Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Síða 90

Frjáls verslun - 01.03.2002, Síða 90
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNflR DflVÍÐSDQTTUR Railtrack Langarykkur til ad fjárfesta í fyrirtæki, þar sem ríkisstjórnin bœtirykkur skaðann effjárfestingin skilar sér ekki? Þeir, sem jjárfestu í hinu einka- vædda Railtrack, bresku járnbrautunum, sem húkir í greiðslustöðvun, fá núna skaðann bættan. Stjórn Tony Blair virðist ekki kunna að velta áhættunni yfir á einkaframtakið! Eftir Sigrúnu Davíðsdóttur Langar ykkur til að fjárfesta í fyrirtæki, þar sem ríkisstjórnin bætir ykkur skaðann ef ijárfestingin skilar sér ekki? Tæki- færið er glatað i bili, en þeir sem ijárfestu í hinu einka- vædda Railtrack, sem nú húkir í greiðslustöðvun, fá skaðann bættan. Railtrack-sagan er heldur ólukkuleg fyrir hinn snoppu- fríða Stephen Byers samgönguráðherra, en þrátt fyrir samfellt klúður frá upphafi til enda og fleiri óheppileg mál heldur Tony Blair forsætisráðherra hiklausri verndarhendi jÆr honum, við vaxandi gagnrýni eigin þingmanna. I máli Verkamannaflokksforystunnar, sem aldrei kallar hlutina sínum réttu nöfnum, kallast einkavæðing „Private- Public Partnership“, PPP. Railtrack skýrir eðli þess. Er dýrt að borga 170 pund, um 25 þúsund krónur, fyrir tvisvar sinnum 400 km leið? Það finnst mér, þegar ég get flogið fram og til baka til Kaup- mannahafnar fyrir 50 pund eða til Trieste á Norður-Italíu fyrir 30 pund. Þegar ég þurftí að skreppa til Black- pool nýlega, strandbæjar með dýrðar- daga sína að baki, 400 km norð-vestur af London, fengust aðeins 170 punda miðar ef farið var heim samdægurs. Síðast þegar ég fór í lestarlangferð kom lestin til London um miðnætti í stað 22.30. Farþegarnir tóku töfunum eins og hverju öðru náttúrulögmáli. Um miðnætti hætta neðanjarðarlest- arnar að ganga og aðspurðir ypptu starfsmennirnir öxlum yfir hvernig fólk ætti að komast heim. A áfangastað var tilkynnt að allir fengju far heim með leigubíl. I stað þess að koma heim um kl. 23 kom ég kl. eitt um nóttina. í ljósi fyrri reynslu og miðaverðsins ákvað ég að keyra til Blackpool. Lagði af stað um níu og kom heim eftír átakalausa ferð um kl. 21.30. Hér kunna allir sögur af þessu tagi. Bretar eru almennt argir út í lestarkerfið. Þegar það var einkavætt af Margaret Thatcher hélt ríkið eftir eigninni á járnbrautar- teinunum og fleiru, sem Verkamannaflokkurinn einkavæddi svo í fyrirtækinu Railtrack. Það eru einkavæðingar af þessu tagi, sem fengu John Major, fyrrum forsætisráðherra, til að gapa af undrun. „Þið eruð að einkavæða hluti, sem okkur hefði aldrei dottið í hug að einkavæða,“ sagði hann við gömlu vinstri- kempuna í Verkamannaflokknum, Tony Benn. Margir tautuðu að ónógar Jjárfestingar í teinakerfinu væru stórhættulegar, auk þess sem breska kerfið er alls ekki tílbúið fyrir hraðlestír meginlandsins. Hættan sýndi sig árið 2000 þegar teinarnir fóru í mask undir hraðlest við Hatfield, útborg London, og Jjórir létust. Afleiðingarnar voru umfangsmiklar viðgerðir, sem auðvitað seinkaði, tilheyrandi tafir - og færri farþegar. Samgöngugeirinn breski er varðaður mörgum brostnum stjórnaráætlunum. Meira að segja takmarkið um auknar hjólreiðar er svo víðáttuJjarri að það hefði áhrif ef allir ráðherrarnir hoppuðu á hjólin. Railtrack komst aldrei á flug. Síðastliðið ár var þrautpínt - og sveitt andlit hins feitlagna og þunnhærða framkvæmdastjóra Railtrack var fastur liður á sjónvarpsskjánum. Með flöktandi augnaráð stamaði hann skýringum á seinkunum, ónógum Jjár- festingum og ofurgreiðslum, ótengdum rekstarafkomunni, tíl sín og annarra stjórnenda. Hinn sléttmálgi og lipri Byers hamraði á því að Railtrack væri einkafyrirtæki og ríkisstjórninni óvið- komandi. I október mátti Byers læra nýja rullu. Railtrack lenti í greiðslustöðvun, en stjórnin hindraði að fyrirtækið færi á höfuðið eins og vonlaus einkafyrir- tæki gera. Byers nefndi ekki endur- þjóðnýtingu, Jjárfestarnir áttu þó altént að fylgja markaðslögmálunum og tapa sínu. Fjármálaheimurinn urraði að nú væri einkavæðingareðli stjórnarinnar ljóst, 22 stjórnendur Jjárfestingarsjóða lýstu yfir að þeir legðu ekki aftur pens í púkkið, en vinstriþingmenn kættust. Byers sat við sinn keip... þar til hann sneri nýlega við á hælunum. Með dæmigerðu blekkingarorðafari stjórn- arinnar tilkynnti hann að hún legði fram 300 milljónir punda til að styrkja fyrirtækið til að verða nýtt fyrirtæki, Kannski voru forsendur Railtrack aldrei góðar, en fyrirtækið var líka illa rekið og hluthafar aðgerðalausir. En í stað þess að viðkomandi blæddu fyrir mistökin breytti stjórnin Railtrack í krakkaleik; allir stikkfrí og allt í plati! 90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.