Frjáls verslun - 01.08.2003, Qupperneq 55
RÓBERT WESSMANN,
forstjóri Pharmaco. „Við mun-
um opna skrifstofu í Svíþjóð á
næstu vikum og skoðum Finn-
land, Noreg, Pólland, Tékkland
og Ungverjaland í framhaldinu."
MYND: GEIR ÓLAFSSON
festa í fyrirtækjum sem tengjast okkar aðalstarfsemi. Markmið
fiárfestinga okkar er að efla félagið enn frekar fyrir alþjóðlega
samkeppni en með aukinni stærð náum við fram frekari
hagraeðingu," segir hann.
„Hvað framtíðina varðar þá erum við að skrá um 30 lyf, sem
við höfum þróað, inn á okkar helstu markaði í Mið- og Austur-
Evrópu og það mun gefa okkur tækifæri til að styrkja stöðu
okkar þar enn frekar. Við ætlum að stofna söluskrifstofur á
hinum Norðurlöndunum, opnuð verður skrifstofa í Svíþjóð á
næstu vikum og við ætlum að skoða Finnland, Noreg, Pólland,
Tékkland og Ungveijaland í framhaldinu. Við ætlum að halda
áfram að sækja inn á Bandaríkin þannig að við ættum að sjá
fleiri samninga detta þar inn auk þes sem við erum byrjuð að
selja lyf til Mið-Austurlanda.“
Skrániny í London? Haldið verður
áfram að hagræða í rekstri. „Við
fækkuðum um tæplega 1.400 manns
fyrstu sex mánuðina á þessu ári, vorum
með um 7.400 starfsmenn í ársbyrjun og
erum með 6.000 núna. Þessi fækkun er
fyrst og fremst í Serbíu og Búlgaríu og
við munum halda áfram að hagræða þar.
Við höfum verið að selja eða loka
starfseiningum í Serbíu sem hafa ekki
staðist arðsemiskröfur okkar og ekki
fallið að okkar kjarnastarfsemi þannig
að við höfum verið að taka til í þeim
rekstri í góðri samvinnu við verkalýðs-
félög og einkavæðinganefndir á
svæðinu. Sá rekstur gengur orðið mjög
vel þannig að þessari tiltekt verður lokið
á næstu mánuðum," segir Róbert.
A næsta ári er stefnan sett á
skráningu á erlendan hlutabréfamarkað
og er London þá helst í sigtinu. Róbert
segir að full ástæða sé til bjartsýni. Afkoman hafi verið mjög
góð það sem af sé þessu ári. Pharmaco hafi verið með 161
milljón evra í veltu, skilað 31 milljón í hagnað og 44 milljónum
í EBITDA framlegð. Langtímamarkmiðið sé 15-20% innri
vöxtur og 15-20% vöxtur með fjáríestingum eða samrunum við
önnur samheitalytjafyrirtæki. Markmiðið sé að skila 30%
EBITDA framlegð til lengri tíma litið. Það myndi skila fyrir-
tækinu í hóp þeirra fyrirtækja sem sýna hvað allra bestu fram-
legð í Bandaríkjunum og Evrópu. Þróunin sýnir framlegðar-
aukningu frá síðasta ári en EBITDA framlegð nam um 22% á
síðasta ári er 27% fyrstu sex mánuði þessa árs. „Við erum í dag
í hópi 40 veltumestu samheitalyijafyrirtækjanna í heiminum og
stefrium á að komast í hóp þeirra 10 stærstu innan nokkurra
ára,“ segir Róbert Wessmann. S!]
12
Uelta: 18 milljarðar.
Hagn. f. skatta: 3,5 milljarðar.
Eigið fé: 20,3 milljarðar.
Sex stærstu í Pharmaco
1. okt. 2003
Amber (Björgólfur Thor) ..... 27,5%
L.í. í LÚX. (Magnús Þ.) ..... 13,0%
Milestone..................... 5,2%
Pharmaco...................... 4,9%
Ólöf Baldvinsd................ 3,2%
Lífeyrissj. sjómanna....... 2,0%
Alls: ....................... 55,8%
55