Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2003, Side 174

Frjáls verslun - 01.08.2003, Side 174
„Það er miklu auðveldara fyrir mann að sökkva sér niður í verkefni sem maður hefur gríðarlegan áhuga á og stofnun eigin fyrirtækis er stórverkefni sem krefst mikils af manni," segir Anna Lilja Pálsdóttir, eigandi og stofnandi einu sérverslunar landsins með golfvörur fyrir konur. Mynd: Geir Ólafsson Anna Lilja Pálsdóttir í Parfimm Efdr Vigdisi Stefánsdóttur Sérverslanir með golf- vörur eru nokkrar hér á landi en aðeins ein þeirra hefur sérstaklega á boðstólum golfvörur fyrir konur. Þetta er verslunin Parfimm, sem opnuð var í sumar. Eigandi hennar er Anna Lilja Pálsdóttir, áhuga- manneskja um golf og við- skipti. „Þegar ég fór af stað með þessar pælingar mínar mat ég það svo að það væri gat á markaðnum og að ekki væri verið að sinna nógu vel mark- hópnum konur í golfi,“ segir Anna Lilja. „Hér eru nokkrar sterkar verslanir með golf- vörur en þarna sá ég tæki- færi, að með því að bjóða upp á mikið vöruúrval fyrir tiltek- inn markhóp ætti ég ágætis möguleika á árangri." Það er alltaf gott að geta sameinað áhugamál og vinnu en kannski má spyija hvað sé öðruvísi við kvennagolf en karla. Af hveiju þurfi sérstaka verslun með vörur fyrir konur. „Því er til að svara að konur hafa öðruvísi líkams- byggingu en karlar og þurfa þar af leiðandi kylfur sem hannaðar eru sérstaklega fyrir þær en ekki einfaldlega sfyttar karlakylfur," segir Anna Iilja. „Fáar konur hafa sama afl og karlar þó að þær hafi tæknina á sínu valdi og því eru kylfurnar öðruvísi hannaðar og hvað fatnað og skó varðar er aðaláherslan á mikið vöruúrval. Konur vilja auðvitað fá fatnað við hæfi sem er hannaður með það fyrir augum að hefta ekki hreyfingar og jafhiramt eru ákveðnir tiskustraumar í þessu eins og öðru. Til þess að geta boðið gott úrval er að mínu mati betra að einbeita sér að tilteknum markhópi í stað þess að reyna að vera með allt fyrir alla. Viðbrögðin hafa sýnt mér að um mikla þörf er að ræða því að mjög margar konur stunda golf hér á landi og þeim fer ört ijölg- andi. I framhaldi af vörum fyrir konur hef ég verið að skoða golfvörur fyrir börn og unglinga og hef þegar hafið kynningu og sölu á þeim.“ Anna Lilja er ekki ókunn- ug sölumennsku því hún vann í 6 ár hjá Teymi við sölu- og markaðsmál. Hún taldi sig vanta meiri mennt- un og fór í nám, fyrst í stað í eins árs nám í markaðs- og útflutningsfræðum og í fram- haldi af því hóf hún nám í við- skiptafræði með vinnu við Háskólann í Reykjavík en því námi lýkur á næsta ári. „Eg var búin að vinna lengi hjá Teymi og þar á undan í 7 ár hjá Ibúðalánasjóði og lang- aði til að prófa eitthvað nýtt," segir hún. „Mér var ofarlega í huga að gera eitthvað sem ég hefði ánægju af sjálf, eitthvað sem krefðist mikils af mér og væri mitt eigið. Eg reyndi að fara rétt að þessu í samræmi við það sem ég hafði lært og byijaði á því að gera viðskipta- áætlun sem ég lagði fyrir nokkra sem ég taldi hafa gott vit á þessum málum og fékk hjá þeim góð ráð og viðbrögð. Það er miklu auðveldara fyrir mann að sökkva sér niður í verkefni sem maður hefur griðarlegan áhuga á og stofn- un eigin fyrirtækis er stór- verkefni sem krefst mikils af manni. Þar sem golf hefur lengi verið mitt aðaláhugamál fannst mér frábært að geta sameinað þetta tvennt, lifi- brauð og áhugamál og ég sé að það getur gengið vel upp. Eg er hins vegar nýgræðing- ur í að spila þvi að það eru ekki nema rétt tvö ár frá því ég byijaði. Eg vildi láta börnin mín verða nógu stór til að geta spilað án samviskubits en drengurinn minn, sem nú er 10 ára gamall, er reyndar á kafi í golfinu með mér. Nafnið Parfimm minnir mjög hressilega á golf en er einhver sérstök hugsun á bak við það önnur en brautarnafn? ,Jú, það má segja að það sé hugsun á bak við nafnið þó að hún sé ef til vill ekki sérstaklega djúp,“ segir Anna Lilja. „Par 5 brautirnar eru oftast ansi langar og það þarf stundum mörg högg til að komast þær á enda. Þar sem konur eru yfirleitt högg- styttri en karlar, reynast þessar löngu brautir fremur erfiðar fyrir þær. Þannig er nafnið tenging við golfið og um leið kannski svolítið vís- un í að konur geta allt þó svo sumt sé þeim seinunnara en körlum." 33 174
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.