Morgunn - 01.12.1965, Side 51
MORGUNN
129
spurningu, sem ýmsum kann að koma spánskt fyrir í fyrstu,
hvort skynfæiln kunni ekki að vera eins konar vörn og
hindrun, er standi beinlínis í vegi fyrir því, að hugurinn geti
aflað sér þeirrar þekkingar, sem hann annars væri fær um
að gera. Líkurnar fyrir þessari skoðun hafa mjög styrkzt á
síðustu áratugum vegna þeirra nákvæmu rannsókna, sem
fram hafa farið á f jarhrifum og ýmsum skynjunum manna
án aðstoðar skynfæranna. Það hefur þegar verið sýnt og
sannað, að menn geta, þegar hagstæð skilyrði eru fyrir
hendi, öðlazt vitneskju um eitt og annað, sem gerist í um-
heiminum, án allrar tilhjálpar líkamlegra skynfæra. Þessa
þekkingu sækja menn stundum í huga annarra manna, en
stundum ekki. Og ef það er svo, að mannshugurinn eða
mannssálin geti aflað sér slíkrar vitneskju úr órafjarlægð
frá þeim efnisheila, sem efnishyggjumennirnir segja, að hún
sé algjörlega bundin við og undir komin, þá er ekki nema
von, að mörgum fari að finnast kenningar þeirx’a meira en
vafasamar. Það er svo langt frá því, að hugurinn sé rígskorð-
aður við líkamann, að hann getur starfað óháður þeim tak-
möi’kunum, sem tími og rúm annai’s setja hinum efnis-
kenndu hlutum. Og það hefur ekki aðeins verið sýnt fram á
það með tili’aunum, að mannshugurinn er fær um að afla
sér vitneskju um atburði, sem gei’ast langt í burtu, heldur
einnig um hitt, að hann getur starfað í mikilli fjarlægð frá
efnisheilanum og meðal annars haft áhrif á það, hvaða flöt-
ur kemur upp á teningi, sem kastað er, ekki aðeins í annarri
stofu, heldur í mílnafjai’lægð. Augljóst er orðið, að skynj-
un eftir hinum venjulegu leiðum með aðstoð skynfæranna,
er mjög miklum takmöi’kunum bundin, enda þótt hún hafi
ýmsa ágæta kosti, og að hún er alls ekki eina leiðin til þekk-
ingaröflunar mannsandans. — Heimspekingurinn Bei'gson
sagði líka einu sinni, að engan veginn væri ósennilegt, að
efnisheilinn gæti verið tæki, ætlað til þess að takmarka
skynjunina.
Enda þótt trúin hafi ástæðu til að gagni'ýna vísindin fyrir
það að hallast um of að efnishyggjunni, þá verður að segja
9