Morgunn


Morgunn - 01.12.1965, Qupperneq 18

Morgunn - 01.12.1965, Qupperneq 18
96 MORGUNN megináherzlu á hið andlega eðli mannsins. En á meðan guð- fræðideildin er að efla og festa þá trú hjá hinum ungu guð- fræðingum, að ósýnilegur andi eða sál mannsins stjórni öllu lífi hans, þá er læknadeildin — rétt við hliðina á henni — jafn sannfærð um, að sjálfsagt sé að taka ekki tillit til neins annars en hinnar líkamlegu starfsemi í sambandi við kennslu læknaefnanna. Meira að segja er þeim, sem stunda geðsjúk- dómafræði, kennt í vaxandi mæli að treysta á sprautur, skurðhnífa og rafmagnstæki, og snúa sér að heilanum en ekki sálinni. Að sjálfsögðu á sú spurning, sem áður getur, fyrst og fremst heima á sviði sálarfræðinnar. Eðli hugans eða sálar- innar er, eins og nafnið bendir til, höfuðviðfangsefni sálar- fræðinnar, enda þótt ,,sálvísindi“ hafi í raun og veru ekki lengur neinn áhuga á sálinni. Jafnvel orð eins og sál (mind) eins og það var áður notað í alþýðumunni, er fremur snið- gengið á síðari árum. Því er það, að sá, sem nú les nýjar kennslubækur í sálarfræði eða fyrirlestra um það efni, sér þar hvergi sálarinnar getið og lítið minnzt á mannsandann, sem sjálfstæðan veruleika. f stað þess er þar rætt um mann- lega ,,hegðun“ og samband hennar við heilann og tauga- kerfið. Allt tal um samband sálar og likama er orðið úrelt. Og sú skoðun, að mannsandinn sé sjálfstæður veruleiki, sem starfi í sambandi við heilann og stjórni honum að einhverju leyti, fyrirfinnst ekki lengur innan sálarfræðinnar. Meðal sálfræðinga og raunar heimspekinga líka eru hinir gömlu verjendur þeirra skoðana, að maðurinn hafi „eðli tvenn“ — menn eins og William James, William McDougall, Henri Bergson og Hans Driesch — horfnir af sviðinu, og engir feta lengur í sporin þeirra. Kenningin um það, að mað- urinn hafi sál, heyrir nú fortíðinni til á meðal sálfræðing- anna. En, þótt undarlegt megi virðast, telur þó enginn hinna nýju spekinga sig geta sannað það, að mannsandinn sé að- eins efnislegt fyrirbæri. Og engin rökstudd tilgáta er til um það, hvað hin meðvitandi hugarstarfsemi sé i raun og veru.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.