Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 172
„Ég hef æft í 18 ár og alltaf á sama stað, enda held ég að ég yrði fljótt skrítinn í laginu ef ég gerði það ekki. Heilsan er mér
mikilvæg og ég tel að til þess að líta vel út þurfi manni að líða vel," segir bakarameistarinn Jói Fel.
Mynd: Geir Ólafsson
Jói Fel - bakarameistari
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
að er auðvitað klisju-
kennt að segja að Jóa
Fel þekki allir, en
reyndin er nú samt sú að það
vita allir hver hann er. Hafi
brauðin hans ekki dugað til
er nokkuð víst að metsölu-
bók hans um brauð hefur
dugað til þess arna.
Brauð voru ekki hátt skrif-
uð á Islandi lengi vel og helst
til þess hæf að nota í kaffitím-
um og nesti. Það hefur
breyst hressilega og er ekki
síst listabökurum á borð við
Jóa Fel að þakka.
„Yið erum búin að reka
þetta bakarí í 6 ár og á þeim
tíma höfum við lagt áherslu á
að byggja upp þjónustu sem
ekki bara byggir á brauði og
kökumsegir Jói Fel, sem
reyndar heitir Jóhannes Felix-
son fullu nafni, þar sem hann
stendur við marmaraborð og
172
notar tímann til að búa til fal-
legar súkkulaðiskreytingar.
„Mín vinna hér liggur nú orð-
ið mest í hönnun og því að
leggja línurnar í rekstrinum
um leið og ég hjálpa strákun-
um ef þarf. Þar fyrir utan hef
ég verið að skrifa, bæði bæk-
ur og sjónvarpsefni, og það
tekur góðan tíma líka.“
Aðalhjálparhella Jóa er
eiginkona hans, Unnur
Gunnarsdóttir, en að sögn
Jóa „sé ég um að baka en hún
gerir allt hitt.“ Unnur hefur
umsjón með bókhaldi og fjár-
málum fyrirtækisins og
stendur við hlið Jóa í hverju
því sem upp á kemur.
„Hér eru nú um 25 manns
í vinnu en okkar aðalsmerki
og það sem við viljum helst er
að hér sé hreyfing, að bakarí-
ið sé framsækið og tilbúið til
að fást við nýjungar," segir Jói
sem er nýkominn heim frá
Italíu þar sem hann, ásamt
eiginkonu sinni, eyddi
nokkrum dögum í að skoða
mat, borða mat og læra um
mat, enda matur og allt sem
honum viðkemur helsta og
stærsta áhugamál þeirra
hjóna. Það sést þó ekki á þeim
en leyndarmálið er upplýst -
líkamsrækt.
„Við stundum bæði mikla
líkamsrækt en það er annað
stórt áhugamál okkar," segir
Jói. „Ég hef æft í 18 ár og alltaf
á sama stað, enda held ég að
ég yrði fljótt skrítinn í laginu
ef ég gerði það ekki. Heilsan
er mér mikilvæg og ég tel að
til þess að líta vel út þurfi
manni að líða vel.“
Áhuginn á bakstri hefur
lengi fylgt Jóa en hann hóf
nám í bakaraiðn 16 ára gamall
hjá Nýja kökuhúsinu.
Skömmu eftir að hann hætti
þar opnaði hann sitt eigið bak-
arí og hefur rekið það síðan.
Fyrir utan matargerð og
hreyfingu hefur Jói áhuga á
veiðum. Kannski má segja að
matarástin komi þar inn í líka
en hann hefur gaman af skot-
veiði og segist skjóta bæði
gæs og hreindýr. Og að ferð-
ast um heiminn.
„Við förum talsvert í ferða-
lög til þess að kynna okkur
það sem er að gerast í matar-
gerð og bakstri,“ segir hann.
„Ég les talsvert um mat líka
og reyni að fylgjast með þvi
sem er að gerast sambandi
við hann um allan heim. Svo
erum við nú að vinna að gerð
sjónvarpsþáttar sem kemur til
með að fjalla um mat og mat-
artilbúning, en þar verður
áherslan á einfaldleikann, að
fólk geti auðveldlega leikið
eftir það sem sýnt er, þó svo
fyrsta flokks hráefni verði not-
að. Það er löngu orðið tíma-
bært að búa til svona þátt og
hann kemur til með að verða
sýndur í haust“5!]