Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 58
IVlflRKflÐSWflL GflGNVIRKflR flUGLYSINGAR
Þú færð auglýsingu
Plúsinn er gagnvirkur auglýsinga-
miðill þar sem viðtakandi fær að
eigin ósk sendar til sín myndrænar
og gagnvirkar auglýsingar í tölvupósti til
skrárðra félaga. Auglýsandinn fær á
örskömmum tíma mikilvægar upplýs-
ingar um áhuga, eftirtekt og síðast en
ekki síst skilning á skilaboðunum sem
hann er að senda frá sér.
Þad er langur vegur frá lítt áber-
andi og hógværum dagblaðsaug-
lýsingum fyrri tíma til þess að fá
sendar persónugerðar og sér-
hæfðar auglýsingar í tölvupósti.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
Greinir upplýsingarnar Plúsinn er í stuttu
máli byggður upp á þvi að fólk skráir nafn sitt og ýmsar upplýs-
ingar á netsíðu www.plus.is og samþykkir að það fái sendar til sín
gagnvirkar auglýsingar og hversu oft. Fyrir að bregðast við aug-
lýsingunni er einn Plúsfélagi dreginn út af handahófi eftir hveija
sendingu og greidd ákveðin upphæð. Greindar eru upplýsingar
sem nýtast til að flokka þá sem svara eftir kyni, aldri og hjú-
skaparstöðu og einnig eftir áhugamálum, menntun og búsetu.
Þessar upplýsingar standa auglýsandanum til boða og veita
honum nánari hugmyndir um viðtökur skilaboðanna sem hann
er að senda tfá sér. „Úrvalið í miðlun auglýsinga hefur aukist, á
því er ekki nokkur vafi, sífellt fá auglýsendur fleiri valmöguleika
tíl að nálgast viðskiptavini sína,“ segir Astþór Jóhannsson sem
stendur að hinu nýja fyrirtæki ásamt Birni Brynjólti Björnssyni
og fleirum sem hafa langa reynslu af starfi við markaðsmál og
framleiðslu auglýsinga. Plúsinn hefur aðsetur í Klakinu hjá
Nýheija í Borgartúni og í samvinnu við Nýherja er hugbúnaður-
inn að baki Plússins þróaður og hafa ýmsar góðar hugmyndir á
sviði nýrrar tækni tengdar hugbúnaðarþróun litið dagsins ljós.
Gagnvirkir miðlar dafna „Netið er að verða sjálfsögð sam-
skipta- og upplýsingaleið hjá sífellt stærri hópi fólks á öllum
aldri auk þess sem burðargeta og hraði Internetsins gerir það
að verkum að auðveldara er að senda og nálgast gögn og upp-
lýsingar,“ segir Ástþór. „Tæknilega var þetta illframkvæman-
legt til skamms tíma, vegna þess að tjöldi móttakenda á hinum
endanum var ekki nægjanlegur. Hugtök eins og háhraði og
sítenging voru til skamms tíma aðeins á færi fárra öflugra
fýrirtækja eða einstaklinga sem voru
mjög áhugasamir um Netið. í dag er
þessi tækni að verða jafn sjálfsögð á
heimilum og rennandi vatn í krananum
og það er í þessu nýja umhverfi sem
gagnvirkir miðlar munu þróast og dafna.
Fyrir framan tölvuna er að verða jafn
áhugaverður og tjölbreyttur markhópur
á hverjum degi og hópurinn sem situr
tyrir framan sjónvarp, útvarp eða blöð.
En rétt eins og þessir miðlar hafa hver
sína sérstöðu, markhópa og nálgunarmöguleika þá býður
Plus.is enn eina nálgunina. Skoðandinn bregst við og lætur
álit sitt í ljós.“
Boðflennur á Skjánum Netið sem auglýsingamiðill hefur
verið í mikilli þróun undanfarin ár. Eitt af því sem vandasamt
hefur verið er útfærsla og sannanleg virkni. En það má svo
sem einnig segja um aðrar hefðbundnari leiðir i auglýsinga-
miðlun. Eru borðar frekar skoðaðir en auglýsing sem flett er
hratt yfir eða auglýsing á skjá sem er tjarlægð með tjarstýr-
ingunni? Mikið af auglýsingum á Netinu hafa haft á sér hálf-
gerðan boðflennustimpil. Þær birtast á skjánum óboðnar og
eru snarlega háfaðar burt. „Hugsanlega verður það vand-
kvæðum bundið í framtíðinni að senda hverjum sem er hvað
sem er,“ segir Ástþór. „Hver og einn verður að veita leyfi fýrir
því sem hann vill fá og þurfa þá auglýsendur að lúta því að
hluta. Netverjar eru viðkvæmir fyrir því sem er verið að
senda á þá og reglur segja til um í auknum mæli hvernig má
nálgast annað fólk á Netinu.
Það er meðal annars þess vegna sem við teljum Plúsinn
sterka leið til að miðla skilaboðum sem kreljast eftirtektar. Ná-
kvæmlega eins og til er hópur fólks sem ekki vill sjá auglýs-
ingar í neinu formi, er til mjög áhugasamur hópur fólks sem
hefur gaman af því að fá margvísleg skilaboð í formi auglýs-
inga. Þessi hópur er einnig líklegri til þess að fylgjast almennt
betur með því sem er að gerast í kringum hann og vill geta
valið úr mismunandi kostum og leiðum.“
Plúsinn
©©¥ ® ©
Hvad vllt þii lielst gera I siimarfriltm þlnu?
Spurt hvað fólk vilji gera í sumarfrí-
inu og flokkað eftir svörum.
í^lúsinn
®©¥ ® ©
Hver þessara sjónvarpsauglýsinga fínnst þér best?
Jffi i
Spurt um það hvernig fólki falli
ákveðnar sjónvarpsauglýsingar.
Sérhvert spor
^^6^00^ léttara!
Greidsluþjónusta íslandsbanka
tryggir þaegindi og stöduglelka
í fjármálum fjölskyldunnar
Hver finnst þér besti kosturinn
vid Greiðsluþjónustu íslandsbanka?
Greiðsluþjónusta íslandsbanka.
58