Frjáls verslun - 01.08.2003, Síða 164
Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
f
Höskuldur Asgeirsson,
framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar:
EKKIVIÐ OKKUR
AÐ SAKAST!
svæðisins. Þrátt fyrir úrskurð áfrýjunarnefndar-
innar ákvað Islenskur markaður að halda áfram
málarekstri með því að stefna flugstöðinni og
Samkeppnisstofnun fyrir dómstólum til ógild-
ingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála. Varakröfum hefur verið vísað frá dómi og
eftir stendur aðalkrafan. Vegna þessa varð flug-
stöðin að fresta því að leggja ofangreindar til-
lögur fram. Meðan á þessu stendur getum við
ekki haldið áfram með þennan þátt í forvalinu en
það er ekki við okkur að sakast. Flugstöðin hefði
verið búin að afgreiða málið fyrir löngu ef þessi
kæra hefði ekki komið upp. Við skiljum mæta-
vel að rekstraraðilar séu óánægðir með þessa
óvissu og eru eflaust uggandi að vera einungis
með þriggja mánaða samning en það er ekki
hægt að leysa hnútinn fyrst íslenskur markaður valdi þessa
dómstólaleið," segir Höskuldur Asgeirsson og bendir á að þeir
rekstraraðilar í flugstöðinni, sem tóku þátt í forvalinu, njóh
frumkvöðlastarfs síns þegar umsóknir verði metnar þvi að
tekið verði tillit til þekkingar, reynslu og getu ásamt arðsemi,
vörustyrkleika, samhæfni og áhrifa á heild og nýbreytm. I
þessu vegi þekking, reynsla og geta þriðjung af heildarmatinu.
Við fórum af stað með forvalið um miðjan ágúst í fyrra. Við
kynntum forvalið með það að markmiði að efla þjónustu við
ferðamenn í flugstöðinni og gera verslunarrekstur, veitinga-
rekstur og aðra þjónustu fyrir þá flölbreyttari og fjölga rekstrar-
aðilum í flugstöðinni. Markmiðið var að gera þetta að meira
spennandi umhverfi. Síðan kærði einn rekstraraðili, þ.e.
Islenskur markaður, forvalið til Samkeppnisstolhunar. Hún
úrskurðaði kærandanum í vil. Við áfrýjuðum til áfrýjunarnefiidar
samkeppnismála og hún kvað upp okkur í vil. Þetta sætti þessi
rekstraraðili sig ekki við og stefndi flugstöðinni og Samkeppnis-
stofnun til ógildingar þessum úrskurði,“ segir Höskuldur
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Málið er nú fyrir héraðsdómi og verður beðið með versl-
unarþáttinn úr forvalinu þangað til niðurstaða er fengin en á
næstunni verður haldið áfram með veitingareksturinn og
bankaþjónustuna og heíjast
fljótlega viðræður við þá sem
valdir eru í þeim hluta forvals-
ins. Niðurstaðan í því á að
liggja fyrir á haustmánuðum.
Höskuldur telur að ekki hafi
staðið á stjórnendum Flug-
stöðvarinnar að ljúka vinnslu
forvalsins og ganga til samn-
inga þar um í Flugstöðinni.
„Við vorum sáttir við niður-
stöðu áffýjunarnefndar sam-
keppnismála og vorum til-
búnir að leggja fram tillögu
fyrir Samkeppnisstofnun um
fyrirkomulag fríverslunar-
- Kristallast tiessi óánægja ekki bara í því að ríkið er í verslunar-
rekstri? „Það er munur á ríkisstofnun eða hlutafélagi í eigu
ríkisins. Við störfum efdr hlutafélagalögum og erum því ekki
ríkisstofiiun. Rekstrinum var breytt árið 2000 með lögum fru
Alþingi þegar fasteignareksturinn, sem var ríkisstofnun, og ríkis-
fríhöfiiin voru sett saman í eitt hlutafélag. I lögunum er kveðið a
um að félagið eigi og annist rekstur, viðhald og uppbyggingu
flugstöðvarinnar, þ.m.t rekstur verslana með tollfrjálsar vörur a
Keflavíkurflugvelli og hvers konar aðra starfsemi sem þessu
tengist. Astæða hlutafélagavæðingarinnar var fyrst og fremst
sú að tryggja að hægt væri að standa undir þeim miklu skuld-
bindingum sem þessar ríkisstofnanir höfðu tekið á sig, sérstak-
lega fasteignahlutanum. Hlutafélag á þess kost í ríkari mæli en
ríkisstofnun að laga sig að breyttum aðstæðum enda býður
rekstrarformið upp á meiri sveigjanleika en við verður komið í
hefðbundnum stofnanarekstri.
Mikil langtímalán hvíla á té-
laginu sem ekki hafði verið
borgað af síðan flugstöðin var
tekin í notkun 1987. Félagið er
nú íjárhagslega sterkt og hefur
náð að fullnægja kröfum og
væntingum sem til þess voru
gerðar í upphafi. Það var rekið
með 839 milljóna króna hagn-
aði eftir skatta á árinu 2002,
greiddi skuldir sínar niður um
700 milljónir króna og greiddi
jafnframt 10% arð í ríkissjóð,
250 milljónir króna,“ svarar
Höskuldur.Sli
AFKOMfl FLUGSTÖÐtfARINNAR
- í milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins 2003
miðað við sama tíma 2002
2003 2002
Rekstrartekjur ... 1.963 .... 1.785
Rekstrargjöld án afskrifta ... 1.392 .... 1.363
Hagnaður fyrir afskriftir ... 571 .... 422
Hlutfall hagnaðar af rekstrartekjum ... ... 29% .... 24%
Afskriftir ... 355 .... 323
Hagnaður fyrir fjármunaliði ... 216 .... 99
FjármunatekjurAgjöld ... -78 .... 487
Hagnaður fyrir skatta ... 137 .... 586
Skattar ... -37 .... -115
Hagnaður eftir skatta ... 191 .... 470
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
164