Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 162
VIÐjjÍL FLUGSTÖÐIN
Oánægjan er meðal kaupmanna í Flugstöð Leijs Eiríks-
sonar. Kaupmenn reka verslanir með priggja mánaða
uppsagnarfresti og forval á viðskiptatækifærum í flug-
stöðinni er í bið meðan málið er hjá heráðsdómi.
Efdr: Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
W
Oánægja er meðal verslunareigenda í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar og kemur þar ýmislegt tiL í stuttu máli má
segja að verslunareigendur séu ósáttir við að Flugstöðin
leigi þeim húsnæði um leið og hún veiti þeim samkeppni í
verslun með rekstri á Fríhöfninni. Þeir eru einnig undrandi á
því að Fríhöfnin njóti forréttinda og sitji ekki við sama borð og
þeir sjálfir í því forvali sem átti sér stað á viðskiptatækifærum
innan flugstöðvarinnar frá því í fyrra. Þetta forval er nú í bið-
stöðu og á meðan eru leigusamningar verslana endurnýjaðir á
þriggja mánaða fresti. Þetta skapar verulega óvissu um framtíð
fyrirtækjanna í flugstöðinni. Þá er rétt að minnast greinargerð-
ar Rikisendurskoðunar fyrr á þessu ári þar sem m.a. voru
gagnrýndar greiðslur til stjórnarmanna í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar hf. vegna verkefna fyrir flugstöðina. Ýmsir viðmælendur
Frjálsrar verslunar telja að hlutafélagavæðingin í Flugstöðinni
hafi ekki heppnast nógu vel og að heppilegt væri að endur-
skoða lagasetninguna og færa til svipaðs vegar og gildir í
mörgum nágrannalöndum. Þetta hefur verið rætt við háttsetta
menn í embættiskerfinu.
Rétt er að taka fram að stjórnendur Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar eru ekki sammála þessu og henda á hvernig til hafi
tekist í rekstri félagsins þar sem tapi hafi verið snúið í hagnað,
framlegð rekstrar aukist og eigið fé vaxið um 1.000 milljónir
króna frá stofnun. A heimasíðu flugstöðvarinnar, www.air-
port.is, má sjá greinargerð Ríkisendurskoðunar og athuga-
semdir stjórnar flugstöðvarinnar. Þar kemur m.a. fram að inn-
grip stjórnar vegna endurskipulagningar framkvæmda og
markvissara kostnaðareftirlits hafi lækkað framkvæmdakostn-
að um 800 milljónir króna frá því að félagið var stofnað.
Hér er aðeins stiklað á stóru um ágreiningsefnin. Fijáls
verslun ræddi við tvo kaupmenn í flugstöðinni, Sævar Jónsson
og Loga Úlfarsson, og fékk svör frá Höskuldi Ásgeirssyni,
framkvæmdastjóra flugstöðvarinnar. SIl
Leifsstöð?
/
Logi Ulfarsson,
framkvæmdastjóri Islensks markaðar:
RÍKIÐ í SAMKEPPNI
VIÐ VERSLANIRNAR
að er biðstaða í Flugstöðinni og þannig hefur það verið
lengi. Það var efnt til forvals fyrir ári síðan þar sem rekstur
allra fyrirtækjanna nema Fríhafnarinnar, sem er í eigu ríkisins,
var boðinn út. Þetta forval var kært til Samkeppnisstofnunar af
íslenskum markaði og það hvernig að því var staðið. Þetta mál
fór í ákveðið ferli, þegar niðurstaðan kom var henni áfrýjað til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Niðurstaða nefndarinnar
var tiltölulega óskýr þannig að hún var kærð til héraðsdóms og
þar er málið núna. Meðan á þessu hefur staðið hefur ekkert
gerst í málefnum þeirra sem hér reka starfsemi. Málarekstur
Islensks markaðar er til kominn vegna þess að FLE braut sam-
keppnislög með forvalinu og það hefur verið staðfest af Sam-
keppnisráði og áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Það er hið al-
varlega í málinu. Menn eru ósáttir við þá stöðu sem þeir eru
settir í þar sem þeir eiga ekki sök á því að svona er komið.
Þeim hefur fundist að það mætti ganga frá samningum til
bráðabirgða í stað þess að vera með sinn rekstur, í sumum til-
vikum stór fyrirtæki, á þriggja mánaða uppsagnarfresti. Það er
erfiðleikum háð, það gefur auga leið. Á sama tíma er Fríhöih-
in á auðum sjó. Stjórnendur hennar eru ánægðir með niður-
stöður áfrýjunarnefndarinnar vegna þess að samkvæmt henni
fengu þeir ákveðið tækifæri til að leysa úr sínum málum með
því að fara framhjá vilja Samkeppnisráðs með útúrsnúningum.
íslenskur markaður hefur var ekki ánægður með þá niður-
stöðu og við höfum við engin tækifæri til andmæla nema fyrit
dómstólum. Við höfum engan annan aðila sem við getum snú-
ið okkur til,“ segir Logi Úlfarsson, framkvæmdastjóri íslensks
markaðar og gagnrýnir að sami aðili sé bæði samkeppnisaðili
og leigusali, það fari ekki alveg saman.
Búast má við niðurstöðu frá héraðsdómi nú um mánaða-
mótin september-október því að málið fékk flýtimeðferð og
verður áhugavert að sjá hver niðurstaðan er. Ljóst er að um
tvennt verður að ræða, sæta niðurstöðunni eða áfrýja lengra-
Upphaflega gengur kæran út á það hvernig staðið var að for-
valinu og leigutökum mismunað meðan t.d. Flugstöðin sjálf er
í „bullandi samkeppni við sína leigutaka," segir Logi. „Mönn-
um hefúr fundist óeðlilegt að í forvalinu sé kjarninn, bestu
svæðin og vöruflokkarnir, tekinn frá fyrir Fríhöfnina og hinum
síðan att út í samkeppni við ótilgreinda aðila úti í bæ um það
sem eftir er. Samráð við leigutaka hefur ekkert verið og mönn-
um hefur fundist það tilefni til tortryggni og óánægju, einnig
eru þeir ósáttir við að hafa staðið í eldlínunni í fimm ár í hálf-
162
A