Frjáls verslun - 01.03.2002, Síða 63
VIÐTflL EFNflHAGSMÁL
ur og rauða strikið
Rauða strikið er mál málanna í dag og verður um
miðjan maí þegar útreikningar Hagstofunnar á
neysluverðsvísitölunni verða birtir og í Ijós kemur
hvort vísitalan heldursig réttu megin við strikið
eða skýst upp fyrirþað. Rósmundur Guðnason,
deildarstjóri hjá Hagstofunni, er maðurinn á rauða
strikinu, maðurinn sem reiknar út vísitöluna.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Olafsson
Rauða strikið hefur vakið þjóðarathygli undanfarna mánuði
og misseri og um miðjan maí kemur svarið við því hvort
rauða strikið heldur eða hvort kjarasamningar verða teknir
upp. Þeir eru efalaust margir sem spyija sig þeirrar spurningar
hvað þetta rauða strik sé eiginlega og hvernig það sé búið til því
að ekki liggur það beinlínis í augum uppi. Til að upplýsa strax
um þetta blessaða rauða strik er rétt að taka fram að þetta er
strik, sem samtök atvinnulífs og launafólks drógu með sérstöku
samkomulagi í desember sl. og miðast við að halda verðbólg-
unni í skefjum. Neysluverðsvísitalan er mælikvarði, nokkurs
konar hitamælir, á verðbreytingar í landinu. Miðað er við að
neysluverðsvísitalan fari ekki upp fyrir 222,5 stig og það hefur
verið eitt aðal umræðuefni manna á meðal síðustu mánuði. Um
miðjan mars var vísitalan 221,8 stig og 221,9 stig um miðjan
apríl. Það munar því litlu. Vísitölustigið, sem allt snýst um,
verður svo birt 14. maí og þá kemur endanlega í ljós hvernig fer
með kjarasamninga landsmanna.
Matvara, húsnæði og bíll Það er vösk sveit fjögurra starfs-
manna á vísitöludeild Hagstofunnar sem stendur að vísitölu-
útreikningunum og er það Rósmundur Guðnason, deildar-
stjóri vísitöludeildar, sem stýrir vísitöluvinnunni. Hann hefur
tekið að sér að útskýra málið fyrir lesendum Frjálsrar versl-
unar. „Við reiknum út nokkrar vísitölur, ekki bara neyslu-
verðsvísitöluna, en að baki henni liggur umfangsmikil verð-
söfnun, umfangsmesta vinnan og kannski best þekkta
aðferðafræðin. Við erum með verðtökumenn víðs vegar um
landið og á höfuðborgarsvæðinu, sem fara í verslanir í
hverjum mánuði og athuga hvað ákveðnar vörur kosta. Við
söfnum um 15 þúsund verðum fyrir hverja vísitölumælingu
þannig að það er umfangsmikil verðsöfnun sem liggur að baki
þessum mælingum," segir Rósmundur.
Neysluverðsvísitalan er reist á grunni, sem fæst úr
neyslukönnun meðal almennings. Þessar neyslurannsóknir voru
gerðar á fimm ára fresti en nú hafa þær verið óslitið í gangi allan
ársins hring frá árinu 2000 og gefa því ómetanlegar upplýsingar
um neyslu landsmanna og neysluþróunina. Urtakið mynda 1200
ijölskyldur á hveiju ári og eru þær beðnar um að halda bókhald
yfir útgjöld sín. Þátttakan er um 50-60 prósent. Úrtakið er valið
handahófskennt úr þjóðskrá og hópnum skipt niður á 26 tímabil
yfir árið þannig að hver ljölskylda heldur bókhald í tvær vikur.
Bókhaldið er einfalt í vinnslu miðað við það sem áður var þvi að í
dag geta þátttakendur skilað inn strimlum úr búðum. Hvað
varðar útgjöld vegna síma geta starfsmenn Hagstofunnar fengið
leyfi hjá þátttakendum til að fá reikninga hjá símafyrirtækjunum
og til viðbótar fara spyrlar frá Hagstofunni í heimsókn til fólks til
að spyija um stærri og kannski sjaldgæfari útgjöld, t.d. húsnæði
og bíl. Matvaia stendur fyrir um 17-18 prósent útgjaldanna,
rekstur á bíl og húsnæði fyrir eitthvað minna.
Bábiljan um Bónus Samkvæmt lögum eiga verðtökumenn
Hagstofunnar að vera á ferðinni tvo fyrstu virku dagana í mánuði
og er vísitalan birt á áttunda virka degi efdr mælingu. A þessum
tíma er farið yfir verðin 15 þúsund, niðurstöðum steypt í eina
heild og dæmigerðar neysluvörur valdar í neyslugi'unn. Einu
sinni í mánuði er svo kannað hvað þær kosta, reiknað og öll álita-
mál skoðuð og tekin afstaða til þeirra. „Við söfiium gögnum enn
frekar með því að hringja í verslanir, sérstaklega ef ekki er um
margar vörur að ræða, og við söfiium einnig upplýsingum á faxi
og með rafrænum hætti. Við höfum verið mjög lengi í samstarfi
við matvöruverslanir og njótum mikillar velvildar úti í þjóðfélag-
inu. Margir leggja sig í framkróka um að aðstoða okkur og eru
tilbúnir til að gera það enda er öllum Islendingum ljóst hversu
mikilvægur þessi mælikvarði er,“ segir hann.
- Starfsmenn Hagstofunnar hafa verið gagnrýndir fyrir að taka
Bónus ekki með í þessa könnun.
„Það er alrangt að við skiljum Bónus eftir. Bónus hefur verið
með nánast frá upphafi, eða að minnsta kosti mjög lengi. Það
virðist einhvern veginn sá misskilningur hafa komist á kreik
að við sleppum einhverjum verslunum en við getum sagt að
inni í könnuninni eru allar verslanir sem skipta máli, sem eru
mjög margar og mjög margar vörur, engin undanskilin. Þetta
er bara einhver bábilja, sögusögn sem ekki er á rökum reist,“
svarar hann.
Vísitalan er ekki rauða Strlkíð Stundum er neysluverðsvísi-
tölunni blandað saman við rauða strikið en Rósmundur segir
Neysluverðsvísitalan er mælikvarði, nokkurs konar hitamælir, á verðbreytingar í landinu.
Miðað er við að neysluverðsvísitalan fari ekki upp fyrir 222,5 stig. Um miðjan apríl var
vísitalan 221,9 stig og munar því litlu. Vísitölustigið, sem allt snýst um, verður svo birt 14.
maí og þá kemur endanlega í Ijós hvernig fer með kjarasamninga landsmanna.
63