Frjáls verslun - 01.08.2003, Side 31
Rósa Björk á móttökuborði Brimborgar
svarar fyrirspumum af ábyrgð með
bros á vör. Hún segir að viðhorf til
vinnunnar hafi breyst enda er viss
samsvörun í hennar eigin markmið-
um og markmiðum fyrirtækisins.
viðskiptavinimir eru líka í betra skapi.
Varðliðamir í viðhalds- og viðgerðarþjónustunni em kampakátir en Friðbjöm,
Ingvar, Birgir og Sveinbjörn vilja meina að stærð viðhalds og viðgerða sé
stórlega háð viðhorfi viðskiptavina til þeirra og fyrirtækisins. „Viðhorf til
okkar er ánægjulegt og betra þó það hafi verið gott áður“, segir Stígur sem
er hér sitjandi ásamt samstarfsmönnum sínum Böðvari, Þórhildi, Magnúsi,
Sigurði K., Sigurði R., Guðmundi, Bimi og Hrafnkeli.
„Það er okkar hagur að selja gæða-
vörur á hagkvæmu verði. Lykillinn
að lágu verði em góð og skipulögð
innkaup" segja Ríkarður og Olafur á
sölusviði atvinnutækja.
Þessi auglýsing Brimborgar ásamt öðrum frá iyrirtækinu eru
ólíkar auglýsingum annarra að því leyti að móttakandanum er
náið kynnt umboðið svo ekki sé um að villast að þar sé að finna
fyrirtæki með ákveðin gildi sem vinnur heiðarlega og af umhyggju
með viðskiptavinum sínum, hvernig sem dagvenjur þeirra eru
eða hvaða lífstíl þeir hafi kosið sér: Vöruúrval fyrirtækisins
býður upp á slika breidd með þekkt vörumerki á borð við Volvo,
Ford, Citroén, Daihatsu og Lincoln. Innan þessara merkja má
finna: fólksbíla, jeppa, sendibíla, vörubíla, rútur, vinnuvélar og
bátavélar og faglega viðhalds- og viðgerðaþjónustu.
Boðskiptahluti rekstrarstefnu Brimborgar
boðar samhjálp sem komið er iýrir með athyglis-
verðum hætti í flestum auglýsingum umboðsins.
Sjá má og heyra óvenju næm skilaboð eða
áskorun til samfélagsins og allra starfsmanna
Brimborgar um að alltaf og á hveijum degi, eigi
fólk að vera gott við hvert annað og treysta hvert
öðru en skilaboðin hljóma þannig: „Treystum
hvert öðru og löðum til okkar það besta úr lifinu.
Hvern dag“. Hér er ábending og tenging um gott
og sannara lif, byggt á sömu boðorðum og kirkjan rís á - traust
til náungans og umhyggja fyrir honum. Þannig vill Brimborg
greinilega benda viðskiptavinum sínum á þann grunn sem
þjónusta íyrirtækisins byggir á. Hún byggir fremur á manngildi
en auðgildi!
Eins og fyrr segir skýrir hugtakið samhjálp ákveðna
aðferðafræði í heildrænni boðskiptastefnu fyrirtækja sem
Brimborg vinnur eftir. Boðskiptastefna fyrirtækisins gengur út
á þau markmið að starfa á ákveðinn hátt og mjög náið og
heiðarlega með viðskiptavinum sínum. í raun gegna starfsmenn
Brimborgar og viðskiptavinurinn hefðbundnu hlutverki
framleiðanda með þvi að hanna hluta vörunnar og senda síðan
beiðni til framleiðandans sem setur saman vöruna á skömmum
tíma sem Brimborg afhendir fullbúna til kaupandans. Þetta
fyrirkomulag kemur í stað þess að selja tilbúna vöru sem
viðskiptavinurinn á lítinn kost á að breyta. Annar veigamikill
hluti aðferðafræðinnar sem boðskiptastefna Brimborgar gengur
einnig út á er breytt viðhorf til starfsmanna fyrirtækisins en
sama er upp á teningnum þar hvað varðar samvinnu og samhjálp.
brimborg
Öruggur staður til að vera á
Brimborg byggir fremur á mann-
gildi en auðgildi
Ef við drögum þetta saman í fá orð getum við sagt að unnið
sé að því markmiði að endurstaðfæra Brimborg frá þvl að vera
þjónustufyrirtæki í að vera kunnáttufyrirtæki en kunnáttu-
fýrirtæki er töluverð útvíkkun á skilgreiningu þjónustu-
fýrirtækis.
Neytendur eru mikilvægastar á tjörn seljandans. Egill Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Brimborgar segir að um áramótin hefði
hafist fjórða stig áætlunar um að leiða Brimborg í átt að
persónulegu kunnáttuiýrirtæki. Hér er lögð áhersla á fyrsta
stig boðskipta sem Egill kallar „Köllun
Brimborgar“ (e: The Call - The BrandSpirit by
Grey) þar sem samfélagslegri ábyrgð jýrirtækisins
(e: mission of live) er komið á framfæri eins og
áður segir. Egill og hans fólk hafa greinilega
lagt mikla vinnu í staðfærsluna og afraksturinn
hefur vakið athygli. Það er ekki frá því að maður
finni þetta breytta viðmót og viðhorf starfsfólks
Brimborgar til manns sjálfs - viðskiptavinarins.
Þetta er ekki bara ný sölutækni heldur algerlega
önnur nálgun á viðskiptum kunnáttufyrirtækisins - persónu-
legum stórmarkaði!
Þessi mikla áhersla á ágæt einkunnarorð Brimborgar
„öruggur staður til að vera á“ leiðir hugann að öðrum
fyrirtækjum og hvernig þeim málum er háttað hjá þeim.
Sérfræðingar telja að einkunnarorð eins og „Brimborg - öruggur
staður til að vera á“ - „tákni ástand og þá verður setningin og
ástandið væntanlega að eiga eitthvað sameiginlegt en setningin
er dulbúið form þessa verks. Ef einkunnarorð spegla ekki
veruleikann hjá Brimborg með beinum hætti væri útilokað að
setningin hefði merkingu“. Samræmið milli einkunnarorða og
veruleika Brimborgar er auðgreinilegt eftir mikla vinnu við
ummyndun og endurstaðfærslu iýrirtækisins: „Við höfum unnið
dag og nótt í mörg ár til að geta sagt að Brimborg sé öruggur
staður til að vinna á og að Brimborg sé öruggur staður til að
gera góð viðskipti á. Okkur hefur tekist að ná þeim markmiðum
sem við lögðum upp með. En þetta er aðeins byijunin.“, segir
Egill að lokum.
Stöðugar nýjungar hjá Brimborg
Á næstunni eiga Islendingar kost á að eignast
nýjasta bílinn frá Citroén: C2 verður heitasti
bíll unga fólksins. Sagt er að i honum
sé að finna ‘G’ blettinn. Ásamt
Citroén býður Brimborg gæða-
merkin Volvo, Ford, Daihatsu
og Lincoln. Fyrirtækið býður
einnig uppá einstaka
sérþjónustu fyrir atvinnumenn
og fyrirtæki enda úrvalið mikið.
Nú er bara að fara til Brimborgar við Bíldshöfða og finna sig
þar í öryggi með öruggum bílum Brimborgar. www.brimborg.is
».b ll |
VOLVO MNXA. | lincoln 0CITROÉN
DAIHATSU iqHIHB Úrval- ,«r Courier I■ ir ELLI