Morgunn - 01.12.1965, Page 27
MORGUNN
105
Fremst við þennan gang voru tvær hurðir sín hvorum megin.
Var um aðra gengið í eidhús en um hina í svefnstofu okkar
hjónanna. Síminn var í foi'stofunni, en nokkru innar.
Eina nótt dreymir mig það, að ég þykist vakna í rúmi
mínu við það, að opnuð er foi’stofuhurðin og gengið inn. Ég
þóttist í svefninum sannfærður um, að þetta væri þjófur.
Er þó áreiðanlega ekki hægt að segja, að ég sé maður þjóf-
hræddur. Ég þykist nú vekja konu mína og segja henni
hvernig komið er. Mér finnst við ræða málið nokki’a stund,
og verður niðurstaðan sú, að ég skuli klæðast í flýti og gæta
betur að því, hvað hér sé um að vei’a. Ég þykist nú opna
hurðina hljóðlega og gægjast fram. Það er myrkur á gang-
inum, en í eldhúsinu ei' ljós, og feilur hurðin aðeins lauslega
að stöfum. Ég veit, að þar inni muni þjófurinn vera. Hugsa
ég fyrst um að hringja á lögi'eglustöðina, en við nánari at-
hugun þykist ég sjá, að að það muni þegar vekja grun ill-
í’æðismannsins og að hann muni í’áðast á mig, áður en mér
takist að kalla á hjálp. Að lokum ræð ég af að bita í mig
kjark og ráðast hiklaust á fantinn, og hrindi opinni eldhús-
hurðinni. Sé ég þá hvar dóninn stendur við skáp skammt frá
glugganum og hefur breitt teppi yfir höfuð sér, sem huldi
hann ailan. Og í sama vetfangi sé ég að hann rekur skamm-
byssuhiaupið fram í teppið og miðar henni á mig. Við það
varð mér svo feimt, að ég vaknaði, og líklega með nokki’um
umbi’otum og andfælum, því konan mín vaknaði líka. Sagði
ég henni þegar drauminn. Varð það að samkomuiagi, að ég
færi fram úr til þess að aðgæta, hvoi’t allt væri með kyrr-
um kjörum í íbúðinni.
Og nú þótti mér dálítið kynlega við bi’egða. Myi'kt var í
foi’stofunni, en í eldhúsinu logaði ljós, og féll hurðin aðeins
lauslega að stöfum. Og þegar ég opnaði hana, stóð sonur
minn við eldhússkápinn í hoi’ninu við gluggann og var að
fá sér brauð og mjólk. Honum varð mjög bylt við að sjá mig,
hélt að allir væi’u í fasta svefni, hafði komið seint heim og
var að fá sér bita áður en hann færi að hátta.
Hér virtist það hafa verið óljós skynjun gegnum svefn-