Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Side 28

Frjáls verslun - 01.03.2002, Side 28
OVENJULEG ÁTÖK fl DAGBLAÐAMARKAÐI Þótt nokkrir afstærstu fjölmiólum landsins eigi á brattann að sækja beinast flestra augu að lífróðri feðganna í Frjálsri fjölmiðlun, Sveins R. Eyjólfs- sonar og sonar hans, Eyjóljs, og hinu mikla hatri sem rikir á milli þeirra og núverandi eigenda DV. Fréttablaðið er vonarneisti Frjálsrarfjölmiðlunar - en óvíst erhvortþað dugi til að bjarga fjárhags- vandræðum feðganna. Fréttaskýring eftir Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson Lffið er hverfult! Hver hefði trúað því að Jónas Kristjánsson rit- stjóri yrði ekki eilífur á DV og að ijölmiðlakóngurinn Sveinn R. Eyjólfsson og sonur hans Eyjólfur ættu eftír að róa mikinn lífróður með félag sitt, Frjálsa fjölmiðlun, sem og önnur félög sem þeir eiga? Enginn! Og hvað þá að þeir feðgar kæmu sér í slika skuldastöðu í bönkunum að þeir yrðu að selja DV og myndu um leið heíja grimmilega baráttu með Fréttablaðinu við sinn gamla íjölmiðil þar sem einskis er freistað til að koma höggi á hann? Það er ekki á hveijum degi sem viðskiptalffið verður vitni að átökum af þessu tagi þar sem einhver selur öðrum fyrii'tæki á hundruð milljóna króna og byrjar svo að keppa við það sem aldrei fyrr. En svona er blaðamarkaðurinn á Islandi í dag! Lifir Fréttablaðið af? Hvort Fréttablaðið, sem dreift er ókeypis í öll hús á höfuðborgarsvæðinu og náð hefur að festa sig vel í sessi á meðal lesenda, lifir af vegna tapreksturs og skulda skal ósagt látíð. Margir trúa því ekki að þetta viðskiptamódel gangi upp; það að hafa enga áskrifendur og verða einungis að lifa á aug- lýsingatekjum. Fréttablaðinu hefur verið spáð andláti frá fyrsta degi - en síðan er liðið eitt ár! Það versta sem gæti hent keppi- nauta Fréttablaðsins á dagblaðamarkaðnum, DV og Morgun- blaðið, væri að einhver íjársterkur kæmi inn í Fréttablaðið og keypti það. Hvort það gæti forðað Fijálsri tjölmiðlun frá gjaldþroti er óvíst, en bankarnir myndu þó anda eitthvað léttar. Auk DV hafa feðgarnir selt hlut sinn í Islandsbanka og fór það allt upp í skuldir, en Eyjólfur var varaformaður bankaráðs Islandsbanka til skamms tíma. Þeir misstu 5% hlut sinn, þ.e. hlut Oháða tjárfestingarsjóðsins, í Islenskum aðalverktökum til Kaupþings og er óvíst hvort takist að forða sjóðnum frá gjaldþroti Lífróð því Kaupþing mun íhuga að ganga fram af hörku gagnvart honum. Þá gekk Landsbankinn að bréfum þeirra í Haraldi Böðv- arssyni að handveði og setti afganginn í innheimtu. Landsbank- inn hefur sömuleiðis tekið Hampiðjuhúsið gamla upp í skuldir. Vanskil Isafoldarprentsmiðju eru veruleg, m.a. annars gagnvart þeim sem hefur leigt þeim húsnæðið. Þá hafa þeir misst DV út úr gamla DV-húsinu í Þverholtí og er talið líklegast að Fréttablaðið fari þar inn á næstunni. DV flutti á dögunum í gamla Tónabæjar- húsið við Skaftahlíðina og vill með því losna við ímynd þeirra feðga sem tengist húsinu í Þverholtí. Víða vandræði á fjölmiðlamarkaði Það er fyrst og fremst vegna þess hve þekktir feðgarnir eru að vandræði þeirra eru eitt helsta umræðuefnið í viðskiptalffinu um þessar mundir. Því fer þó ijarri að þeir séu einir í vanda á tjölmiðlamarkaðnum. Norðurljós og SkjárEinn beijast fyrir tilveru sinni, RUV er rekið með bullandi tapi á kostnað skattborgara, DV siglir langt í frá lygnan sjó, Edda -margmiðlun leitar að bjargvætti og síðasta ár var útgáfufélaginu Fróða ekki hagstætt. Risinn á markaðnum, Morgunblaðið, er tjár- hagslega afar sterkur, en tekjur hans og hagnaður hafa engu að síður dregist saman. Fréttablaðið hefur augljóslega gert Morg- unblaðinu og DV mikinn grikk með undirboðum á auglýsinga- markaðnum og sömuleiðis höggvið skarð í áskrifendahóp þeirra. Sömu sögu má segja um SkjáEinn gagnvart Norðurljósum. Svo veikburða er SkjárEinn og framtíð hans óviss að það hljómar eins og síðbúið aprilgabb að lesa um það að Jjárvana eigendur hans vilji komast yfir Stöð 2 og Sýn og að fúlltrúar hans hafi farið til London til að ræða við lánadrottna Norðurljósa. Einhver hefði haldið að það yrði á hinn veginn - eða þá jafnvel að bankarnir létu pússa stöðvarnar saman. Það er augljóst að auglýsingatekjur SkjáEins er einmitt sú flárhæð sem Norðurljós vantar inn í rekstur sinn til að geta staðið í skilum við lánadrottna. Einhver gæti dregið þá ályktun af ferð SkjáEins-manna tíl London að einhveijir stórflárfestar biðu í startholunum og vildu koma að dæminu, þ.e. ef stöðv- arnar yrðu sameinaðar; að það sé viðskiptahugmyndin. Otrúlega slæm skuldastaða feðganna í Frjálsri fjölmiðlun, sem gefur út Frétta- blaðið, skyggir á flest annað á markaði fjölmiðla um þessar mundir og er þó af ýmsu að taka. Útlitið er svart fyrir þá. Skylmingum þeirra með Fréttablaðið er hins vegar ekki enn lokið og takast þeir ekki síst á við sinn gamla fjölmiðil, DV. 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.