Frjáls verslun - 01.08.2003, Síða 143
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR
Fyrir ofan minn Skilning... Það er reyndar alveg fyrir ofan
minn skilning hvernig hægt er að svíkja út fé og vörur með
stolnum persónuupplýsingum því ég sný mér varla svo við í
viðskiptum við stofnanir og fyrirtæki að ég þurfi ekki að
margsanna að ég sé ég og búi þar sem ég bý. I hvert skipti
sem ég athafna mig í bankanum með meira en bara smá
úttekt, er ég krafin um persónuskilríki, annað hvort vega-
bréf eða ökuskírteini. Lengi vel dugði íslenska ökuskír-
teinið en ekki lengur - bara ensk ökuskírteini tekin gild. Ef
ég hringi í bankann til að fá upplýsingar fer í hönd löng yfir-
heyrsla eftir að ég gef upp reikningsnúmerið. Eg þarf að
gefa upp nafn, heimilisfang, póstnúmer, fæðingardag og ár,
nefna tvær eða þrjár fastar greiðslur af reikningnum, upp-
hæðina og hver fær þær. Hér er ekki notað merki heldur er
spurt um ættarnafn móður, það er nafnið áður en hún gifti
sig. Mér fannst nú reyndar of flókið að fara að þvælast í
föðurnafninu hennar mömmu, íslensk nöfn renna ekki beint
lipurlega í gegn hér, svo ég fann bara upp þægilegt orð.
Síðast þegar ég hringdi í bankann fékk ég svo að vita að
næst þegar ég hringdi þyrfti ég að gefa upp
kóða, sem núna er á leiðinni til mín í pósti - í
viðbót við allar þessar upplýsingar, sem þegar
er beðið um.
Þegar ég borga ársstöðumælagjaldið hér i
hverfinu mínu þarf ég að gjöra svo vel að mæta
með bankayfirlit og/eða tvo eða þijá nýja reikn-
inga frá til dæmis símanum, rafmagnsveitunni
og gasveitunni til að sanna að ég búi þar sem
ég bý og svo sýna vegabréfið til að sanna að ég
sé ég. Stöðumælapláss er eitt af dýrmætari
hlunnindum hér í stórborginni og bæjarfélögin
gæta þess vel að enginn geti keypt sér pláss
nema að hann búi hér. Ef ég panta bíómiða,
leikhús- eða tónleikamiða í gegnum símann
þarf ég að sýna greiðslukortið þegar ég sæki
miðana. Ég get því ekki annað sagt en að hvert
sem ég sný mér sé eftirlitið grimmt, en
svindlararnir vita augljóslega betur en ég
hvernig þeir eiga að hafa sitt fram.
Hvað er til ráða? Og hvað er svo til ráða til að
forðast að manni sé rænt, ef ekki í persónu þá
alla vega upplýsingunum manns? Hinar ýtrustu
varúðarráðstafanir eru auðvitað að nota engin
kort, borga allt í reiðufé, en það er nú einfald-
lega skerðing á umsvifafrelsi í nútímaþjóðfélagi,
svo það eru kannski fæstir - nema þeir sem í
raun hafa lent í upplýsingaþjófnaði - sem ganga
svo langt. Annars er bara að gæta þess að hirða
alls staðar kvittanir fyrir greiðslukortagreiðslur,
því þær innihalda gullvægar upplýsingar fyrir
þá óprúttnu. Og auðvitað á maður aldrei að
veita neinar upplýsingar, hvorki nafn, heimilis-
fang né neinar kortaupplýsingar þegar einhver
hringir í mann og þykist vera að selja eða kanna
eitthvað. Flutningar fela í sér ákveðna áhættu, því þá er hætta
á að einhver geti nálgast póstinn manns og komist yfir upp-
lýsingar á þann hátt. Þetta hefði getað gerst ef gylliboð
bankans með útfyllta umsóknareyðublaðinu hefði verið sent
mér á gamla heimilisfangið mitt. Við flutninga er ráð að biðja
póstþjónustuna að senda póstinn á eftir manni á nýja staðinn
í heilt ár. Eftirsendingarþjónustan er ekki óbrigðul, en alveg
þokkaleg. Og svo er að vona að yfirvöld og stofnanir tæti allar
upplýsingarnar um mann: af 71 bæjarfélagi, sem spurt var,
upplýstu 53 að það væri rænt úr ruslatunnunum þeirra.
Sala á pappírstæturum til heimanota hefur aukist um heil
1.500 prósent undanfarin misseri, en það er nú eiginlega hin
mesta óþarfa ijárfesting. Uppi á þaki er ég með stóran
leirblómapott og ef ég þarf að losa mig við eitthvað magn af
pappír mundi ég nú bara brenna skjalasafnið í pottinum - en
þangað til tæti ég óþarfann ofan í smjörbréfið... Hljómar þetta
eins og vottur af ofsóknarbijálæði?
Lífið í stórborginni er stundum svo galið... að það er hreint
ekki nema fyrir léttgeggjaða að lifa það af! HO
—
/
öryggi
Öryggisskápamir frá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, töivugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem em í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
143