Frjáls verslun - 01.08.2003, Side 146
Mikilvægi stefnumótunar
Fyrirtæki sem vinnur markvisst í
stefnumótun er betur í stakk búið til
að mæta breytingum í framtíðinni. í
stefnu fyrirtækisins kemur fram hvert
hlutverk fyrirtækisins er, hver framtíðar-
sýn þess er og hvaða meginmarkmið
verða sett á oddinn í starfseminni. Með
yfirlýstri stefnu hafa starfsmenn skýr
markmið til að vinna eftir í störfum sínum.
Stefna fyrirtækisins sameinar starfsmenn í aðgerðum sínum
og veitir leiðsögn i ákvarðanatöku innan fyrirtækisins. Metn-
aðarfull stefna fyrirtækis hvetur til samstarfs starfsmanna svo
að hámarksárangur náist. Fyrirtæki sem starfar eftir metnaðar-
fullri framtíðarsýn og háleitum markmiðum er Hklegra til að
byggir upp öfluga liðsheild þar sem áherslurnar koma skýrt
fram í starfseminni og þeim virðisauka sem unnið er að úti á
markaði.
Horl lil framtíðar Bókin Horft til framtíðar - stefnumótun í lif-
andi fyrirtæki fjallar um mikilvægi stefiiumótunar til að viðhalda
samkeppnishæihi fyrirtækisins, þannig að horft sé til framtíðar.
Stefnumótunarramminn er kynntur í bókinni en hann
samanstendur af fimm þrepum sem
nauðsynleg eru þegar unnið er að
því að setja saman stefnu fyrirtækis-
ins (sjá mynd).
I bókinni er fjallað um mörkun
stefnu, allt frá viðskiptahugmynd
þar til að fyrirtæki er stofnað. Með
stofnun fyrirtækis má segja að við-
skiptahugmyndin verði að viðskipta-
líkani sem síðan verður að huga að í
samkeppninni. Stefnu fyrirtækisins
er ætlað að virkja starfsmenn þannig
að þeir vinni sem ein heild að sam-
eiginlegum markmiðum. Fyrirtæki
þurfa að hámarka tækifæri í samkeppn-
inni, en um leið leita leiða til að aðlagast
breytingum. Til að viðhalda steíhu í lifandi
fyrirtæki þarf að vinna að stefnumótandi
málum með reglubundnum hætti. Ein leið,
sem kynnt er í bókinni, er að koma upp
stefnumótunarferli í starfseminni.
Stefiiu fyrirtækisins er ætlað að hvelja
starfsmenn til að líta upp úr „kössunum" á
skipuritinu og sjá heildina í störfum sínum. Fyrirtæki sem
byggir upp Kðsheild, sem vinnur að sameiginlegum mark-
miðum, býr yfir mikilli auðlind, þ.e. sterkri fyrirtækjamenningu.
Að vera Viðbúinn Víst er að breytingar verða og óvissan eykst
fremur en hitt Eina sem við vitum um framtíðina er að hún
verður öðruvísi en dagurinn í dag. Stefnumótunarvinna innan
fyrirtækisins miðast við að búa fyrirtækið undir breytta framtíð.
Stefna fyrirtækisins hjálpar til við að einblína á „réttu hlutina" og
þar skiptir máli að rækta kjarnastarfsemina og víkja ekki frá við-
skiptahugmyndinni sem fyrirtækið byggist á. Með þvi að hafa
þessa þætti til hfiðsjónar byggir fyrirtækið á styrk sínum og um
leið minnka fikurnar á því að farið sé út af sporinu sem í versta
falli getur leitt til gjaldþrots.
Það er mikil þolraun að koma upp
fyrirtæki. Það er sömuleiðis vanda-
samt verk að stýra fyrirtæki-
Sífelldar breytingar, hvort heldur
sem er aukin samkeppni á flestum
sviðum, tæknibreytingar, yfirtökur
og samrunar í greininni eða breyt-
ingar í lagaumhverfi svo að eitthvað
sé nefiit, einkenna rekstrarumhverfi
flestra fyrirtækja í dag. Fyrirtæki
verða jafnframt að gæta að því að
endurskoða viðskiptalikanið reglu-
lega, en svokallaður fiftimi á vörum á
Magnús ívar Guðfinnsson viðskipta-
frœðingur erpessa dagana að senda
frá sér bók um stefnumótun ífyrir-
tœkjum. Höfundurfiallar hér um
bókina ogpetta athyglisverða efni.
Texti: Magnús Ivar Guðfinnsson
Stefnumótunarramminn: Yfirlitsmynd
4. Viðskiptahugmynd
Stefnumótunarramminn er kynntur í bókinni en
hann samanstendur af fimm þrepum sem nauð-
synleg eru þegar unnið er að því að setja saman
stefnu fyrirtækisins.
146