Frjáls verslun - 01.08.2003, Page 160
FLOTASTJÓRN FYRIRTÆKJA
Svarti kassinn erþekktur úrfluginu en minna úr
/
akstri. Það erþó að breytast. Islenskt fyrirtæki
hefurþróað nýjan kassa í bíla, svarta kassann.
Kassinn veitir ökumönnum aðhald og stuðlar að
góðakstri. Reynslan sýnir að rekstrarkostnaður
lækkar um þriðjung og tjónum fækkar um helming.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir Geir Olafsson
Svarti kassinn er þekktur úr fluginu en minna úr akstrin-
um þar sem hann hefur verið nánast óþekktur, að
minnsta kosti hér á landi. Það virðist þó ætla að
breytast. Islenskt fyrirtæki hefur þróað nýjan kassa í bíla,
svarta kassann, sem er haganlega komið fyrir á mælaborði
eða öðrum heppilegum stað og tengdur við rafmagnið í
bílnum. Kassinn veitir ökumönnum aðhald og stuðlar að
góðakstri. Kassinn er sambærilegur svarta kassanum í
fluginu þó að hann taki ekki upp nein samtöl. Hann er í raun-
inni ökuriti sem fylgist með hraða bílsins, staðsetningu og
allri aksturshegðan ökumannsins, t.d. því hversu hratt hann
ekur í beygjur. GPS-tæki er í kassanum og er því hægt að
mæla stað og stund og senda svo mælingarnar með GSM-
síma í gagnagrunn fyrirtækisins. Þannig er hægt að sjá
hvernig ekið er í Artúnsbrekku, þar sem er 80 km hámarks-
hraði, eða á Kambsvegi þar sem hámarkshraðinn er 30 km.
Svarti kassinn er kominn í um það bil 200 bíla hjá um 30 fyrir-
tækjum og reynslan er góð. Hún sýnir að ökumenn keyra
hægar og betur, bensíneyðsla og slit á dekkjum minnkar
verulega og þar með dregur úr mengun. Reynslan sýnir að
rekstrarkostnaður getur lækkað allt að 30% og tjónum hefur
fækkað um allt að helming.
Ökuritinn veitir aðhald ,Árangurinn er frábær. Ökuritinn
Saga veitir ökumönnum mikið aðhald. Viðkomandi starfs-
maður fær fulla vitneskju um það þegar hann er settur í bílinn
enda má ekki fela svona búnað samkvæmt lögum um
persónuvernd. Tilgangur ökuritans er sá að draga úr hraða
og stuðla að góðakstri og spara þannig í rekstri ökutækja.
Þetta tæki veitir jákvætt aðhald, það er forvarnartæki og
hvatning til góðaksturs. Með þessu tæki geta yfirmenn fýlgst
með akstri bílstjóra sinna og rætt við þá ef ástæða þykir til.
Með því að veita þetta aðhald breytist akstursmynstrið og
hegðunarmynstrið hjá ökumönnum. Almennt séð spara fýrir-
tæki um 30% í rekstrarkostnaði síns bílaflota,“ segir Friðgeir
Jónsson, framkvæmdastjóri ND á Islandi ehf.
ND er nokkurra ára gamalt fýrirtæki og standa bók-
stafirnir NI) í rauninni fýrir New Development á ensku. Það
gefur sjálfsagt til kynna metnað fýrirtækisins og eigenda þess
til framtíðar en Jýrirtækið hyggur á samkeppni við erlend
fýrirtæki með svipaða ökurita auk þess sem það ætlar að gera
út á sérstöðu kassans. Það sem íslenski kassinn hefur fram
yfir þá erlendu er sú hugmyndafræði að skapa aðhald og
hagræðingu í rekstri. „Það er einstakt í okkar tilfelli," segir
Friðgeir. „Við höfum hvergi annars staðar í heiminum fundið
fýrirtæki sem beita þessari aðferðafræði í flotastjórn og
höfum þó vafrað mikið um á Netinu. Við erum með þessa
aðferðafræði í einkaleyfisferli og bindum miklar vonir við að
það gangi eftir.“
Hve hratt í beygjur? ND hefur unnið að ýmsum þróunar-
verkefnum og mælingum í tengslum við ökuritann og
hugmyndafræðina um flotastjórn fýrirtækja. ND hefur mælt
beygjur á þjóðvegum landsins fýrir Vegagerð ríkisins i
gegnum Rannsóknarráð umferðaröryggismála og er nú fyrh
hendi djúpstæð mæling á beygjum úti um allt land. Með
þessum mælingum er hægt að fmna út hve hratt má aka i
beygjurnar með öruggari hætti og um leið að kortleggja
hættulegustu beygjurnar. Þá hefur ND á íslandi verið að
vinna þróunarverkefni sem byggir á því að mæla ekna vega-
lengd bifreiða.
„Með þessu þróunarverkefni erum við að athuga hvort
tækið geti með miklum áreiðanleika fundið út hvaða vega-
lengd bílar aka sem borga þungaskatt samkvæmt ekinni
vegalengd. Verið er að athuga hvort þessi tækni henti til
slíkra mælinga,“ segir Friðgeir og telur ND eiga mikla mögu-
160