Frjáls verslun - 01.03.2002, Qupperneq 97
Einar Karl Haraldsson almannatengill, Friðrik H. Jónsson dósent og Gísli Marteinn Baldursson, frambjóðandi á lista Sjálfstœðisflokks í Reykja-
vík, jjölluðu allir um ímynd stjórnmálamanna, hver út frá sínum sjónarhól.
hlýr/kaldur, skemmtilegur/leiðinlegur
og líflegur/daufur hann þykir. Friðrik
segir að öðru jöfnu betra að vera ákveð-
inn, beittur, virkur, hlýr, skemmtilegur,
líflegur, áreiðanlegur, sanngjarn og
alþýðlegur, en ef stjórnmálamaður er
mjög hár á öllum þessum þáttum þá séu
einhver „geislabaugsáhrif' í kringum
hann og því sé ekki fyllilega að marka
mælinguna.
„Þegar ég var að byija í þessu próf-
aði ég að mæla Vigdísi Finnbogadóttur,
sem þá var forseti Islands, og hún kom
hátt út úr öllum þáttum. Það má vel vera
að það hafi allt verið satt og rétt en það
er allt eins líklegt að það hafi verið ein-
hver geislabaugsáhrif í kringum hana,“
segir hann.
Misjafnt milli sfjórnmáiamanna í mæl-
ingum Friðriks er misjafnt milli stjórn-
málamanna hversu mikla skírskotun
þeir hafa út fyrir eigin floklí. Einnig er
mikill munur á mati samflokksmanna
eða stuðningsmanna þeirra og andstæð-
inga. Það gildir þó ekki um alla stjórn-
málamenn. Menn meta td. Halldór Ás-
grímsson nokkuð jafnt Davíð Oddsson er hins vegar umdeildari
og Friðrik segir að sá umdeildasti sem hann hafi séð í sínum
mælingum sé Björn Bjarnason, leiðtogi sjálfstæðismanna í kom-
andi borgarstjórnarkosningum. „Sjálfstæðismenn hafa metið
hann mjög vel en andstæðingar hans mjög neikvætt," segir
Friðrik. Björn hefur þá ímynd að vera frekar ákveðinn, beittur og
virkur en hitt, og það er hans sterkasta hlið. Bæði upplag hans og
viðmót mælast hins vegar veikara.
Ef stjórnmálamaður er ekki áberandi í landsmálum hefur
fólk ekki sterka skoðun
á honum. Friðrik hefur
þó gert mælingar á Ingi-
björgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarstjóra og
segir að í mælingum,
sem gerðar voru fyrir
þremur eða íjórum
árum, hafi hún komið
Samspil þátta
Dauíð Oddsson
Líkar uið Sjónuarp
• Virkni ,40 ,40
• Upplag ,79 ,61
• Viðmót ,69 ,66
Hér sést hvernig mönnum líkar við Davíð og
hvernigþeim finnst hann koma Jyrir í sjónvarpi.
Ólafur Ragnar Grímsson
Virkni Upplag Viðmót Heild
• 1991 1,56 -0,20 0,60 0,26
• 1993 1,41 -0,17 -0,31 0,33
• 1994 0,55 -0,62 -0,49 -0,19
• 1995 0,86 -0,27 -0,48 0,03
• 1996 1,53 0,62 0,40 0,85
Hér sjást nokkrar mælingar á ímynd Ólajs
Ragnars Grímssonar áður en hann fór íforseta-
framboð. Takið eftir uþþlagsmælingunni árið
1996.
frekar jákvætt út, svipað og Vigdís Finn-
bogadóttir. Með tímanum hafi þó komist
meira jafnvægi þarna á og nú sé hægt að
segja að sterkustu hliðar Ingibjargar Sól-
rúnar séu upplagið og virknin en síður
viðmótið.
Hafi bætt Itann upp? „Það er svolítið
gaman að skoða breytingarnar sem urðu
á ímynd Olafs Ragnars Grímssonar þegar
hann fór í forsetaframboð 1996. Hann
hefur nokkuð háa virkni-mælingu, bæði í
iyrstu og síðustu mælingunni, viðmótið
breytist heldur ekki mikið og er rétt yfir
meðallagi en upplagsmælingin gjör-
breytist. Allt í einu fara menn að telja
hann áreiðanlegan, sanngjarnan og
alþýðlegan, en hvers vegna það gerist
veit ég ekki,“ segir hann.
- Stundum hefur verið sagt að konan
hans hafi unnið kosningarnar fyrir hann.
Getur verið að hún hafi haft þessi áhrif?
„Það má vel vera að hún hafi bætt hann
upp á þessu sviði.“
Sannleikskjarni
ímynd felur í sér óljósar hugmyndir fólks um
eiginleika stjórnmálamannsins en búast má við
að einhver sannleikskjarni geti verið í ímyndinni.
Spurningin er bara hve sterkur hann er.
Viðmótið er hans styrkur Á ímark-fund-
inum kynnti Friðrik einnig mælingu á því hvernig fólki líkar við
Davíð og hvernig því þykir hann koma fram í sjónvarpi. I mæling-
unni kemur fram að það sem fólki likar best við hann er viðmótið.
„Virkni er sterkasti þátturinn í ímynd Davíðs en það sem fólki
líkar best við hann er viðmótið, Davíð þykir skemmtilegur, lif-
legur og hlýr, þannig að ef hann sest niður og veltir íýrir sér
hvernig hann geti náð til sem flestra þá á hann ekki að vera
ákveðinn og keyra sín mál áfram af miklum krafti heldur fyrst og
fremst að vera þægilegur og skemmtilegur. Þannig nær hann til
flestra. Davíð er heppinn
að því leytinu til að sá
þáttur í hans ímynd, sem
höfðar mest til kjósenda,
er líka sterkur í hans
ímynd, þ.e.a.s. viðmótið.
Hann þykir skemmtilegur
og á auðvelt með að ná til
fólks," segir Friðrik. BS
97