Morgunn


Morgunn - 01.12.1965, Page 74

Morgunn - 01.12.1965, Page 74
Nýjar bækur ☆ Ritstjóra Morguns þykir rétt að vekja athygli á nýút- komnum bókum, er fjalla um dulræna reynslu og spiritisma. Fátt ber ljósari vott um það, hve áhugi manna hér á landi á þessum málum er almennur og sterkur, en það, að á hverju ári koma á bókamarkaðinn ekki ein heldur margar bækur um þessi efni. I raun og veru ber þetta gleðilegan vott um það, að þrátt fyrir allt okkar kapphlaup um peningana og hégómann, höfum við þó ennþá trú á því, að við höfum sál. Og að þetta sé öllu merkiiegri og mikilvægari staðreynd en ýmsir sálfræðingar nútimans vilja vera láta. Á meðan við höldum þeirri trú og látum okkur hana miklu skipta, er eng- an veginn ástæða til að öi’vænta, enda þótt klerkarnir kvarti um þverrandi kirkjusókn. Hér er ekki ætlunin að skrifa ritdóma um þessar bækur, aðeins að benda mönnum á þær, og ekki aðeins þeim, sem trúa á sálina og framhaldslífið, heldur ennþá fremur þeim, sem gera það ekki, því þeim er í rauninni miklu meiri nauð- syn að kynna sér þessi mál. Við höfum nefnilega sál, alveg án tillits til þess, hvort við trúum því að svo sé, eða ekki. Og ef framhaldslíf þeirrar sálar eftir dauða líkamans er stað- reynd, þá verður því ekki breytt, hversu stóra hnefa sem við leggjum fram á borðið til áréttingar þeirri skoðun, að allt slikt sé fjarstæða og hugarburður. Hins vegar skilst mér, að það geti skipt okkur sjálf æði miklu, hvort heldur við stönd- um í þeirri trú, að við séum aðeins sálarlaus iíkami, sem iognast út af til fulls einhvern daginn, eða að við séum fyrst og fremst sál í stundartengslum við líkamann, sál, sem eigi áframhaldandi þroska og göfgun fyrir höndum. Ég held, að það sé örugglega miklu hyggilegra og hollara
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.