Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Side 14

Morgunn - 01.12.1982, Side 14
116 MORGUNN TW: Ég er sannfærður um að það er ekki mikill munur á vísindamönnum og öðru skapandi fólki, hvort sem það fæst við listir, viðskipti eða annað. Skapandi menn eru oft gæddir ákveðinni gáfu, til dæmis til tónlistar, myndlistar eða til að leysa tæknileg vandamál, og þess vegna beita þeir gáfum sínum á ólíkan hátt, en í grundvallaratriðum hygg ég að manngerðirnar séu svipaðar og hreint ekki svo sjaldgæfar. Ástríða, hœttúleg einkalífinu GB: Ég er sammála þessu, en annað, sem þarna kemur til, er að sumir geta ekki afborið að standa í stað og þrá það stöðugt að vaxa, en aðrir eru sáttir við að standa í stað. Auðvitað geta menn ekki verið í stöðugum vexti, en sumir eru haldnir þessari ástríðu, að vaxa, hvort sem þeir ná því með að mála, skera út, rækta eða gera tilraunir. Ég hef séð þetta hjá nemendum mínum. Þeir taka allt í einu undir sig stökk og þar með verður ekki aftur snúið. Héðan í frá mun ekkert stöðva þá, þeir hafa ánetjast, eru haldnir þessari vaxtarþörf, og það held ég að skipti mestu máli. vE: Þetta er ástríða, þráhyggja. GB: Já, og hún er hættuleg, hún er hættuleg einkalífi manna. GP: En ef þessir eiginleikar eru af sama toga hjá lista- mönnum og vísindamönnum, hvað skilur þá á milli þeirra? Hvers vegna beita sumir þolgæði við að rýna í smásjá en aðrir við að tálga tré? GB: Oft er það tilviljun, til dæmis að kennarinn í teikn- ingu var skemmtilegur . . . AH: Það held ég ekki. Ég er handlaginn og hefði getað orðið skurðlæknir eða verkfræðingur, en þótt ég geti teikn- að hlut sem ég horfi á, get ég ekki beitt ímyndunaraflinu á þessu sviði. Ég er sannfærður um, að ég hefði aldrei get- að orðið málari eða myndhöggvari.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.