Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 70

Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 70
Þorsteinn Geirsson, framkuæmdastjóri Smartkorta. Mörg kort í einu korti Smartkort hf. hefur lokið við tæknilega útfærslu nýs smartkorts, sem hlotið hefur nafnið PAX. Smartkort hf. hefur lokið uið tæknilega útfærslu nýs smartkorts, sem hlotið hefur nafnið PAX. PAK-kortið er fjoinota smartkort sem hefur að geyma rafeyrisbuddur eða rafræn suæði fyrir fleiri tugi þjónustuaðila. Huert suæði er einstakt og mun tilheyra ein- um ákueðnum uiðskiptaaðila. T.d. nýtir fþrótta- og tómstundaráð Reykjauikur (ÍTR) eina buddu fyrir sundmiða. Aðra buddu mætti nota fyrir strætómiða og þá þriðju fyrir matarmiða og rafeyri sem nem- endur grunnskola nota til greiðslu í mötuneytum. Suona mætti lengi telja þuí möguleikar kortsins eru miklir. ÍTR hefur fest kaup á 50.000 PAX-kortum sem Smartkort hf. mun afhenda í ágúst 2002. ÍTR hefur tryggt borgarstofnunum hluta PAX-kortsins, en Smartkort hf. mun bjóSa öðrum fyrirtækjum og stofnunum þau svæði sem enn er óúthlutað. Kortið getur t.d. nýst sem starfsmannaskírteini, aðgangskort og greiðslumiðill innan fyrir- tækja og á sama tíma veitt aðgang að þjónustu fjölmargra þjónustu- aðila utan fyrirtækisins. Þannig gæti starfsmaður nýtt kortið sem rafeyriskort innan fyrirtækisins og sem aðgangskort að sundstöðum og strætó svo nokkur dæmi séu nefnd. Rafeyrishleðslur geta starfs- menn skuldfært í launakerfi fyrirtækisins og má því segja að greiðsla fyrir veitta þjónustu innan fyrirtækisins sé greidd eftir á en forgreidd þegar korthafi notar kortið utan vinnustaðar. Þjónustuaðilar sem nýta PAX-kortið geta hlaðið forgreiddum ein- ingum, skiptum eða gildistíma á kortið. T.d. gæti unglingur geymt árskort í sund og 1 □ matarmiða eða rafeyri sem nota má í mötu- neyti eins grunnskóla borgarinnar í PAX kortinu. Korthafar geta fyllt á kortið eftir þörfum í greiðslukortaposum eða með hjálp annarra jaðartækja s.s. GSM-síma og einkatölva. Smartkort hf. hefur á boðstólum sérstakar rafeyris-hleðsIustöðvar fyrir fyrirtæki. PAX-kortið er snertikort sem stungið er í rauf á lesara en snerti- laus kort, sem borin eru upp að lesara, eru einnig fáanleg. Séu fyrir- tæki með starfsmannakort má koma fyrir á kortum starfsmanna snertilausri örflögu sem opnar nýjar víddir notkunar bæði innan sem utan vinnustaðarins. Smartkort hf. hefur gert samninga við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) um smartkortakerfi fyrir alla sundstaði borgarinnar sem og um uppsetningu prufukerfis fyrir Strætó bs. Nemendur 10. bekkjar Kársnesskóla í Kópavogi hafa fengið afhent smartkort, bæði snerti- og snertilaus, til notkunar í strætó. Tilgangur verkefnisins er að kanna hvort smartkort séu heppilegur greiðslumáti fyrir farþega Strætó bs. og hinsvegar sá að skera úr um hvort snerti- eða snerti- laus kort henti betur sem rafrænn greiðslumiðill í strætó. llppsetn- ingu smartkortakerfis er lokið í Árbæjar- og Grafarvogslaug, en upp- setningu kerfisins á öðrum sundstöðum lýkur í sumar. Smartkort hf. - fyrirtækið Smartkort hf. var stofnað árið 1996 og hefur sérhæft sig í vél- og hugbúnaði tengdum smartkortatækni. Meðal viðskiptavina Smart- korta eru íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, Strætó, íslensk erfðagreining, Borgarhöllin í Grafarvogi, Bláa lónið, Kársnesskóli, Stúdentagarðar Háskóla íslands, Viðskiptaháskólinn að Bifröst, Hlíðasmára 12 • 201 Kópavogur Fríkirkjuvegi 11 Sfmi: 544 4010 • Fax: 544 4015 101 Reykjavík www.smartkort.is Sími: 510 6600 70 lil'MMillllílil

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.