Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Síða 95

Frjáls verslun - 01.03.2002, Síða 95
FERÐALÖG HEflRTSKflSTflLINN Margir muna eftir því þegar sonardóttur Hearst, Patty, var rænt fyrir rúmum aldarfjórðungi. Hún gekk svo í lið með ræningj- unum og hjálpaði þeim við bankarán. En það hefur hún löngu setið af sér og geta gestir nú heyrt hana tala á kynningarmynd- bandi um kastalann. Allt eykur þetta á óraunveruleikann við að koma í þessa miklu byggingu. Fjarri mannabústöðum Hearstkastalinn er nærri litlu þorpi, San Simeon, sem er nánast miðja vegu milli stórborganna Los Angeles og San Francisco, liklega um tjögurra tíma akstur frá hvorri um sig. Þegar komið er norðan að er ekið um afar fallega strandlengju sem innlendir nefna Big Sur. Vegurinn er hlykkjóttur, en það er vel þess virði að slá af hraðanum og virða fyrir sér náttúruna. Syðst á þessari leið eru víkur þar sem risa- stórir rostungar skríða á land í stórum hópum. En taki menn augun af risaskepnunum og snúi sér við kemur í ljós takmarkið sjálft, kastalinn mikli nemur við himinn uppi á hæð. Enn í dag er langt til alls skarkala borgarinnar frá höllinni miklu. Hearst var hins vegar ekki að leita að friðsæld, nema þá að hluta til, því um leið og mannvirkin miklu fóru að taka á sig mynd fyllti blaða- kóngurinn þau af lífi. A þessum árum var hann líka í kvikmjmda- gerð og stjörnur höfðu mikinn áhuga á því að gista í höllinni. Og ekki hafa þau orðið fyrir vonbrigðum. Fyrst hafa þau orðið að fara upp hlíðina eftir kræklóttum vegi sem nú er lokaður allri umferð nema rútum sem flytja gesti úr móttökustöð við hlíðar- fótinn. Sem góður gestgjafi vildi Hearst ekki að mönnum leidd- ist á leiðinni og útbjó dýragarð þar sem sumar tegundir gengu lausar í skóginum meðan aðrar voru á lokuðum svæðum. AUt í kringum byggingarnar eru stór hellulögð svæði, skrejft höggmyndum sem Hearst safnaði á ferðum sínum um Evrópu. Þótt búið væri að ganga frá einhveiju hikaði hann ekki við að láta taka það upp aftur ef hann taldi að hægt væri að gera betur. Eitt af þvi sem vekur mesta hrifningu gesta er útisundlaugin sem tvf- vegis varð að stækka til þess að ná réttu útliti. Við hlið hennar er veggur sem er eins og framhlið á grísku hofi. Þar var að kröfu He- arsts sett stytta í þríhyrninginn á toppnum. Fundin var gömul grísk stytta sem reyndist hins vegar ekki passa. I stað þess að finna nýja var handleggurinn brotinn af henni og styttur til þess að höggmyndin passaði. í gestaherbergjum var aðbúnaður eins og best varð á kosið á þeim tímum þó að heldur virðist þau orðin lúin og gamaldags í dag. Öll eru þau skreytt listaverkum og antík húsgögnum, hvert í sínum stíl. Gestirnir voru ekki af lakara taginu; listamenn, stjórnmálamenn og viðskiptajöfrar. Meðal gesta voru Bob Hope og Bernard Shaw, Winston Churchill og Charlie Chaplin. Clark Gable kom meira en 40 sinnum í heimsókn og gisti aldrei í sama herberginu tvisvar. Leiðsögumaðurinn taldi þó útilokað að fá að gista þarna núna, það hefði síðast verið boðið upp á það þegar Ronald Reagan hefði tekið á móti erlendum þjóðarleiðtoga fyrir 15 árum eða svo. Og gestunum þurfti ekki að leiðast í heimsókninni. A daginn gátu þeir leikið golf, spilað tennis eða farið á hestum um skóg- ana. Þeim sem ekki fannst þetta nægilegt úrval af skemmtun var Margir muna eftir því þegar sonardóttur Hearst, Patty, var rænt fyrir rúmum aldar- fjórðungi. Hún gekk svo í lið með ræningj- unum og hjálpaði þeim við bankarán. Listaverk og antík húsgögn, hvert í sínum stíl, einkenna híbýlin í Hearst- kastalanum. Eitt afþví sem vekur mesta hrifningu gesta er útisundlaugin sem tvívegis varð að stœkka til þess að hægt væri að ná réttu útliti. flogið með einkavélum að Tahovatni eða annað sem hugurinn girntist. Eina skilyrðið var að allir væru komnir heim fyrir kvöld- mat. Svo var boðið upp á drykk í stórum sal sem skreyttur er á alla lund með listaverkum. Meðal annars eru í hornunum tjór- um veggmyndir eftir Albert Thorvaldsen. Eftir drykkinn var farið um „leynidyr" inn í matsal en þar sátu gestirnir við lang- borð að hætti víkinga. Gestum var skipað til borð annars vegar eftir þvi hve lengi þeir höfðu verið í höllinni og hins vegar í hve miklum metum þeir voru hjá gestgjafanum. Sumii- þurftu alltaf að hírast úti á enda. Eftir matinn var hægt að stíga dans, fara í bíó, en í kvik- myndasalnum var yfirleitt boðið upp á myndir með ástkonu Hearst, Marion Davies. Sumir spiluðu knattborðsleik eða tefldu, en pör laumuðust jafrivel inn í innisundlaugina svo lítið bar á. Enn þann dag í dag er stundum hægt að fá að fara í höllina að kvöldi til þess að skoða hana og njóta skemmtunar. Smekkur er umdeilanlegur og margir telja eflaust að Hearst hafi hrúgað saman listaverkum af miklu smekkleysi. Það verður þó ekki um það deilt að hann hefur haft næmt auga fyrir fallegum hlutum og með arkitekt sínum Júlíu Morgan hefur hann skapað ótrúlegan minnisvarða um sjálfan sig og ríkidæmi sitt. Hearst lést árið 1951 og sex árum síðar var ákveðið að opna kastalann fyrir almenningi. Þeir sem vilja fá innsýn í ótrúlega auðlegð útgefandans og kvikmyndajöfursins ættu að leggja lykkju á leið sína í Kaliforníu til þess að fara í kastalann. Aðsókn er þó svo mikil að öruggast er að panta miða fyrirfram. Ferðin er vel þess virði. SH 95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.