu. Arið 1982 var verslunin Fjarðarkaup flutt í stærra hús- næði, nýbyggingu að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði og þar er verslunin enn. Flutningurinn var ansi stórt stökk á þeim tíma. Nýja húsnæðið var um 1.800 fermetrar að stærð, þar af fóru um 800 fermetrar undir lager, og voru fyrstu mánuðirnir ekki teknir út með sældinni enda þótti stökkið glæfralegt því að ekki var byrjað að byggja hverfið upp og þótti verslunin því víðs tjarri mannanna byggðum. Sveinn segir að viðskiptavinir hafi þurft að fara yfir Reykjanesbrautina til að komast í versl- unina og það hafi verið mikil hindrun til að byrja með. í hálft ár eftir flutninginn hafi verið þungi í rekstrinum, það hafi verið erfiðasta tímabilið í sögu fyrirtækisins en smám saman hafi viðskiptavinirnir tekið við sér aftur. Nú sé löngu komið í ljós að staðsetningin sé miðsvæðis og þægileg með tilliti til umferðarinnar. Á nýja staðnum hafa Fjarðarkaup áunnið sér vinsældir meðal fólks í nærsveitum og er nú svo komið að yfir 40 prósent viðskiptavina búa utan Hafnarflarðar. 300 bílastæði Fjarðarkaup hafa í dag yfir 4.500 fermetra yfirráðasvæði, um 300 bílastæði og óvenju rúmgóða aðkomu sem ekki skiptir litlu máli í matvöruverslun í dag. Fyrir fimm 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.