Frjáls verslun - 01.03.2002, Side 76
Með Myndgœslu erjafnvel hægt að greina yfirvofandi innbrot áður en viðvörunarkerfi fer afstað.
Enn mikilvægara er að gæslan
gerir öryggismiðstöðinni
kleift að bregðast mun skjótar
og afdráttalausar við ef þjófa-
vörn fyrirtækisins fer af stað.
Með Myndgæslu er jafnvel
hægt að greina yfirvofandi
innbrot áður en innbrotavið-
vörunarkerfi fer af stað.
Dýrmætur tími sparast Lög-
reglan bregst ekki við boðum
frá innbrotaviðvörunarkerfi
fyrr en öryggisverðir hafa
staðfest hættuástand með
eigin augum. Myndgæslan
gerir öryggisvörðum mögu-
legt að láta samstundis vita af
innbroti. Þannig sparast dýr-
mætur tími á hættustundu.
Nokkur brögð hafa verið
Myndgæsla í
gegnum Netið
Tafarlaus viðbrögð við innbrotum
Oryggismiðstöð íslands býður nú, fyrst íslenskra öryggis-
fyrirtækja, fyrirtækjum og heimilum upp á flargæslu með
myndavélum og er þjónustan nefnd Myndgæsla. Öll fyrir-
tæki, sem eru sítengd Netinu með ADSL eða meiri bandbreidd,
geta notið þessarar þjónustu. Öryggismiðstöðin nýtir tengingu
fyrirtækisins fyrir stafrænar öryggismyndavélar Myndgæsl-
unnar. í öryggismiðstöð fyrirtækisins skoða svo öryggisverðir
svæðin sem myndavélarnar beinast að nánar, ef óeðlileg hreyf-
ing verður þar eða ef boð frá fyrirtækinu gefa tilefni til aðgæslu.
Myndgæslan getur verið:
• Við hreyfiskynjun (t.d. hreyfing utanhúss).
• Viðvörun frá öryggiskerfi.
• Stöðugt eftirlit.
• Skoðun á ákveðnum timum með lifandi mynd frá stöðunum
sem fylgst er með.
Einnig er hægt að láta öryggismyndavél-
arnar senda röð kyrrmynda í tölvupósti til
Öryggismiðstöðvarinnar, ef hreyfing verður
á myndfletinum. Viðskiptavinurinn getur
sjálfur nýtt sér Myndgæslu til að fylgjast með
fyrirtæki sínu úr fjarlægð, hvaðan sem er úr
heiminum.
Kostir Myndgæslu eru að hún getur í
mörgum tilvikum leyst af staðbundna gæslu.
að þvi undanfarið að þjófar geri ráð fyrir að þjófavarnakerfi fari
af stað. Þeir leitast þá við að nýta þær sekúndur eða mínútur
sem líða áður en öryggisvörður er kominn á staðinn. Með
Myndgæslunni er strax hægt að bregðast við.
Dæmi um notkun Myndgæslu Verslunareigandi getur, svo dæmi
sé tekið, valið að vera með myndavél fyrir utan sýningarglugga
verslunar sinnar. Viðbragð er haft virkt frá því 22:00 á kvöldin og
fram til 7:00 á morgnana. Myndmerki er sent í öryggismiðstöð-
ina þegar einhver hreyfing verður í myndfletinum. Myndin birt-
ist á skjá öryggisvarðar í öryggismiðstöð og hann getur metið af
myndinni hvort hætta sé á ferðum. Ef hann sér á myndinni prúð-
búna góðborgara velta vöngum yfir varningnum sem er verið að
sýna í glugganum heldur hann áfram annarri vinnu sinni eins og
ekkert hafi í skorist. Sjái hann hins vegar tvo kumpána með
lambúshettur skoðar hann máfið nánar.
Eftirlitsmyndavélar Myndgæslunnar geta
einnig verið að störfum innanhúss. Upptaka
fer þá af stað þegar hreyfing verður í mynd-
fletinum en annars gerist ekkert. Með þessu
móti er hægt að horfa á upptökur heillar
nætur á nokkrum mínútum. Viðkomandi ör-
yggismyndavél tekur aðeins myndir þegar
eitthvað er að gerast. Með þessari tækni er
auðveldlega hægt að geyma myndir að stað-
aldri í 30-90 daga. Œ]
Viðskiptavinurinn getur
sjálfur nýtt sér Mynd-
gæslu til að fylgjast
með fyrirtæki sínu úr
fjarlægð, hvaðan sem
er úr heiminum.
76