Morgunn - 01.12.1965, Side 13
MORGUNN 91
órækar sannanir fyrir, eins og sumra manna siður er, því
miður.
Skrifað stendur: Hvað gagnar manninum það að vinna
allan heiminn, ef hann bíður tjón á sálu sinni? Vafalaust má
bíða tjón á sálu sinni á fleiri en einn hátt. En sárasta tjónið
mun þó vera, ef vér glötum auðmjúkri þrá leitandans eftir
sannleikanum. Þrá, sem lýst er af mildi og umburðarlyndi
kærleikans, og studd af lotningunni fyrir Drottni allsherjar.
Ef viðhorf manna í trú og vísindum væru borin uppi af
þessu, mundu mörg vandamál samfélags vors leysast furðu
greiðlega. Og fátt er það og ef til vill ekkert, sem betur er
fallið til þess að halda uppi þessari leitarþrá, og skapa hina
fyllstu ábyrgðartilfinningu, en trúin á og vissan um fram-
hald lifsins og samband vort við hinn dulda heim. Þar eiga
trú og vísindi, lærðir og leikir að taka höndum saman for-
dómalaust um það eitt, að skapa fullvissu í stað efa.
Ég hóf mál mitt á því að segja, að þegar ég kæmi inn fyrir
þröskuld þessa kirkjuhúss, þætti mér sem ég væri að koma
heim. Ekki get ég hrósað mér af því að vera þó kirkjunnar
maður umfram aðra, nema síður sé. Hitt hefur mér þó lengi
ljóst verið, að kirkjan á miklu hlutverki að gegna í samfé-
lagi voru, og ef til vill er hún eina aflið í þjóðfélaginu, sem
fært er um að leysa ýmsan þann vanda, sem að steðjar. En
samt virðast áhrif hennar fara þverrandi. Ég ætla engan
að ásaka í því efni. Orsakirnar eru vafalaust margar. En þó
hljótum vér að spyrja: Vantar ekki einhvern samhljóm, eitt-
hvert tengiband milli kirkjunnar og almennings? Leggur
kirkjan sig nægilega fram í leitinni, sem er grunntónninn í
tilveru margra manna, og hefur dýpri áhrif á huga þeirra
en þeir ef til vill gera sér ljóst? Þeir vilja ekki taka við til-
reiddum kennisetningum, þótt gamlar séu, en vilja þreifa sig
sjálfa áfram, og æskja hjálpar og leiðbeiningar kirkjunnar í
þeirri leit. Og erum vér, sem stöndum utan dyrastafs kirkj-
unnar, ekki of tortryggnir í hennar garð? Eigum vér, sem á
greinir um ýmsa hluti, ekki of fáar viðræðustundir í fullri