Frjáls verslun - 01.08.2003, Page 144
Stjórnun
Leyniskyttur, fýlupúkar,
vitringar og nöldrarar
Flestir þekkja einhverja erfiða
einstaklinga. Fæstir viðurkenna
að þeir séu erfiðir í samskiptum
enda væri sú hugsun næstum óbæri-
leg. Við reynum að lágmarka sam-
skipti okkar við það fólk sem okkur
gengur erfiðlega að ná saman við.
Það gengur vel þegar um vini og
kunningja er að ræða en verr þegar
td. samstarfsfólk á í hlut. Því er ekki
óeðlilegt að á vinnustöðum sé ein-
hver spenna milli fólks.
Flestir þekkja erfiða einstaklinga. Við
reynum yfirleitt að lágmarka samskiþti
okkar við þá, en það geturgengið illa
þegar um samstarfsmenn okkar er að
ræða. Það er einu sinni svo að menn verða
að umgangast vinnufélaga sína, þeir eru jú
að vinna saman. En hvað er til ráða?
Textí: Eyþór Eðvarðsson Myndir: Geir Ólafsson
Það sem Við Sjáum í öðru fólhi Eitt það mikilvægasta í sam-
skiptum við erfiða einstaklinga er að vita með hvaða augum
er horft. Sá erfiði telur sig ekki erfiðan og þó að okkur
sjálfum finnist einhver vera erfiður þá er ekki víst að aðrir
séu okkur sammála. Það sem við sjáum er ekki endilega það
sem er, heldur kannski það sem við viljum sjá, eða ályktum
að sé. Algengt er að misskilningur valdi því að einhver telji
annan erfiðan. Dæmi um það er þegar einhver gleymir að
bjóða góðan dag eða segir það með tón sem er túlkaður sem
„dónaskapur". Þannig snýr fólk sannleikanum í þá átt sem
það vill. Hættan á þessu eykst ef spenna er ríkjandi í sam-
skiptunum en þá eru atriði túlkuð með
hliðsjón af því sem á undan er
gengið. Þannig getur eitt
lítið orð sem er látið falla,
eða ekki látið falla, svip-
brigði sem eru sýnd eða
snöggt augnatillit verið
túlkað sem algjörlega
óviðeigandi.
Nokkrar tegundir af
erfiðum einstakling-
urn Hægt er að
flokka nokkrar tegundir af
erfiðum einstaklingum.
Mikilvægt er að hafa í
huga að hér er um
tilbúna flokkun að ræða
og lesa verður lýsing-
arnar með nokkrum fýrir-
vara. Veruleikinn er
flóknari en þessar stuttu lýs-
ingar gefa til kynna.
Einræðisherrann.
Leyniskyttur Leyniskyttur, stundum
kallaðir kafbátar, eru erfiðustu ein-
staklingarnir að eiga við á vinnu-
stöðum. Vinnubrögð leyniskyttna
eru þannig að þær ráðast á fólk að þvi
fjarstöddu og eru sakleysið upp-
málað þegar málin eru rædd við þá.
Leyniskyttur verða gjarnan til þegar
breytingar ganga yfir og finnst að
gengið sé á þeirra hlut. Þetta eru oft
gerendur í eineltismálum sem
beinast að stjórnendum (oft verstu eineltismálin).
Mikilvægt er að vanda til verka þegar leyniskyttan er tekin
fýrir. Lykilatriði er að þekkja alla málavexti með því að leita af
sér allan grun um sekt hennar áður en rætt er við hana. I sam-
tali við leyniskyttuna segir sá sem orðið hefur fýrir barðinu á
henni að hann viti hvað hún hafi sagt um sig og að hann sætti
sig ekki við það. Einnig að ef slíkt heldur áfram þá verði hún
að taka afleiðingunum. Varasamt er að fara í kappræður um
það hver sagði hvað því búast má við að leyniskyttan neiti
öllu, reyni að bera af sér sakir og vilji vita hver sagði hvað. Oft
þarf að ræða við hópinn sem er í kringum leyniskyttuna og
gera hveijum og einum ljóst að við núverandi ástand verði
ekki unað. Hægt er að undirstrika
alvarleikann m.a. með því að hóta
uppsögn, að áminning verði veitt
eða að rætt verði við stjórnanda
og trúnaðarmann. Ekki er skyn-
samlegt að afvopna leyniskyttur
opinberlega, betra er að ræða
við þær undir fjögur augu.
Einræðisherrar Fyrir-
ferðarmestu erfiðu ein-
staklingarnir eru ein-
ræðisherrarnir. En það
eru einstaklingar sem
öðlast stöðu og vald
með því að gera lítið úr
öðrum og nota hæðni og
hávaða til að koma sínum
málum áleiðis. Þeir verða
fljótt reiðir og fara yfir strik-
ið í samskiptum. Sjálfstjórn
þeirra er ekki mikil því þeir
stjórnast af eigin reiði og
pirringi. Kurteisi þeirra
Leyniskyttan.
144