Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 72

Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 72
Guðmundur Arason, framkvœmdastjóri Securitas hf., fyrir framan nýjustu tegundir myndavélakerfa. „Við bjóðum upp á margskonar búnað til að verja fyrirtæki gegn þjófnaði og inn- brotum, s.s. inn- brotsviðvörunarkerfi, myndavélakerfi og aðgangsstýrikerfi," segir Guðmundur Arason, framkvæmda- stjóri Securitas. Tæknibúnaður og öryggisgæsla M: Iyndavélar, innbrotsviðvörunar- kerfi og aðgangsstýrikerfi eru ekki jafn sýnileg en þó stór hluti og vaxandi í starfsemi Securitas. „Við bjóðum upp á margskonar búnað til að veija fyrirtæki gegn þjófnaði og inn- brotum, s.s. innbrotsviðvörunarkerfi, myndavélakerfi og aðgangsstýrikerfi" segir Guðmundur Arason, fram- kvæmdastjóri Securitas. „Nútíma öryggiskerfi eru sambyggð innbrota- og aðgangsstýrikerfi sem byggð eru upp með sérstök- um persónuskilríkjum - í laginu likt og krítarkort. A kortinu er mynd af viðkomandi starfsmanni og sérstakur innbyggður bún- aður til að hleypa honum inn á þau svæði hússins þar sem hann hefur leyfi til að fara. Hægt er að skipta húsinu í sérstök svæði, þannig að einungis þeir sem eiga þangað erindi geti farið þar inn. Sem dæmi er hægt að stilla kerfið þannig að einn starfsmaður hafi einungis aðgang að anddyri, skrifstofuálmu og mötuneyti en annar starfsmaður hafi aðgang að anddyri, tölvusal og lagerum. Securitas hefur staðið að þróun hér á Islandi og erlendis á samþættingu öryggiskerfa og smartkortalausna. Gerir þetta það að verkum, að eitt kort getur virkað fyrir aðgang að húsinu og t.d. sem rafeyrir, sem mikið hefur verið rætt um í bankageir- anum,“ segir Guðmundur. „Þjólhaðir geta verið bæði af hendi starfsmanna og utanaðkom- andi en myndavélakerfi sem notuð eru nú eru þannig að auðvelt er að skoða hvað gerst hefur. Aðeins eru Öryggisfyrirtœkið Securitas þekkja flestir ogþá mest afeinkennis- klæddum vörðum, merktum bílum og öðrum sýnilegum einkennum. Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Olafsson geymdar hreyfimyndir þannig að diskurinn eða spólan er ekki uppfuH af dauðum myndum sem langan tíma tekur að skoða.“ Hægt að bæta við búnaði innbrotsvið- vörunarkerfi Securitas er hægt að tengja við nánast aUan viðvörunarbúnað sem hægt er að hugsa sér. „Það var nokkuð algengt um tíma og er reyndar enn að myndvörpum og fartölvum sé stoUð en við leysum það þannig að myndvarpar og fartölvur eru tengd við innbrotsviðvörunarkerfi hússins. Ef myndvarpar eru hreyfðir úr stað eða fartölvur eru teknar í heim- ildarleysi koma boð um það til stjórnstöðvar og bjöllur fara í gang,“ segir Guðmundur. „Þessi búnaður er ódýr lausn sem hægt er að bæta inn í þann búnað sem fyrir er, en það fer vaxandi að bætt er inn í kerfin slíkum búnaði. Stór hluti af öryggmu er svo að kerfið er tengt við stjórnstöð okkar sem staðsett er á Neyðariínunni. Stærri fyrirtæki og stofnanir veija sig nú til dags í meira mæU með mannaðri öryggis- gæslu, þar sem öryggisvörður frá Securitas er staðsettur í húsinu og hefur glöggt eftir- lit með aUri umgengni um húsið. Þar sem öryggismáUn eru tekin föstum tökum er blandað saman háþróuðum tæknibúnaði og vökulu auga mannsins til að verja starfsmenn, húsnæði og búnað fyrir- tækjanna.“ Slj Fartölvur eru tengdar við öryggiskerfi hússins með einfdldum hætti, þannig að ekki er hœgt að taka slíka hluti án þess að öryggiskerfi fari í gang. 72

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.