Morgunn - 01.12.1965, Qupperneq 26
104
MORGUNN
ar virðast stafa af gömlum endurminningum og því sem
mönnum er mjög fast í huga. Sumir draumar bera sterkan
vott um það, að sál manns geti beinlínis farið burt úr hinum
sofandi líkama og ferðazt um fjarlæga staði. Aðrir virðast
bera vott um hugskeyti frá öðrum. Má vera, að þannig
megi skýra margt af hinum svonefndu daglátadraumum og
draumum fyrir gestkomum. Eru þó þær skýringar engan
veginn ávallt fullnægjandi. Enn eru þeir draumar, þar sem
mönnum eru sýndir ókomnir atburðir, oft löngu áður en
þeir gerast, annað hvort skýrt og ótvírætt eða í táknræn-
um myndum, sem menn ef til vill ekki skilja fylliiega þegar
í stað, en eru hins vegar ekki í vafa um, þegar atburðurinn
hefur gerzt, að draumurinn hafi til hans bent. Er þá sagt,
að draumar hafi rætzt eða komið fram. Miklu fleiri tegundir
drauma mætti nefna, en ekki er tími til þess hér.
Einkenni drauma eru meðal annars þau, að ímyndunar-
aflinu virðist þar oft gefinn mjög laus taumurinn, en sjálf
dómgreindin sýnist ekki vera að því skapi vakandi. Þess
vegna finnst manni í draumi margt vera eðlilegt og sjálf-
sagt, sem í vöku mundi teljast fjarstæða. Þó kemur það fyrir,
að menn í draumi furða sig á ýmsu, sem fyrir þá ber og telja
það óeðlilegt og sýnir það, að dómgreind er þar engan veg-
inn með öllu úr sögunni. Tímaskyn virðist og vera alit ann-
að í draumi en vöku. Og margt bendir til þess, að hraði
draumsins sé raunverulega miklu meiri en maður heidur, og
að draumur, sem manni finnst taka óratíma, gerist á ör-
skammri stund. Margt fleira er sérkenniiegt við draum-
ástandið, sem ekki er tími til að rekja hér.
Ég skal nú til gamans og nokkurs fróðleiks nefna hér
nokkur dæmi um mismunandi tegundir drauma.
Þjófiiriun í eldhúsimi.
Við hjónin bjuggum í nokkur ár á Ljósvaliagötu 8 í Rvik.
Húsaskipun var svo háttað, að eftir íbúðinni endilangri var
fremur mjór gangur eða forstofa og hurðir til beggja handa.