Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 110

Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 110
„Maður lifandi er ekki eingöngu með grænmetisfæði, stílað er upp á fjölbreytt fæði sem er framúrskarandi hollt og gott, án allra aukaefna og lífrænt ræktað að langmestu leyti,“ segir Hjördís Ásberg. FV-mynd: Geir Ólafsson Hjördís Ásberg hjá Maður lifandi Eftir ísak Öm Sigurðsson Maður lifandi er tveggja mánaða gamalt fyrir- tæki sem sett var á stofn í Borgartúni 24 í septem- ber sl. Okkar markmið með rekstrinum er að bjóða upp á hollustufæðu, vera með mikið úrval af lífrænt ræktaðri mat- vöru og jafnframt með góða og holla tilbúna rétti, bæði heita og kalda, til að borða á staðnum eða taka með sér,“ segir Hjördís Asberg, annar eigenda Maðurlifandi. Maður lifandi er allt í senn heilsuvöru- verslun, matstofa og fræðslu- setur með aðstöðu fyrir fundi, námskeið, ráðgjöf o.fl. Hér er fjölbreytt starf- semi, námskeiðahald, jóga, næringarráðgjöf, nálastungu- meðferð svo eitthvað sé nefnt Við leigjum út sal og herbergi fyrir minni og stærri hópa og í matstofunni eru sæti fyrir 45 manns. Staðsetningin hér í Borgartúninu er mjög góð, þvíhérvinnaogbúa þúsundir manna á svæðinu og á enn eftir að Ijölga á næstu árum.“ Hjördís er mjög ánægð með byijunina. „Við höfum fengið feikilega góðar við- tökur og það virðist vera full þörf á stað eins og þessum, þar sem fólk getur treyst þvi að allar vörur og tilbúnir réttir séu úr úrvalshráefni. Yið bökum brauð úr spelti og útbúum frábærar samlokur. Súpumar em án hveitis og einungis notað ferskt hráefni. Engan hvítan sykur er að finna í matvömm né matseld og þannig fáum við t.d. kjúkl- ingabringur sem er sérstak- lega pakkað bara fyrir okkur og em ekki sykursprautaðar. Fólk er sífellt að gera meiri kröfur um góða heilsu og vel- líðan og gerir sér þannig grein fyrir að það skiptir miklu máli hvað borðað er. Áhugi á lífrænni fæðu hefur aukist griðarlega og fólk áttað sig á þvi hversu ótrúlega mikið er notað af skordýraeitri og sveppadrepandi lytjum í hefð- bundinni ræktun fyrir utan svo öll aukaefnin, rotvamar- efni og litarefni sem bætt er í matvæli. Þetta er sama þróun og hefur átt sér stað erlendis og sú hugmyndafræði sem Maður lifandi byggir á er í samræmi við þessar breyttu áherslur. „Þeirsemviljakynna sér starfsemi okkar geta aflað sér upplýsinga á heimasíðu okkar, madurlifandi.is,“ segir Hjördís. Hjördís Asberg fór í Háskóla Islands í viðskipta- fræði að loknu Verslunarskóla- prófi og að loknu námi í HI fór hún að starfa við endur- skoðun hjá Endurskoðun hf. sem nú er KPMG. „Eg varð löggiltur endurskoðandi árið 1984 og starfaði hjá KPMG í 6 ár. I beinu framhaldi af starfi mínu þar fór ég að vinna hjá Eimskipafélagi Islands 1986 sem forstöðumaður flárreiðu- deildar. Eg sinnti mörgum störfum fýrir Eimskip, var forstöðumaður gæðastjóm- unardeildar, starfsmanna- stjóri, framkvæmdastjóri líf- eyrissjóðsins og starfaði þar alls í 14 ár.“ Hjördís hættí þar fyrir einu og hálfu ári og fór að sinna ýmsum ráðgjafa- störfúm og fór í nám í verð- bréfamiðlun í Háskólanum í Reykjavík. „A þeim tíma var ég mikið að velta vöngum yfir framtíðinni, hvort ég ætti að fara aftur inn í endurskoðunar- geiranum eða skipta algjör- lega um starfssvið. Ég ákvað að hella mér út í þetta verk- efni og sameina þannig áhuga- mál og vinnu, en ég hef lengi haft mikinn áhuga á heilsu- tengdum efnum og matseld og svo hefur mér alltaf þótt allur rekstur spennandi og skemmtilegt að geta fengist við tjölbreytt verkefhi. Þetta hefur verið gríðarleg vinna og við höfum lagt okkur fram við að hafa hagkvæmn- ina að leiðarljósi. Meirihluti húsgagna, eldhúss- og skrif- stofubúnaðar í Maður lifandi eru keypt úr húsi Eimskipa- félagsins við Pósthússtræti. Þeir hlutir hafa reynst okkur mjög vel. Eiginmaður Hjördísar Asberg er Hjörleifur Jakobs- son, forstjóri Olíufélagsins, og eiga þau þrjú böm á aldrinum 16-22 ára. ,Áhugamálin em ijölmörg hjá mér en því miður hefur ekki gefist mikill tími undanfarið tíl að sinna þeim. Meðal þeirra má telja ferða- lög, skíði og golf, en segja má að ég sé vinnufíkill og vinnan hefur því gjaman haft for- gang. Ahugamálin líða fyrir það,“ segir Hjördís.IU 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.