Frjáls verslun - 01.08.2003, Page 142
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR
slíkt, nafn sakleysingans enn á vanskilalist-
anum og svikarinn, óákærður, getur haldið
áiram að svindla með annarra manna upp-
lýsingar.
Það er víst ekki hægt að ganga út úr
kjörbúð með svo mikið sem eitt súkkulaði-
stykki inni á sér án þess að það sé kært til
lögreglunnar, en bankar hirða ekki um að
tilkynna þjófnaði upp á þúsundir punda.
Astæðan er meðal annars gat í enskum
lögum: það er glæpsamlegt að stela korti
eða öðrum persónuskilríkjum og svindla út
á þau en það varðar ekki við lög að misnota
persónuupplýsingar ef engum skilríkjum er
stolið. Með öðrum orðum þá er stuldur á
persónuupplýsingum sem slíkum ekki sakhæfur. Þessu
stendur þó til að kippa í liðinn.
CIFAS (www.cifas.org) eru samtök fjármálastofnana, síma-
fyrirtækja, póstkröfuiyrirtækja og fleiri. Sá sem lendir í því að
skilríkjum er stolið getur haft samband við CIFAS og beðið
samtökin að sjá til þess að reyni einhver að kaupa vöru eða fá
lán og gefi upp heimilisfang viðkomandi þá verði gerð sérstök
gangskör að því að kanna hvort ekki sé verið að misnota upp-
lýsingar. Það er því heimilisfang viðkomandi sem er merkt sér-
staklega, ekki nafnið. Þetta getur reyndar seinkað til dæmis
lántöku, en þar með er það á ábyrgð fýrirtækja að kanna málin
sérstaklega rækilega. Geri þau það ekki og
svindl hljótist af stendur sá sem lenti í að
upplýsingum hans var stolið, sterkar að vígi.
Engin þjóðskrá, engar kennitölur Per-
sónuupplýsingar eru annars viðkvæmt
mál hér í Englandi. Hér er engin þjóð-
skrá, engin nafnskírteini, engin kennitala
því að stjórnmálamenn meta það svo að
Englendingar hati slíkt eins og pestina. A
næstu árum verða þó örugglega tekin
upp einhvers konar nafnskírteini. Þa
verður ekki einfalt mál að tryggja að upp-
lýsingar á skírteinin verði réttar. Það
hefur verið talað um að nota skrár kredit-
eftirlitsfýritækjanna, því þau hafa um 40 milljónir manna a
skrá, nokkurn veginn alla Breta yfir 18 ára aldri, en það hrýs
mörgum hugur við þeirri hugmynd því að það er svo mikið
af villum í skrám þeirra. Eina sem minnir á þjóðskrá hér er
kjörskráin. Bankar og aðrar viðurkenndar stofnanir geta
keypt hana til að eigin nota, en hún er ekki lengur seld til
„junk mail“ fyrirtækja. Hún er leiðrétt einu sinni á ári - ég er
einmitt með bréf á skrifborðinu hjá mér þar sem spurst er
fýrir hverjir búi hér og sú fýrirspurn er vegna kjörskrár-
innar. Ef ég svara ekki spurningunum fæ ég sekt upp á 1000
pund, um 130 þúsund krónur.
Verið að rífa upplýsingar og setja
þær inn í smjörbréf.
N£
'E CUF»t' ______-12
**£H£ CINQ
) ? ŒNT<
JNDEi'
Lling
ikch
Innheimta
án landamæra
Við innheimtum vanskilakröfur í öllum heimsálfum
í samstarfi við TCM Group International Ltd.
Meðal viðskiptamanna okkar eru leiðandi
viðskiptabankar. útflytjendur og þjónustufyrirtæki.
Kostnaður er bundinn árangri
- enginn árangur enginn kostnaður!
Ingólfsstræti 3 • 101 Reykjavík • S: 5527500 • Fax 5527501
tcm@lawfirm.is • www.tcm.is • www.tcmgroup.com
142